Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 60
Í hvert skipti sem Cristiano Ronaldo ogLionel Messi reima á stig takkaskó máeiga von á mörkum í öllum regnbogans litum. Allt í viðureignum Barcelona og Real Madrid er raunar gert af meistara höndum; í þeim sveitum eru bara snillingar. Þessi tveir þó oftast nefndir. Enn einn El Clasico-leikurinn er á dag- skrá um helgina. Það nafn hefur árum sam- an loðað við viðureign spænsku risanna tveggja. Real varð landsmeistari í vor og hafði betur í tveggja leikja rimmu um spænska stórbikarinn í haust. Barca hefur byrjað með látum í deildinni en höfuðborg- arstoltinu gengið hálfbrösuglega. Bæði lið voru hins vegar frábær í Meist- aradeildinni í vikunni. Madrídingar léku sér að Ajax í Hollandi á miðvikudaginn og sama má segja um Barcelona sem mætti Benfica í Portúgal daginn áður. Meðan á þeim leik stóð hvarflaði að mér hvort orðið væri tíma- bært að setja einhvers konar takmarkanir á það hve lengi lið mætti halda boltanum í einu; taka upp skotklukku eins og í körfu- boltanum! Áhorfendur á Ljósavelli í Lissa- bon bauluðu langtímum saman í seinni hálf- eik; ekki á sína eigin menn að því er virtist, heldur gestina, því þeir voru með boltann nánast allan tímann. Fólkið á áhorfendapöll- unum vildi að þeirra lið fengi líka tækifæri til að sýna hvað býr í sóknarleik þess! En reglunum verður ekki breytt. Það er ekki hægt að refsa neinum fyrir snilli. Þrír bestu leikmenn álfunnar mæta til leiks í Barcelona; argentínski heimamaðurinn Messi, Portúgalinn Ronaldo hjá Real og einn hinna spænsku liðsfélaga Messis, Andrés Iniesta, sem bar sigur úr býtum í hnífjöfnu kjöri í Mónakó á dögunum þar sem 53 blaðamenn völdu leikmann ársins í Evrópu á síðustu vertíð. Andrés hampaði verðlaunagripnum en mjótt var á munum; hlaut 19 atkvæði, Ronaldo og Messi báðir 17. Iniesta er stórkostlegur innan vallar, auð- mjúkur og lítillátur utan hans. „Ég vil frekar láta muna mig sem góða manneskju en góð- an fótboltamann,“ sagði hann í viðtali í vik- unni. Fallegt. Grasið er ætíð iðjagrænt á Camp Nou sem öðrum sparksvæðum við Miðjarðarhaf. Ekki kæmi á óvart þó aðl spjöld og rauð færu á loft, hvað þá að einhver yrði blár og marinn að leik loknum … Harkalega er nefnilega glímt í viðureignum liðanna, enginn gefur þumlung eftir. Ekki einu sinni utan grassins. Frægt er þegar Mourinho, þjálfari Real, pot- aði fingri í auga Tito Villanova, aðstoð- arþjálfara (nú aðalþjálfara) Barcelona. Að vísu ekki þumli. Þetta var í fyrra og enn er ýmislegt sem bendir til þess að vinskapurinn sé ekki mikill. Ekki fer á milli mála hvaða bragði Barca beitir; uppstillingin verður 4-3-3 en leik- aðferð liðsins mætti svo sem allt eins kalla vmb; vera með boltann … Spennandi verður að sjá hvernig Mour- inho, þjálfari Real, stillir herliði sínu upp. Vegna slæmrar byrjunar verður það að bíta í skjaldarrendur og helst að vinna til að missa Barca ekki of langt á undan sér. Upp úr sauð í leik Barcelona og Real Madrid í ágúst 2011. David Villa (7) fær hér að líta spjaldið. Gulur, rauður, grænn og blár KATALÓNAR VIRÐAST ÁKVEÐNARI Í ÞVÍ EN ÁÐUR AÐ LÝSA YFIR SJÁLF- STÆÐI. STOLT HÉRAÐSINS, FC BARCELONA, TEKUR Á MÓTI HÖF- UÐBORGARLIÐINU REAL Í „EKKI BARA FÓTBOLTALEIK“ UM HELGINA. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson * Það voru engir boltastrákar við völlinn í seinni hálfleik; alvegdæmigerð vinnubrögð hjá litlum liðum sem eiga í vandræðum.José Mourinho, þjálfari Real Madrid, eftir tap í Barcelona á síðasta ári.BoltinnSKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is 60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012 Fólk borðar flesta daga og gaman er að tengja máltíð öðru áhugamáli, t.d. fótbolta- leik. Hvernig væri t.d. að elda paellu að hætti Spánverja á sunnudagssíðdegi og njóta í sóf- anum á meðan El Clasico verður í sjónvarp- inu? Fjöldi uppskrifta er á netinu. Leikurinn hefst kl. 17.50 að íslenskum tíma, gera má ráð fyrir að undirbúningur og eldun taki eina til eina og hálfa klukkustund. Það passar því að hefjast handa þegar búið er sötra teið og fylgjast með á leik Liverpool og Stoke … Andleg næring og líkamleg Paella með kjúklingi, humri og bláskel. RISASTÓRA TREYJUMÁLIÐ HVAÐ GEKK SERGIO RAMOS TIL MEÐ ÞVÍ AÐ KLÆÐAST TREYJU MESUT ÖZIL UNDIR SINNI EIGIN Í SEINNI HÁLFLEIK GEGN DEPORTIVO UM LIÐNA HELGI? ÍÞRÓTTABLAÐIÐ MARCA Í MADRID VELTI SÉR UPP ÚR ÞVÍ Í VIKUNNI. Meira en bara leikur … Þjóðverjinn Mezut Özil hjá Real Ma-drid lék ekki nógu vel í fyrri hálfleikgegn Deportivo La Coruna í deilda- leik um síðustu helgi, að mati Mourinhos þjálfara. Fregnir herma að sá portúgalski hafi hundskammað Özil í hléinu og Bras- ilíumaðurinn Kaka kom í stað þess þýska þegar leikurinn hófst á ný. Það sem vakti þó mesta athygli íþrótta- blaðsins Marca í Madrid var að varnarmað- urinn Sergio Ramos lék seinni hálfleikinn í treyju Özils, númer 10, innan undir sinni eigin. Þeir munu vera perluvinir. „Ramos ögrar Mou[rinho],“ var aðalfyrir- sögn Marca á forsíðu daginn eftir leik. Varnarmaðurinn, einn þriggja varafyrirliða Real, lét hafa eftir sér að helst hefði hann viljað skora og getað sýnt vini sínum stuðning með því að draga eigin treyju upp að öxlum í fagnaðarlátunum, þannig að búningur Özils blasti við. Það tókst honum reyndar ekki. „Mér semur betur við kon- una mína en Ramos,“ var haft eftir Mour- inho í vikunni! Það sem skiptir þó máli er að Real spilaði vel og vann. Madrid var aftur í stuði á miðvikudag gegn Ajax í Meistaradeildinni. Eftir þann leik hældi þjálfarinn Ramos á hvert reipi. Özil sat á bekknum þar til á 75. mín. að hann leysti Kaka af hólmi. En fótboltinn er sannarlega uppspretta endalausra vangaveltna …
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.