Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Meistaramót Íslands 15–22 ára fór fram
helgina 4.–5. febrúar sl. í Frjálsíþróttahöllinni í
Laugardal. Keppt var í aldursflokkunum 15 ára,
16–17 ára, 18–19 ára og 20–22 ára. Á mótinu
kepptu 242 keppendur frá 18 liðum hvaðan-
æva af landinu. Keppnin var mjög skemmti-
leg og árangur í mörgum greinum einstak-
lega góður. Keppt var einnig í stigakeppni á
milli liða og varð lið ÍR í efsta sæti með 497,8
stig. Lið Breiðabliks lenti í öðru sæti með
209,5 stig og FH í þriðja sætinu með 187,3
stig. Lið frá HSK/Selfoss lenti í fjórða sæti.
Frjálsíþróttafólk frá héraðssamböndum stóð
sig með prýði á mótinu. HSK/Selfoss sendi
öflugt lið til leiks og stóð það sig mjög vel.
Níu Íslandsmeistaratitlar komu í hús hjá HSK/
Selfoss, þrjú silfur og átta brons. Í einstökum
flokkum varð HSK/Selfoss í 2. sæti í tveimur
þeirra, hjá 16–17 ára stúlkum og 20–22 ára
piltum.
Af einstökum keppendum stóð Sigþór
Helgason, HSK/Selfoss, sig frábærlega en
hann keppti í fjórum einstaklingsgreinum í
15 ára flokki pilta og sigraði í þeim öllum.
Hann stökk pilta hæst í hástökki með því að
vippa sér yfir 1,76 m og bæta sig um 1 cm
innanhúss, varpaði kúlunni langlengst allra
eða 13,56 m sem er bæting um 17 cm, bætti
sig um 9 cm í langstökki með 5,77 m og
stökk 11,69 m í þrístökki. Sigþór var síðan í
bronssveit HSK/Selfoss í 16–17 ára flokki í
4x200 m boðhlaupi á 1:46,50 mín. Með hon-
um í sveitinni voru Baldvin Ari Eiríksson og
Arnar Einarsson og Víkingur Freyr Erlingsson.
Eva Lind Elíasdóttir HSK/Selfoss, sem kepp-
ir í 16–17 ára flokki, var drjúg að vanda. Hún
sigraði í kúluvarpi með 12,90 m kasti og 60
m grindahlaupi á 9,09 sek. Þá varð hún þriðja
í 60 m hlaupi á fínum tíma, 8,34 sek. Í þessum
sama flokki vann HSK/Selfoss bronsverðlaun í
400 m hlaupi á 63,11 sek. sem er gott fyrsta
hlaup á keppnistímabilinu.
Thelma Björk Einarsdóttir, HSK/Selfoss,
sigraði í kúluvarpinu er hún varpaði 11,47 m
og Elínborg Anna Jóhannsdóttir, HSK/Sel-
foss, í þrístökki þegar hún jafnaði besta
árangur sinn og stökk 10,20 m.
Dagný Lísa Davíðsdóttir, HSK/Selfoss,
keppti í nokkrum greinum í flokki 15 ára og
meðal annars nældi hún sér í bronsverðlaun
í hástökki er hún stökk 1,49 m.
Í elsta flokknum hjá piltunum var HSK/Sel-
foss með öfluga íþróttamenn. Hreinn Heiðar
Jóhannsson tók tvo titla, í langstökki þegar
hann bætti sig um 18 cm og stökk 6,47 m og
í 60 metra grindahlaupi er hann hljóp á 9,29
sek. Hreinn vann silfur í þrístökki með því að
stökkva 12,35 m, en þar sigraði Bjarni Már
Ólafsson, HSK/Selfoss, á 13,28 m stökki, og
brons í kúluvarpi með 10,90 m kasti. Bjarni
Már varð síðan að láta sér lynda 2. sætið í
langstökki á eftir Hreini, er hann stökk 6,28 m.
Keppendur frá UMSS náðu einnig góðum
árangri á mótinu. Daníel Þórarinsson varð
annar í hástökki í flokki 18–19 ára. Jóhann
Björn Sigurbjörnsson sigraði í 60 m hlaupi,
varð annar í 200 m hlaupi og þriðji í hástökki
í flokki 16–17 ára.
