Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2012, Síða 42

Skinfaxi - 01.03.2012, Síða 42
42 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Eftirtaldir aðilar styðja starfsemi Ungmennafélags Íslands: Blönduós Glaðheimar, sumarhús, Melabraut 21 Hótel Blönduós, Aðalgötu 6 Samstaða, skrifstofa verkalýðsfélaga, Þverholti 1 Húnavatnshreppur, Húnavöllum Skagaströnd Skagabyggð, Höfnum Sveitarfélagið Skagaströnd, Túnbraut 1–3 Sauðárkrókur Fisk - Seafood hf., Eyrarvegi 18 Hótel Tindastóll, Lindargötu 3 Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1 K-Tak ehf., Borgartúni 1 Steinull hf., Skarðseyri 5 Vinnuvélar Guðmundar og Skúla sf., Borgarröst 4 Varmahlíð Akrahreppur Skagafirði, Ferðaþjónustan Bakkaflöt, www.bakkaflot.com Hofsós Vesturfarasetrið Akureyri Haukur, Bessi og Ásta tannlæknar Hlíð hf., Kotárgerði 30 Ísgát ehf., Laufásgötu 9 Raftákn ehf., Glerárgötu 34 Lónsá ehf., Lónsá Blikkrás ehf., Óseyri 16 Kjarnafæði hf., Fjölnisgötu 1b Netkerfi og tölvur ehf., Steinahlíð 7c Grenivík Brattás sf., Ægissíðu 11 Dalvík O. Jakobsson ehf., Dalvík, Ránarbraut 4 Ólafsfjörður Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar, Ólafsvegi 4 Húsavík Jarðverk ehf., Þingeyjarsveit, Birkimel Laugar Framhaldsskólinn á Laugum, Laugum, Reykjadal Þingeyjarsveit, Kjarna Vopnafjörður Vopnafjarðarhreppur, Hamrahlíð 15 Egilsstaðir Bílamálun Egilsstöðum ehf., Fagradalsbraut 21–23 Fljótsdalshérað, Lyngási 12 Héraðsprent ehf., Miðvangi 1 Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf., Einhleypingi 1 Skógar ehf., Dynskógum 4 Seyðisfjörður Seyðisfjarðarkaupstaður, Hafnargötu 44 Reyðarfjörður Launafl ehf., Hrauni 3 Stjórnendafélag Austurlands, Austurvegi 20 HVAR ERU ÞAU Í DAG? Pétur Guðmundsson Pétur Guðmundsson var í röð fremstu kúluvarpara í heiminum til skamms tíma. Pétur á enn í dag Íslandsmetið í greininni, 21,26 metra, sem hann setti á haustmóti í Mosfellsbæ 1990, en fyrr á því ári hafði völlurinn verið tekinn í notkun. Hann á einnig Íslandsmetið innanhúss sem er 20,66 metrar. Pétur segir í samtali við Skinfaxa að hann hefði alfarið snúið sér að kúlunni í kringum 1983 þegar honum gafst tækifæri til að fara á skólastyrk til Bandaríkjanna. Hann náði mjög góðum árangri í greininni og keppti m.a. á tveimur Ólympíuleikum, í Seoul í S-Kóreu 1988 og fjórum árum síðar þegar leikarnir voru haldnir í Barcelona 1992. Á leikunum í Seoul lenti Pétur í 14. sæti og sama sæti varð hlutskipti hans í Barcelona. Var kallaður Pétur 14. „Ég var kallaður Pétur 14. í smátíma eftir þetta,“ segir Pétur í léttum tóni. Hann tók auk þess þátt í nokkrum Evrópu- og heimsmeistara- mótum. „Íþróttirnar hafa gefið mér gríðarlega mikið“ „Besti árangur minn er bronsverðlaun á Evrópumeistaramóti þegar ég varpaði kúl- unni 20,03 metra í París 1994. Ég held að ég sé einn af fimm Íslendingum sem hafa feng- ið verðlaun á stórmóti,“ segir Pétur. Pétur segist hafa hafið íþróttaiðkun um tíu ára aldurinn, þá í knattspyrnu með Fylki. Síðan hafi hann flust í Árnessýsluna og geng- ið í Ungmennafélagið Samhygð og keppt undir merkjum HSK. Síðar á ferlinum keppti hann einnig m.a. með Ármanni og ÍR. Uppgangur í frjálsum „Það er uppgangur í frjálsum íþróttum og margt upprennandi fólk að koma fram. Kepp- endum er að fjölga hjá mörgum félögum sem er spennandi þróun. Við eigum líka marga góða þjálfara og getum því ekki sagt annað en að það sé bjart fram undan,“ sagði Pétur sem er þjálfari hjá ÍR í dag. Pétur er starfandi lögregluvarðstjóri og hefur starfað í lögregl- unni í hátt í 20 ár. „Íþróttirnar hafa gefið mér mikið í gegnum tíðina. Ég hef notið þess að æfa og keppa og svo ekki síður við þjálfunina í dag að miðla reynslu minni til þeirra yngri,“ sagði Pétur Guðmundsson í spjallinu við Skinfaxa.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.