Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 52
Menning 52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012 Tónlistarskólinn í Grafarvogi stendur fyrir strengjamóti um helgina. Um 350 nemendur alls staðar að af landinu, sem leika á strengja- hljófæri, safnast saman í Grafarvogi og æfa saman metnaðarfulla dagskrá. Þátttakendum er skipt í fjórar sveitir og munu sveitirnar æfa alla helgina. Stjórnendur eru kunnir hljóð- færaleikarar, þau Guðný Guðmundsdóttir, Helga Þórarinsdóttir, Guðmundur Krist- mundsson og Wilma Young. Strengjamótinu lýkur með tónleikum í Eld- borgarsal Hörpu sunnudag klukkan 14. Að- gangur er ókeypis og allir hjartanlega vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. 350 NEMENDUR Í HÖRPU STRJÚKA STRENGI Ungir strengjaleikarar alls staðar að af landinu hittast um helgina og leika fyrir gesti í Hörpu. Morgunblaðið/Ómar Gjafmild: Leikkonan dáða Meryl Streep. AFP Óskarsverðlaunaleikkonan Meryl Streep færði í vikunni Lýðleikhúsinu (e. Public theatre) í New York eina milljón Bandaríkja- dala, andvirði 122 milljóna króna, að gjöf en leikhúsið fékk nýverið mikla og kostn- aðarsama andlitslyftingu. Streep hefur átt í langvarandi sambandi við téð leikhús en hún var tíður gestur á fjölum þess snemma á átt- unda áratugnum. Gjöfina tileinkaði hún George heitnum Papp, stofnanda Lýðleik- hússins, og stjórnarmanninum fyrrverandi, Noru Ephron, sem lést fyrr á þessu ári. LÝÐLEIKHÚSIÐ Í NEW YORK STREEPUÐ GJÖF F lott uppfærsla á leikritinu Rautt eftir John Logan um myndlist- armanninn Mark Rothko í Borg- arleikhúsinu hefur vakið athygli á bæði Logan og Rothko. En Rothko var einn af helstu listamönnum sinnar kynslóðar og er nátengdur New York-skólanum. Logan er rúmlega fimmtugt leikskáld og handritshöfundur sem auk vel heppnaðra leikrita hefur samið handrit að stór- myndum eins og The Gladiator með Russel Crowe, The Aviator með Leonardo di Caprio, Rango með Johnny Depp og nýjustu James Bond-myndinni, Sky- fall. Í viðtali við höfund leikskrárinnar í Borg- arleikhúsinu segir Logan að hann hrífist af stórum persónum og góðum leik- húshug- myndum en ein- mitt það tengir aðalpersónurnar Maximus Meredius í The Gladiator, Howard Hughes í The Aviator og Mark Rothko í Rautt. Þar segir hann einnig: „Ég gæti ekki skrifað skáldsögu þó að ég ætti lífið að leysa. Ég hef unun af að skrifa fyrir leikara og veita þeim innblástur til að skapa spennandi persónur á leik- sviði eða í kvikmynd. Leikhúsið verður strax í upphafi að vekja áhuga áhorfandans. Það gerist á stund og stað: Tjaldið er dregið frá og leik- ararnir flytja verk sitt, segja sögu og sýna hana í tvær til þrjár klukkustundir og þá fellur tjaldið. Allt er búið. Skáldsagan er eiginlega hugleiðsla í einveru. Í mínum huga jafnast það á við maraþonhlaup að lesa skáldsögu. Í leikhúsi og jafnvel í kvikmynd- um eru allir þátttakendur, áhorfendur sem leikarar. Á vissan hátt er leikhúsið persónu- legra og það krefst hugrekkis og opins per- sónuleika að standa á sviði fyrir framan áhorfendur.“ Í verkinu Rautt kemur það skemmtilega fram hvað listamaðurinn getur verið blindur á eigin hegðun, er blaðamanninum sér- staklega minnisstætt hvernig Rothko montar sig af því að hafa tekið þátt í að rústa þá listamenn sem voru hallir undir kúbismann og voru ráðandi þegar hann kom á sjónarsviðið en er síðan undr- andi þegar popp listamennirnir eru að rústa hann þegar hann er á meðal ráðandi lista- manna. