Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 57
Morgunblaðið/Kristinn
Danski spennusagnahöfundurinn
Jussi Adler-Olsen fékk fyrir
helgi afhent bandarísku Barry-
verðlaunin Verðlaunin hlaut hann
fyrir bókina The Keeper of Lost
Causes en sú bók kom út hér á
landi og heitir í íslenskri þýðingu
Konan í búrinu. Eins og lesendur vita er sú
bók afar vel samin og æsispennandi.
Barry verðlaunin eru veitt árlega fyrir
bestu sakamálasöguna. Bókin kom út í
Bandaríkjunum fyrir ári og komst á met-
sölulista The New York Times í sumar.
Bók Adler-Olsen, Flöskuskeyti frá P,
kom út í íslenskri þýðingu fyrir skömmu en
fyrir hana hlaut höfundurinn Glerlykilinn.
Bækur Adler-Olsen njóta gríðarlegra vin-
sælda víða um heim og hann þykir einn besti
spennusagnahöfundur samtímans. Hann
vinnur nú að nýrri bók.
ADLER-OLSEN VERÐLAUNAÐUR
Jussi Adler-Olsen er á
toppnum og safnar
verðlaunum.
07. 10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Bókin um Önnu í Grænuhlíð
eftir L.M. Montgomery er
klassísk barnabók sem margir
Íslendingar lásu sér til ánægju á
sínum tíma. Sú þýðing var mik-
ið stytt en nú er komin út
óstytt útgáfu sögunnar um hina
tápmiklu og góðhjörtuðu
Önnu. Hún er söguhetja með
afar ríkt ímyndunarafl og kem-
ur umhverfi sínu hvað eftir
annað í uppnám með óvenju-
legum tiltækjum sínum. Af
hennar vörum renna ýmis
spakmæli eins og: „Það er alltaf
rangt að gera það sem maður
hikar við að segja prestsfrúm.“
- Sennilega er töluvert til í því.
Þetta er einstaklega
skemmtileg og falleg saga sem
bæði börn og fullorðnir geta
lesið sér til ánægju.
Tápmikil
söguhetja
Skáldsaga Vilborgar
Davíðsdóttur, Gald-
ur, er í fyrsta sæti á met-
sölulista yfir sögulegar
skáldsögur á ensku í
Þýskalandi. Galdur, sem
á ensku nefnist On the
Cold Coast, kom fyrst
út hjá Random House í
Þýskalandi en er nú komin út á ensku hjá
AmazonCrossing. Von er á nýrri skáld-
sögu eftir Vilborgu. Sú nefnist Vígroði
og er framhald á sögu hennar um Auði
djúpúðgu, sem kom út fyrir þremur ár-
um. Vilborg á fjölda aðdáenda sem bíða
spenntir eftir nýju bókinni.
Vilborg
Davíðsdóttir
VILBORG Á
TOPPNUM Í
ÞÝSKALANDI
Klassískar
barnabækur og
matreiðsla
BÆKUR FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
TVÆR KLASSÍSKAR BARNABÆKUR KOMU NÝLEGA
ÚT Í ÍSLENSKRI ÞÝÐINGU OG EIGA HEIMA Í
BÓKASKÁP BARNANNA. TVÆR MATREIÐSLUBÆK-
UR FYRIR UNGMENNI ERU SVO LÍKLEGAR TIL AÐ
SLÁ Í GEGN, ENDA ER ÞAR AÐ FINNA GÓMSÆT-
AR OG FJÖLBREYTTAR UPPSKRIFTIR SEM BÖRN
GETA ELDAÐ EÐA FYLGST MEÐ FORELDRUM SÍN-
UM ELDA ÞÆR.
Nýja Disney-matreiðslubókin er full af dá-
semdar uppskriftum. Krimmakássa Svarta Pét-
urs gefur til kynna að þar sé kraftmikill réttur á
ferð en hann eldar Pétur jafnan fyrir Þrúðu
sína þegar glæpaáform þeirra hafa gengið upp.
Slappir borgarar Bjarnabófanna virðast engu
síðri. Klístruð rif Stóra Úlfs hafa svo verið eld-
uð í fjölskyldu hans í marga ættliði og alltaf
slegið í gegn.
Alls eru í bókinni 112 girnilegir réttir sem
eru í uppáhaldi hjá Disney-persónum. Mynd-
irnar og uppskriftirnar hljóta að framkalla
svengd hjá þeim sem skoðar.
Eldað með Mikka mús
og Stóra Úlfi
* En það er ýmislegt sem maður verðurað gera, annars er maður enginmanneskja heldur bara lítið skítseiði.
Astrid Lindgren – Bróðir minn Ljónshjarta
BÓKSALA 29. sept.-2. okt.
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Pennanum-Eymundssyni.
Á lista yfir kiljur eru ekki bækur sem eru
flokkaðar sem barnabækur.
1 Fimmtíu gráir skuggar - kiljaE.L. James
2 Létta leiðinÁsgeir Ólafsson
3 Minning um óhreinan engil - kiljaHenning Mankell
4 Hermiskaði - kiljaSuzanne Collins
5 Eldvitnið - kiljaLars Kepler
6 Herbergi - kiljaEmma Donoghue
7 Flöskuskeyti frá P - kiljaJussi Adler Olsen
8 Iceland Small World - lítilSigurgeir Sigurjónsson
9 Eldað með Ebbu í LatabæPure Ebba
10 Hin ótrúlega pílagrímsgangaHarolds Fry
Rachel Joyce
Kiljur
1 Fimmtíu gráir skuggarE.L. James
2 Minning um óhreinan engilHenning Mankell
3 EldvitniðLars Kepler
4 HerbergiEmma Donoghue
5 Flöskuskeyti frá PJussi Adler Olsen
6 Hin ótrúlega pílagrímsgangaHarolds Fry
Rachel Joyce
7 VögguvísaElías Mar
8 NæturóskinAnne B. Ragde
9 ParísarkonanPaulu McLain
10 Svar við bréfi HelguBergsveinn Birgisson
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Margt fer öðruvísi en ætlað er.
Barnabækur verða ekki
mikið fallegri en þessi út-
gáfa af hinni klassísku
barnabók Þytur í laufi eftir
Kenneth Grahame. Mynd-
skreytingar Robert Ing-
pen eru listilegar gerðar
og sagan sjálf mikið af-
bragð en þar segir frá
Molda og litríkum vinum
hans, en saman lenda þeir í kostulegum ævintýrum. Þetta er metn-
aðarfull útgáfa sem er útgefandanum, sem er Sögur útgáfa, til mik-
ils sóma. Jón Örn Marinósson þýðir.
Eiguleg
barnabók
Í bókabúð mátti
á dögunum sjá
lítinn gutta á að
giska sex ára
gamlan nið-
ursokkinn í að
skoða þessa bók.
Hann vildi alls
ekki sleppa henni og mamman
varð að lokum að toga drenginn
frá bókinni til að koma honum
heim. Drengurinn hafði verið
upptekinn af því að skoða
myndir og uppskriftir af him-
neskum hafragrautum, bragð-
góðum brauðsneiðum og öðr-
um ljúffengum og hollum
réttum sem Ebba og Latibær
galdra fram í skemmtilega upp-
settri matreiðslubók. Skila-
boðin til krakkanna eru: Hollur
matur gerir okkur öll hraust og
sterk og líka kát og glöð. Kók-
oskúlur, súkkulaðibúðingur,
popp og annað góðgæti fær
einnig að fljóta með enda er allt
gott gott í hófi.
Maturinn sem
Ebba og Lati-
bær mæla með
Glanni glæpur.
Ebba Guðný