Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Blaðsíða 34
*Sjónvarp er ekki sama og sjónvarp. Að mörgu er að huga þegar nýtt sjónvarpstæki er valið »36Græjur og tækni Bergsteinn Björgúlfsson kvik- myndatökustjóri þurfti að beita ýmsum kúnstum við tökur á kvikmyndinni Djúpinu til að komast hjá því að saltur sjórinn kæmist að tökubúnaðinum og eyðilegði hann. Morgunblaðið/Styrmir Kári Þ að versta sem þú gerir við myndatökubúnað er að setja á hann salt- vatn en það eyðileggur hann undir eins,“ segir Bergsteinn Björgúlfsson, betur þekktur sem Besti, kvikmyndatökustjóri Djúpsins. Þrátt fyrir að hafa marga fjöruna sopið við kvikmyndagerð hér á landi segir Bergsteinn aðstæður við tökur á Djúpinu hafa verið krefjandi. Eins og margir þekkja sækir myndin innblástur sinn í sannsögulegan atburð en hún segir af þrekraun manns sem einn lifir af sjóslys þar sem félagar hans farast en hann kemst af með því að synda til lands í brimi og öldugangi úfins Atlantshafsins. Tökur fyrir myndina fóru víða fram, t.d. við höfnina úti í Garði og í Helgu- vík, við stórgrýttar, brimbarðar strendur Vestmannaeyja og á Reykjanesi. Var notast við pramma, krana og gúmmíbáta svo fátt eitt sé nefnt til að ná sem trúverðugustum aðstæðum. Eins og viðfangsefnið gefur til kynna fóru tökur á myndinni að langmestu leyti fram í, við og undir yfirborði sjávar. Reið þar á að tökubúnaðurinn væri sérstaklega varinn öllum stundum svo að saltur sjórinn kæmist ekki að honum. „Ég var alltaf með myndatökuvélina í sérstökum hlífðarpoka sem þolir að fara undir yfirborðið en er þó ekki til að kafa með,“ segir Bergsteinn. Umbún- aðurinn hægði mjög á öllum vinnubrögðum við tökurnar, þar sem seinlega gekk að skipta um rafhlöður eða kort í vélinni, en ávallt þurfti að ganga úr skugga um að plasteinangrunin væri trygg áður en hafist var handa við að skjóta á ný. Fyrir neðansjávartökurnar þurfti Bergsteinn að gera upp við sig hversu dýran búnað ætti að leggja í. „Á endanum fluttum við inn köfunarhylki fyrir RED vél- ina sem ég var að taka myndina á. Það vildi þó ekki betur til en svo að það komst sjór inn í það og skemmdi vélina, sem var allt annað en gott mál,“ seg- ir hann. Var afgangurinn af neðansjávartökunum tekinn á SONY EX3 og Canon 5D vélar, sem voru í sérstökum köfunarhylkjum. Að sögn Bergsteins er hægt að kaupa vatnsþétt hylki utan um nánast allar myndavélar en getur verið kostnaðarsamt. Ætli fólk á annað borð með mynda- vélarnar sínar á sjó mælir hann með að þær séu algjörlega lokaðar inni í plast svo að ekki sé möguleiki á að vatn komist þar að. Þarf ekki nema eina slettu af sjó til að eyðileggja vélina. „Og þetta er oft ekki tryggt tjón,“ bætir hann við. BERGSTEINN BJÖRGÚLFSSON, ÍKS, KVIKMYNDATÖKUSTJÓRI Ein sletta af sjó og myndavélin er ónýt ÝMSUM KÚNSTUM ÞURFTI AÐ BEITA VIÐ TÖKUR Á KVIKMYNDINNI DJÚPINU. ÞAR SEM SAGAN GERIST AÐ MESTU Á, Í OG VIÐ SJÓ VARÐ AÐ GÆTA VARKÁRNI TIL AÐ VERJA GRÆJURNAR Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Söngkonan Lady Gaga er vinsæl- asta manneskjan á Twitter en í vik- unni náði hún þeim árangri að fylgj- endur hennar náðu 30 milljónum. Gaga hefur verið ráðandi á sam- félagsmiðlum og hafði því betur í baráttunni við Justin Bieber og Katy Perry. Í mars varð hún fyrsti Twitter-notandinn til að fá 20 millj- ón aðdáendur. Hún á rúmar 53 milljónir aðdáenda á Facebook og fjórar milljónir á Google+ en hún fór að nota þá þjónustu í janúar. Til að fagna stórviðburðinum skrifa aðdáendur hennar nú færslur merktar #30MillionMonsters. LADY GAGA SLÆR MET Á TWITTER 30 milljón fylgjendur Lady Gaga er þekkt fyrir skrautlega búninga sína sem og framkomu. AFP Þrívíddarprentarar hafa verið notaðir í iðnaði í um það bil tvo áratugi, en CNN segir að nú styttist líklega í að eitthvað af fjórðu kynslóð slíkra gripa verði á viðráð- anlegu verði fyrir hefðbundið heimili. Allt er þó vissu- lega afstætt hvað það varðar. Á tæknisýningu í New York var sýndur prentari sem á stuttri stundu spýtti úr sér þrívíddareintaki af Eiffel turninum og spariskó, svo dæmi séu tekin, eftir að hlutirnir voru skannaðir. Sá prentari er byggður á dýru iðnaðartæki, en starfs- mönnum við MIT háskólann hefur tekist að útfæra ein- faldari og ódýrari útgáfu. Reiknað er með að sú nýja komi í sölu snemma á næsta ári, en falli þó ekki alveg strax inn í fjárhagsramma venjulegs fólks, en verðið lækki vonandi hratt.. En fyrir hönnuði er þetta kosta- gripur. „Maður getur sýnt hugmyndir sínar með áþreif- anlegum hætti,“ sagði einn þeirra á sýningunni. ÞRÍVÍDDARPRENTARAR BRÁTT Á VIÐRÁÐANLEGU VERÐI Viltu prenta út skó?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.