Morgunblaðið - 12.09.2012, Page 31

Morgunblaðið - 12.09.2012, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2012 Hljómsveitin Sigur Rós hefur beðið aðdáendur sína afsökunar á því að tónleikum hennar hafi ver- ið flýtt á hátíðinni Bestival á Isle of Wight á Englandi, 8. sept- ember sl. Hljómsveitin þurfti að spila mun fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir þar sem tónlistarmað- urinn Stevie Wonder krafðist þess en hann var aðalatriði kvöldsins. Sigur Rós þurfti að halda tónleikana í dagsljósi sem gerði það að verkum að mynd- bandsverk sem eru hluti af tón- leikunum fengu ekki að njóta sín því til þess þarf myrkur. Afsök- unarbeiðnina má sjá á vef Sigur Rósar, sigur-ros.co.uk en af henni má sjá að hljómsveitin er afar ósátt við tónleikana og Wonder. Ósáttir við Wonder Óánægðir Liðsmenn Sigur Rósar eru ósáttir með tónleika sína á Bestival. Ínýjustu bók sinni, Frjálsarhendur, kennarahandbók,fjallar Helgi Ingólfsson umframhaldsskólakennara, starfs- umhverfi þeirra, einkalíf sem er held- ur dapurlegt á köflum og baráttu við algerlega áhugalausa nemendur sem hika ekki við að kæra hvern þann kennara sem vogar sér að fara fram á lærdóm og þögn í skólastofunni. Sögusviðið er Fjölbrautaskólinn í Kringlumýri, þar sem nemendur eru vart mælandi á ís- lenska tungu og nota hvert tæki- færi til að klekkja á kennurunum. Sem eru algerlega varnarlausir gagnvart ósvífnum árásum nemenda, því búið er að binda hendur þeirra með öllu þann- ig að þeir geta hvorki æmt né skræmt þyki þeim of langt gengið. Eina til- hlökkunarefni þessara hrjáðu kennara er launað námsorlof sem fæstum þeirra hlotnast. Í brennidepli er misheppnaði rithöf- undurinn Gissur auk tveggja kennara sem eru íslenskukennarinn Randver og stjórnmálafræðikennarinn Eiríkur sem kallaður er Rauði sökum skoðana og útlits. Þar fyrir utan segir frá mörgu: Hrímlendingasögu Randvers, sem er nútímaskopsaga í fornum stíl, óhamingjusamri þingmannsfrú, dauf- gerðum eiginmanni hennar sem held- ur að leiðin til metorða liggi í gegnum golfvöllinn, illvígu mótorhjólagengi og býsna skrautlegu kennaraliði. Misvel er unnið úr efninu, betur hefði farið ef Helgi hefði færst minna í fang og lagt meiri vinnu í að dýpka sögupersónur. Helgi hefur kennt í framhalds- skólum og þekkir því gjörla vinnu- umhverfi kennara. Hann er afar gagn- rýninn á aðstæður kennara og skýtur föstum skotum að því hvernig starfið hefur þróast (a.m.k. í sumum skólum) frá því að vera forréttindi þeirra sem hafa áhuga á námi og í að vera opið öllum sem vilja. „Hún var í hópi þeirra sem höfðu breytt kenn- arastarfinu í góðrakvennastarf, þar sem sálgæsla og sultarlaun höfðu leyst af hólmi menntun og mannsæm- andi kaup.“ (12). Helga tekst vel upp að mörgu leyti, meinhæðinn og gríð- arlega orðheppinn á köflum og lík- ingar hans oft stórskemmtilegar. „Skollin var á grímulaus fávitavæð- ing. Stjórnmálamenn drukku ógeðs- drykki, Egill Helgason sprangaði á G-streng einum klæða fyrir framan alþjóð.