Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 4
LANDBÚNAÐUR ESB ICESAVE FISKVEIÐARSteingrímurJ. Sigfússon ÖgmundurJónasson BjörnValur Gíslason Katrín Jakobsdóttir Jón Bjarnason Svandís Svavarsdóttir Álfheiður Ingadóttir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Árni Þór Sigurðarson Lilja Rafney Magnúsdóttir Átökin innan Vinstri grænnasem einkennt hafa flokks-starfið á kjörtímabilinu verða eins og sprungusvæði þegar kemur að því að velja á lista í einstökum kjör- dæmum. Mikillar tortryggni gætir á milli hreyfinganna, annars vegar forystunnar og hins vegar „heimavarnarliðsins“ sem reis upp gegn Icesave og er einarðara í andstöðu sinni við aðild að ESB. Einn við- mælenda gekk svo langt að segja að það yrði banabiti flokksins að fara í kosningar í and- stöðu við ESB á sama tíma og aðildarumsókn væri til umfjöllunar í Brussel. Sama hvorum megin hryggjar viðmælendur liggja, þá eru flestir á því að framboðsmálin litist af þessum innri átökum. Og að forystan tefli jafnvel fram sínum „fulltrúum“ gegn andófsmönnunum í þingflokknum, en óvíst er að hún hafi styrk til þess. Reykjavík Allir þingmenn flokksins í Reykjavík eru líklegir til að gefa kost á sér, þó að þeir fari varlega í yfirlýsingar. Það eru Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Árni Þór Sig- urðsson og Álfheiður Ingadóttir. Einn þeirra segist upplifa það í flokknum að allir séu að spá í stöðu sína, enda bendi skoðanakannanir til að þingmönnum fækki eftir það sem á undan er gengið. „Það var annað andrúmsloft fyrir fjórum ár- um. Þá þurfti enginn að hugsa sig um.“ Framboðsmálin eru enn óljósari vegna orðróms um sér- framboð vegna andstöðunnar við ESB, en það yrði þá annað klofningsframboðið. Áður gekk Lilja Mósesdóttir úr flokknum og stofnaði Samstöðu, flokk lýðræðis og velferðar, og fer landsfund- urinn fram um helgina. Kjördæmisráð Vinstri grænna í Reykjavík kemur saman á mánu- dag, daginn eftir fund kjördæmisráðsins í Norðausturkjördæmi, og línurnar verða lagðar þar. Einn þingmanna segir að sér þyki líkleg- ast að ákveðið verði að efna til forvals. Gagnrýnt hefur verið að þrengt hafi verið að þátttöku í próf- kjörum. Eftir að upprunaleg tillaga um gjald sem allir þyrftu að greiða var felld á landsfundi hafi verið „laumað inn“ í skipulags- reglur flokksins ákvæði um „lágmarks viðmiðunarárgjald“, sem fel- ur í sér að allir kjósendur í prófkjöri þurfi að greiða 500 krónur til flokksins, ekki seinna en á kjördag. Suðvesturkjördæmi Óvissan er mikil í Suðvesturkjördæmi, þar sem Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra eru þing- menn, en þau hafa átt gott samstarf á Alþingi og farið fyrir „heimavarnarliðinu“. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um hvernig stillt verður upp og rekur einn viðmælenda það til þess að menn vilji bíða og sjá hvað ákveðið verði í Reykjavík, hvort kosið verði í nóvember eða beðið fram yfir áramót. Flest bendir til að Ögmundur ætli aftur fram og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir gefur ekkert upp. En þar sem óvíst er hvort flokk- urinn nái tveim þingmönnum í kjördæminu eru vangaveltur uppi um hvort annað þeirra flytji sig um set til Reykjavíkur, þar sem þau eiga sterkt bakland. Til marks um það má rifja upp að Ögmundur varð efstur í prófkjöri í báðum kjördæmum Reykja- víkur og Suðvesturkjördæmi árið 2007 og Guðfríður Lilja efst þeirra sem stefndu á annað sætið á einum listanna, en þar skákaði hún Árna Þór Sigurðssyni og Álfheiði Ingadóttur. Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, hefur verið orðaður við framboð. Norðvesturkjördæmi Kjörtímabilið hefur verið stormasamt í Norðvesturkjör- dæmi. Ásmundur Einar Daðason gekk úr Vinstri grænum yfir í Framsóknarflokkinn og mikið hefur mætt á Jóni Bjarnasyni, sem ýtt var úr ráðherrastóli eftir langvarandi deilur um ESB og fiskveiðistjórnunarkerfið. Hann gefur ekk- ert upp um hvort hann hyggst gefa kost á sér, en síðast hafi verið haldið prófkjör. „Það vita allir að ég er á kafi í pólitík.“ Þingmaðurinn Lilja Rafney Magnúsdóttir sækist eftir fyrsta sætinu og Lárus Hannesson, forseti bæjarstjórnar í Stykkishólmi, er orðaður við framboð. Einnig hefur Bjarni Jónsson, áhrifamaður innan flokksins og sonur Jóns Bjarnasonar, verið nefndur. Suðurland Efsti maður á Suðurlandi, Atli Gíslason, hefur sagt sig úr flokknum og varaþingmaðurinn Arndís Soffía Sigurðardóttir hyggst gefa kost á sér í fyrsta sæti. En þar etur hún kappi við Ingu Sigrúnu Atla- dóttur, forseta bæjarstjórnar í Vogum. Einnig hefur Jórunn Ein- arsdóttir, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum, verið nefnd en hún var í þriðja sæti fyrir síðustu kosningar. Norðausturkjördæmi Ekkert bendir til annars en Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, leiði flokkinn inn í nýjar kosningar, en hann hefur þó ekkert gefið út um það. Þingmaðurinn Þuríður Backman hættir þátttöku í stjórnmálum, en það gagnast lítið Birni Vali Gíslasyni sem er í þriðja sæti, því þetta er fléttulisti og kona sem tekur annað sætið. Orðrómur er uppi um að Björn Valur geti því vel hugsað sér að fara fram í öðru kjördæmi, en ekki blasir við hvar það ætti að vera. Forval Vinstri grænna á sprungusvæði átaka ÞAÐ STEFNIR Í UPPGJÖR Á MILLI ÖNDVERÐRA HREYFINGA INNAN VINSTRI GRÆNNA. LÍKLEGT ER AÐ EFNT VERÐI TIL FORVALS Í FLESTUM EÐA ÖLLUM KJÖRDÆMUM. ÞINGMENN ERU VARKÁRIR Í YFIRLÝSINGUM. EN MARGT BENDIR TIL AÐ EINHVERJIR FLYTJI SIG UM SET Á MILLI KJÖRDÆMA. * Það er verið að fara yfir það í fjölskyldunni hvort égfari fram. Ég mun ákveða það núna í mánuðinum. Katrín JakobsdóttirÞjóðmálPÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.