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins nær tali af John Logan er það fyrsta spurn- ingin sem hann spyr, hvort Logan finni til einhverrar samsvörunar með Rothko al- mennt og hvort hann hafi fundið fyrir þörf til að ýta þeim listamönnum sem voru ráð- andi af sviðinu þegar hann birtist á því en Upprifjun á alvarleika ÁSAMT ÞVÍ AÐ SKRIFA HANDRIT AÐ NÝJUSTU BOND MYNDINNI TÓK JOHN LOGAN SIG TIL OG SKRIFAÐI UM EINN ÞYNGSTA OG ALVARLEGASTA LISTAMANN SJÖUNDA ÁRATUGARINS, MARK ROTHKO, OG TEKST SVONA ANSI VEL UPP. SUNNUDAGSBLAÐ MORGUNBLAÐSINS RÆDDI VIÐ LEIKSKÁLDIÐ UM MYNDLIST, RITLIST OG KVIKMYNDIR Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is JOHN LOGAN, HÖFUNDUR GLADIATOR, SKRIFAÐI RAUTT SEM SÝNT ER Í BORGARLEIKHÚSINU *Í öllumtilfellumþarf ég að verða persón- an sem ég skrifa um. Russel Croweí Gladiator Georg Óskar og Margeir Sigurðsson opna sýningu í sal Myndlistafélagsins á Akureyri í dag, laugardag- inn 6. október. Um er að ræða málaratvíeyki, GÓMS, sem vinnur sam- eiginleg verk og er útkom- an eins og eftir einstakling, segja þeir félagar. Átta til tíu ný verk verða á þessari sýningu, unnin á þessu ári. „GÓMS varð til 2007-2008 í sam- eiginlegri vinnuaðstöðu okkar meðan við vorum í námi í myndlistaskóla Akureyrar, þar komumst við að því að ólíkir stílar okkar og hvernig við vinnum munduðu það jafnvægi sem þurfti til að skapa það sem við teljum vera góða myndlist,“ segja listamennirnir. MYNDLIST Á AKUREYRI GÓMS SÝNIR Veggspjald sýn- ingarinnar. Þetta fyrsta verk þarna heitir Blómstur-vellir og hin fimmtán kalla ég Slóð,“segir Ragnheiður og horfir yfir flenni- stórar kolateikningarnar sem hún hefur raðað með veggjum Ásmundarsalar í Listasafni ASÍ. Í dag, laugardag, klukkan 15.00 opnar hún þar sýningu á þessum nýjustu verkum og að auki endurgerð átta grafíkmynda sem voru á fyrstu grafíksýningu hennar fyrir rúmlega fjörutíu árum. Ragnheiður Jónsdóttir er meðal okkar kunnustu grafíklistamanna. Árið 1989 sýndi hún kolateikningar í fyrsta skipti og hefur síð- an haldið sig við þann miðil að mestu, ef und- an eru skildar tvær grafíkraðir. En hvaða Slóð er þetta sem hún er að vinna með, og þessir Blómsturvellir? „Það er nú það …“ svarar hún íbyggin. Í grein í sýningarskrá vitnar Ólafur Gísla- son í heimspekinginn Hegel, um að „lista- verkið sé hin skynjanlega birtingarmynd Hugmyndarinnar“; listakonan vill láta okkur um að lesa í það hver hugmyndin sé. Hún segir þetta allt sjálfstæðar myndir en hver taki við af annarri. Í einni myndinni má sjá spunasnældu snú- ast, þarna eru bendur silkiorma og þræðir sem teygjast út frá þeim; í öðrum eru sprungukennd form sem vísa í lauflausar greinar og bresti í ís. „Já, þarna er spunasnælda. Stjórnstöðin kannski,“ segir Ragnheiður. Ég geng að myndinni og rýni í hana, tala um áþreifanleik- ann og örugg tökin á teikningunni. „Mér finnast kolin afskaplega skemmtilegur miðill. Maður er frjáls,“ segir hún. „Í graf- íkinni er maður bundinn í minna formati og eiturefnin voru alveg að gera út af við mig. Ef ég vil breyta einhverju í teikningunum er það ekkert mál en allt slíkt er mikil fyrirhöfn í grafíkinni. Að vinna við svona stór verk veitir líka svo mikið meira frelsi í hreyfingunni. Þetta eru fisléttar og stórar hreyfingar,“ segir hún og KOLATEIKNINGAR OG GRAFÍKVERK Í LISTASAFNI ASÍ Fisléttar og stórar hreyfingar RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR OPNAR Í DAG SÝNINGU Á STÓRUM LÍFRÆNUM TEIKNINGUM Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það er taktur í verkunum, og líka þagnir, rétt eins og í tónlist,“ segir Ragnheiður Jónsdóttir. Morgunblaðið/Einar Falur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.