Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.03.2012, Blaðsíða 27
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27 Karlalið Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar hef- ur átt frábæru gengi að fagna í 1. deildinni í vetur. Uppskeran er eftir því, sætið á meðal þeirra bestu er tryggt og liðið leikur í efstu deild á næsta tímabili. Ísfirðingar hafa sýnt nokkra yfirburði í vetur og aðeins tapað einum leik. Kvennalið félagsins hefur einnig leikið mjög vel í vetur og á alla möguleika til að leika í efstu deild á næsta tímabili. Uppgangurinn er í körfuboltanum vestra er því ótvíræður og einkar athyglisverður. Markmiðin voru klár Sævar Óskarsson, formaður Körfuknatt- leiksfélags Ísafjarðar, segir það hafa verið markmið strax að fara upp um deild. „Við lögðum mikla áherslu á að ráða Pétur Sigurðsson sem þjálfara. Við vissum að þar væri góður drengur og öflugur þjálfari í yngri kantinum. Þegar við lönd- uðum stráknum voru markmiðin alveg klár.“ Sævar segir að þau hefðu náðst fylli- lega og í rauninni umtalsvert miklu betur en þeir hefðu þorað að vona. „Liðið er búið að leggja á sig gríðarlega Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar komið upp í efstu deild: Samansafn af fólki sem er mjög einbeitt í því að gera hlutina vel mikla vinnu til að ná þessum árangri. Við getum ekki annað en dáðst að strákunum og hrifist með, við sem erum í stjórn og stuðningsmenn,“ sagði Sævar. Sævar sagði að það yrði gaman ef stelp- urnar færu upp í efstu deild, þær væru nokkurs konar rúsína í pylsuendanum. „Það er ofsalega gaman að sjá hvað þær eru orðnar öflugar og gjarnan vildum við sjá þær fara upp í úrvalsdeild. Maður fagnar samt aldrei fyrr en að leikslokum, maður er búinn að læra það í gegnum tíðina.“ – Ætlið þið að byggja á þeim mannskap sem fyrir er eða á að styrkja liðið enn frekar fyrir átökin á næsta tímabili? „Stjórnin hefur ekki rætt það sérstaklega ennþá. Við ætlum að láta þetta tímabil klár- ast en það liggur hins vegar alveg fyrir að við viljum halda í þann mannskap sem er. Sá sem þjálfar liðið hefur töluvert um það segja hvernig hann vill breyta og ef það er innan skynsamlegra og eðlilegra marka sem lítið félag ræður við verður það að sjálfsögðu skoðað,“ sagði Sævar. Fáum öll bestu liðin vestur á Ísafjörð Sævar sagði það óneitanlega gaman fyrir bæjarfélag eins og Ísafjörð að eiga orðið lið í úrvalsdeild í körfubolta. „Við getum boðið bæjarbúum upp á góða skemmtun eins og körfuboltinn er og sú skemmtun felst í því að fá öll bestu lið landsins vestur á Ísafjörð í Jakann. Það er mest gaman að fá að kljást við bestu liðin. Ég er gríðarlega bjartsýnn á fram- haldið hjá okkur. Við eigum gott bakland, flott lið, gott þjálfarateymi og höfum því allar forsendur til að leika á meðal þeirra bestu. Við erum með stjórn sem er gríðar- lega ákveðin í því að missa ekki hlutina úr böndunum, hvort sem er skipulagslega eða fjárhagslega. Við erum með saman- safn af fólki sem er mjög einbeitt í því að gera hlutina vel,“ sagði Sævar Óskarsson, formaður Körfuknattleiksfélags Ísafjarðar, í samtali við Skinfaxa.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.