Ísak Óli Traustason keppti einnig í flokki
16–17 ára og sigraði í hástökki og varð þriðji
í 60 m grindahlaupi.
Þorgerður Bettína Friðriksdóttir varð önn-
ur í flokki 16–17 ára í 200 m hlaupi.
Halldór Örn Kristjánsson sigraði í hástökki
í flokki 20–22 ára og í sama aldursflokki varð
Guðjón Ingimundarson þriðji í 60 m hlaupi.
María Rún Gunnlaugsdóttir úr Ármanni
varð fjórfaldur Íslandsmeistari í aldursflokkn-
um 18–19 ára, í kúluvarpi, langstökki, hástökki
og 60 m hlaupi. Hún sigraði einnig í 200 m
hlaupi og bætti árangur sjálfrar sín þegar
hún hljóp á tímanum 25,65 sek. Hún átti
áður tímann 26,21 sek.
Sveinbjörg Zophaníasdóttir úr FH varð
þrefaldur Íslandsmeistari í aldursflokknum
20–22 ára, í kúluvarpi, langstökki og
hástökki. Sveinbjörg keppti áður undir
merkjum USÚ en er nýgengin í raðir FH.
Esther Rós Arnarsdóttir úr Breiðabliki varð
þrefaldur Íslandsmeistari í aldursflokknum
15 ára, í 60 m, 800 m og 200 m hlaupi.
Gaman er að segja frá því að hin unga og
efnilega Aníta Hinriksdóttir úr ÍR vann 800 m
hlaupið í aldursflokki 16–17 ára á tímanum
2:08,65 mín. Hún var 25 sek. á undan næsta
hlaupara. Þetta er annar besti tími kvenna
í sögunni í 800 m hlaupi en hún setti sjálf
Íslandsmetið á sömu vegalengd fyrir stuttu,
þá hljóp hún á tímanum 2:05,96 mín. Hún
bar einnig sigur úr býtum í 1500 m hlaupi.
Tíu keppendur voru frá Ungmennafélagi
Akureyrar. Kolbeinn Hörður Gunnarsson
varð Íslandsmeistari í 60 m grindahlaupi 16–
17 ára á 8,37 sek. og einnig í 200 m hlaupi á
22,56 sek. Kolbeinn varð svo í 2. sæti í 60 m
hlaupi á 7,17 sek. og einnig í 2. sæti í 400 m
hlaupi á 49,13 sek. en þar keppti hann í
flokki 20–22 ára. Kolbeinn setti Íslandsmet
í sínum aldursflokki með þessum tíma, en
eldra met átti Einar Daði Lárusson, 49,54 sek.
Sunna Rós Guðbergsdóttir varð Íslands-
meistari í langstökki 15 ára en hún stökk 5,04
m. Hún varð í 2. sæti í þrístökki með 10,10 m.
Heiðrún Dís Stefánsdóttir varð Íslands-
meistari í 800 m hlaupi 18–19 ára á tímanum
2:25,12 mín.
Strákarnir í boðhlaupssveit 18–19 ára urðu
Íslandsmeistarar í 4x200 m boðhlaupi á
1:40,41 mín. Í sveitinni voru Eiríkur Árni
Árnason, Stefán Þór Jósefsson, Kolbeinn
Höður Gunnarsson og Hermann K. Egilsson
en þeir Kolbeinn og Hermann eru báðir 16 ára.
Agnes Eva Þórarinsdóttir í flokki 18–19 ára
varð í 2. sæti í langstökki með 5,50 m, 2. sæti
í þrístökki með 10,72 m og 3. sæti í 60 m
hlaupi á 8,30 sek. Hún varð síðan í 3. sæti í 60
m grindahlaupi á 9,79 sek.
Stefán Þór Jósefsson varð í 2. sæti í stang-
arstökki 18–19 ára með stökki upp á 3,80 m
og hann varð í 3. sæti í 60 m grindahlaupi á
9,59 sek.
Ásgerður Jana Ágústsdóttir í flokki 16–17
ára varð í 3. sæti í hástökki með 1,60 m og í
3. sæti í langstökki með 5,02 m.
Miklar framfarir hjá ungu
og upprennandi frjálsíþróttafólki
FRJÁLSAR: