Skinfaxi - 01.03.2012, Síða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands
kom saman til fundar í þjónustumiðstöð
UMFÍ þann 27. febrúar sl. Ráðið átti þar
góðan vinnufund þar sem fjallað var um
ýmis mál. Drög að starfinu fyrir næsta
vetur voru lögð fyrir á fundinum.
„Það eru áhugaverð viðfangsefni fram
undan og við í ráðinu erum spennt að
byrja. Í mars ætlum við að hafa skemmti-
helgi en við ætlum að vinna vel með ungu
Ungmennaráð UMFÍ:
Ætlum að koma okkur vel á framfæri
fólki og koma okkur vel á framfæri. Í lok
mars verður haldin ráðstefnan Ungt fólk og
lýðræði og við komum að undirbúningi
hennar. Síðan hefur stefnan alltaf verið sú
að fara inn í grunnskólana og kynna ung-
mennaráðið og við erum að vinna að
bæklingi sem ætti að fara í prentun fljót-
lega. Við ætlum líka að kynna forvarna-
starf svo að verkefnin eru næg,“ sagði Sig-
ríður Etna Marinósdóttir, formaður ráðsins.
Í ungmennaráði UMFÍ eru Sigríður
Etna Marinósdóttir, formaður, Tálknafirði,
Eyjólfur Darri Runólfsson, Reykjavík, Eygló
Hrund Guðmundsdóttir, Hvammstanga,
Egill Gunnarsson, Fljótsdal, Ásmundur
Pálsson, Mosfellsbæ, Björn Grétar Baldurs-
son, Laugum, Kolbrún Lára Kjartansdóttir,
Hvammstanga, og Harpa Hreinsdóttir,
Reykjavík.
Þórleif Guðjónsdóttir hefur undan-
farnar vikur verið í vettvangsnámi hjá
Ungmennafélagi Íslands og Evrópu unga
fólksins. Þó nokkuð hefur verið um að
nemendur í tómstunda- og félagsmála-
fræðum í Háskóla Íslands komi og kynn-
ist starfsemi UMFÍ. Þórleif útskrifast frá
HÍ núna í vor en er að skrifa BA-ritgerð-
ina að afloknu þriggja ára námi. Þórleif
býst við því að fara að vinna í 100% starfi
næsta haust og vonandi við félagsmið-
stöðina Fókus í Grafarholti. Síðan væri
stefnan að fara í eins árs reisu um Asíu
á næsta ári og jafnvel að setjast aftur á
skólabekk eftir ferðina.
„Ástæðan fyrir því að ég fór í þetta
nám var að mér fannst það mjög spenn-
andi. Ég hef alltaf verið viðloðandi tóm-
stunda- og íþróttastarf og var lengi í fót-
bolta á Selfossi þaðan sem ég er. Ég hef
verið í alls konar félagsstarfi heima á Sel-
fossi,“ sagði Þórleif.
Ástæðan fyrir því að hún valdi UMFÍ í
vettvangsnáminu er að henni fannst UMFÍ
vera spennandi staður.
Vettvangsnám hjá UMFÍ:
Spennandi að
kynnast starfsemi
hreyfingarinnar
„Starfsemi UMFÍ er mjög umfangs-
mikil og því þótti mér mjög spennandi
kostur að kynnast starfsemi hreyfingar-
innar enn betur. Fram að þessu hefur
þetta verið afskaplega lærdómsríkur og
spennandi tími,“ sagði Þórleif Guðjóns-
dóttir í spjalli við Skinfaxa.
Anna Möller, for-
stöðumaður EUF,
Þórleif Guðjóns-
dóttir, Sæmundur
Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri
UMFÍ, og Sigurður
Guðmundsson,
landsfulltrúi UMFÍ.