Skinfaxi - 01.09.2012, Side 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Stjörnustúlkur tryggðu sér sigur í Borg-
unarbikar kvenna þegar þær lögðu Val í
úrslitaleik, 1:0, sem fram fór á Laugardals-
vellinum 25. ágúst sl. Leikurinn var spenn-
andi en það var fyrirliðinn, Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir, sem tryggði Stjörnunni
sinn fyrsta bikarmeistaratitil með glæsi-
legu marki af 30 metra færi.
Eins og búist var við fyrirfram var um
hörkuspennandi viðureign að ræða.
Stjörnustúlkur sóttu heldur meira en Vals-
stúlkur ógnuðu einnig. Fyrri hálfleikur var
markalaus og margir voru farnir að búast
við framlengdum leik þegar Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir skoraði sitt glæsilega mark
þegar um 10 mínútur voru eftir af leikn-
um. Stjörnustúlkur stigu svo mikinn sigur-
dans þegar Gunnar Jarl Jónsson flautaði
til leiksloka enda fyrsti bikarmeistaratitill
Stjörnunnar í höfn. Stjarnan bætti þar
með öðrum stóra titlinum í safnið á jafn
mörgum árum en liðið varð Íslandsmeist-
ari í fyrra í fyrsta sinn.
FÓTBOLTI:
Þetta kom okkur öllum
skemmtilega á óvart
Ungmennafélagið Víkingur í Ólafsvík
leikur í fyrsta sinn í úrvalsdeild karla í knatt-
spyrnu á næsta tímabili. Sætið var gull-
tryggt eftir sigur liðsins á KA, 0:4, á Akur-
eyri 16. september sl.
„Í sjálfu sér var það ekki markmið hjá
okkur að komast upp í Pepsídeildina. Öllu
heldur var það að gera betur en síðast þeg-
ar við höfnuðum í fjórða sæti. Hins vegar
verður að viðurkenna að það kom okkur
skemmtilega á óvart að komast upp í efstu
Stjörnustúlkur bikarmeistarar í knattspyrnu í fyrsta skipti
Víkingur í Ólafsvík kominn í úrvalsdeildina:
deild. Það small allt saman, undirbúningur
fyrir tímabilið gekk vel, við lékum vel í allt
sumar en samt sem áður kom þetta á
óvart. Þessi árangur er bara ævintýri og
maður sér að þetta hefur mikil áhrif á
mannlífið á Nesinu og áhuginn hefur farið
upp úr öllu valdi,“ sagði Jónas Gestur Jónas-
son, formaður knattspyrnudeildar Víkings,
í spjalli við Skinfaxa.
Jónas Gestur sagði ennfremur að mikil
aukning væri meðal yngstu iðkendanna.
Árangur liðsins hefði jákvæð áhrif í allar
áttir. Jónas Gestur sagði að þeir ætluðu að
nýta sér þennan meðbyr og fá enn fleiri
krakka til að æfa knattspyrnu.
„Undirbúningur fyrir næsta tímabil byrj-
aði í raun veru strax og ljóst varð að sætið
í efstu deild var komið í örugga höfn. Það
þarf að huga að mörgu, styrkja leikmanna-
hópinn, skoða aðstöðuna og fjármálin, svo
að eitthvað sé nefnt. Það er mikil vinna í
allri skipulagningu sem bíður okkar. Þetta
er óneitanlega skemmtilegt og við horfum
á það sem ævintýri og ætlum að hafa fyrst
fremst gaman að því. Við ætlum að gera
okkur besta og síðan kemur í ljós hvað það
mun fleyta okkur langt. Við ætlum að mæta
tilbúnir til leiks með alla í toppformi,“
sagði Jónas Gestur Jónasson, formaður
knattspyrnudeildar Víkings í Ólafsvík.