Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.2012, Side 22

Skinfaxi - 01.03.2012, Side 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar sýndi í marsmánuði leikritið Í gegnum tíðina en frumsýning á verkinu var 9. mars sl. Höfundur og leikstjóri er Hörður Þór Benónýsson. Tónlistarstjóri er Pétur Ingólfsson. Þeir stýrðu einnig uppfærslu á Djöfla- eyjunni sem sýnd var árið 2008. Stífar æfingar á leikverkinu stóðu yfir á Breiðumýri frá 20. janúar og að sögn Harð- ar Þórs var æft nánast upp á hvern dag fram að frumsýningu. Reykdælingurinn Hörður Þór segir mikla vinnu liggja að baki því að setja upp leiksýningu en þetta er annað leikritið sem hann leikstýrir. Í gegn- um tíðina er fjölskyldusaga í léttum dúr sem gerist á árunum 1950–1980. Sagan er fléttuð í kringum vinsæl lög frá þessum tíma. Þrjátíu og tveir leikarar taka þátt í sýningunni og leika þeir 52 hlutverk, auk hljómsveitar. Flestir leikararnir eru nemend- ur við Framhaldsskólann á Laugum, auk eldri og reyndari leikara leikdeildar Eflingar. Æfingar á hverjum degi „Hópurinn, sem kemur að sýningunni, kom reyndar saman fyrir áramót en æfingar hóf- LEIKLIST: Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar: Allir eru tilbúnir að leggja hart að sér ust fyrir alvöru í kringum 20. janúar. Allir, sem koma að svona sýningu, leggja mikið á sig og við vorum oft að æfa á hverjum degi. Það er mjög skemmtileg og gefandi vinna að setja upp sýningu sem þessa og allir eru tilbúnir að leggja hart að sér. Við eigum á að skipa ungu og efnilegu fólki og reyndum leikurum og það skiptir miklu máli,“ sagði Hörður Þór í samtali við Skin- faxa, skömmu fyrir frumsýninguna. Leikrit á hverju ári Hörður sagði það hafa verið stefnuna mörg undanfarin ár að setja upp leikrit á hverju ári og það hefði gengið eftir. „Við ráðgerðum að sýna eingöngu á Breiðumýri og ætlunin var að sýningar yrðu um 10 talsins. Það hefur ávallt verið góð aðsókn að leikritum hjá okkur í gegn- um tíðina,“ sagði Hörður Þór Benónýsson, leikstjóri og höfundur leikritsins. Mynd til vinstri: Gunnar Sigfússon og Guðmunda Birta Jónsdóttir í hlut- verkum sínum. Mynd til hægri: Hildur Ingólfsdótir og Daníel Smári Magnússon í hlut- verkum sínum. Gibb-systur. Frá vinstri: Eydís Helga Pétursdóttir, Auður Katrín Víðisdóttir, Rakel Aðal- steinsdóttir og Sóley Hulda Þórhallsdóttir.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.