“ (129) Helgi rýnir í samfélagið á alla kanta en burtséð frá allri ádeilu er bókin í heildina mikil skemmtilesning sem ætti að geta kætt margra geð, ekki síst kennara og annarra sem þekkja til í skólum landsins. Sé eitthvað að marka lýsingar Helga á daglegu lífi kennara, þá er víst ekki vanþörf á að þeir gleðjist. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kennarahandbók Helgi Ingólfsson, sögukennari og rithöfundur. Gagnrýnin og galsafengin lesning Skáldsaga Frjálsar hendur. Kennarahandbók. bbbnn Eftir: Helga Ingólfsson. Óðinsauga 2012. 219 blaðsíður. ANNA LILJA ÞÓRISDÓTTIR BÆKUR Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Kortasalan í fullum gangi! Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið) Fös 14/9 kl. 20:00 3.k Lau 22/9 kl. 20:00 7.k Lau 29/9 kl. 20:00 11.k Lau 15/9 kl. 20:00 4.k Sun 23/9 kl. 20:00 8.k Sun 30/9 kl. 20:00 12.k Fim 20/9 kl. 20:00 5.k Fim 27/9 kl. 20:00 9.k Fim 4/10 kl. 20:00 aukas Fös 21/9 kl. 20:00 6.k Fös 28/9 kl. 20:00 10.k Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá Gulleyjan (Stóra sviðið) Fim 13/9 kl. 19:00 fors Lau 22/9 kl. 14:00 4.k Sun 30/9 kl. 16:00 7.k Fös 14/9 kl. 19:00 frums Sun 23/9 kl. 16:00 5.k Sun 30/9 kl. 19:00 8.k Lau 15/9 kl. 19:00 2.k Sun 23/9 kl. 19:00 aukas Sun 16/9 kl. 16:00 3.k Lau 29/9 kl. 14:00 6.k Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma Á sama tíma að ári (Stóra sviðið) Fös 28/9 kl. 20:00 frums Lau 6/10 kl. 22:00 4.k Lau 13/10 kl. 19:00 7.k Lau 29/9 kl. 20:00 2.k Sun 7/10 kl. 20:00 5.k Lau 20/10 kl. 19:00 8.k Lau 6/10 kl. 19:00 3.k Fös 12/10 kl. 19:00 6.k Hjartnæmur og bráðfyndinn gamanleikur Rautt (Litla sviðið) Fös 21/9 kl. 20:00 frums Mið 26/9 kl. 20:00 4.k Lau 29/9 kl. 20:00 7.k Lau 22/9 kl. 20:00 2.k Fim 27/9 kl. 20:00 5.k Sun 30/9 kl. 20:00 8.k Sun 23/9 kl. 20:00 3.k Fös 28/9 kl. 20:00 6.k Mið 3/10 kl. 20:00 9.k Margverðlaunað meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar Við sýnum tilfinningar Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 16/9 kl. 14:00 3.sýn Sun 7/10 kl. 14:00 9.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 14.sýn Sun 16/9 kl. 17:00 4.sýn Sun 7/10 kl. 17:00 10.sýn Sun 28/10 kl. 14:00 Sun 23/9 kl. 14:00 5.sýn Sun 14/10 kl. 14:00 11. sýn Sun 28/10 kl. 17:00 Sun 23/9 kl. 17:00 6.sýn Sun 14/10 kl. 17:00 12.sýn Sun 4/11 kl. 14:00 Sun 30/9 kl. 14:00 7.sýn Sun 21/10 kl. 14:00 13.sýn Sun 4/11 kl. 17:00 Sýningar í október komnar í sölu. Tryggið ykkur sæti því miðarnir fljúga út! Afmælisveislan (Kassinn) Fös 14/9 kl. 19:30 Fös 21/9 kl. 19:30 Lau 15/9 kl. 19:30 Lau 22/9 kl. 19:30 Þrenn Grímuverðlaun! Sýningum lýkur í september! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið) Lau 15/9 kl. 20:30 Frums Lau 22/9 kl. 20:30 5.sýn Sun 30/9 kl. 20:30 8.sýn Fim 20/9 kl. 20:30 2.sýn Fim 27/9 kl. 20:30 6.sýn Fim 4/10 kl. 20:30 9.sýn Fös 21/9 kl. 20:30 3.sýn Fös 28/9 kl. 20:30 7.sýn Fös 5/10 kl. 20:30 10.sýn Ein vinsælasta sýning Þjóðleikhússins á síðari árum aftur á svið. Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is Fim. 13.09.12 » 22:00 Atli Heimir Sveinsson Flower Shower Fim. 20.09.12 » 22:00 Morton Feldman Coptic Light Fim. 08.11.12 » 22:00 Messiaen Et exspecto resurrectionem mortuorum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.