Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 12
Svipmynd
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012
F
innur Árnason hefur ver-
ið forstjóri Haga frá
árinu 2005. Tíu fyr-
irtæki eru innan Haga,
þar á meðal Bónus og
Hagkaup, vöruhúsin Aðföng og
Bananar, verslanir Debenhams, Úti-
líf og tískubúðirnar Zara og Top
Shop. Það er því í mörg horn að líta
hjá forstjóranum sem segir starf
sitt vera líflegt og skemmtilegt. Í
frístundum gefur Finnur sér tíma
til að semja lög og texta og nú eru
komnar út upptökur á tveimur lög-
um eftir hann. Annað lagið Er þetta
ástin? syngur Bubbi Morthens og
hitt lagið Brosið þitt bjarta syngur
Páll Rósinkranz. Lagið sem Bubbi
syngur er komið inn á Rás 2 og
Bylgjuna og þangað mun Brosið
þitt bjarta með Páli væntanlega
einnig rata innan skamms tíma.
Finnur á ekki langt að sækja tón-
listaráhugann en báðir afar hans
voru miklir áhugamenn um tónlist,
eins og Finnur rifjar upp: „Afi minn
og alnafni minn var mikill harm-
ónikkuleikari og spilaði á sveitaböll-
um. Hinn afi minn, Oliver Guð-
mundsson var mikill vinur Hauks
Morthens og samdi lög og tók þátt í
lagakeppnum fyrir og eftir stríð.
Bubbi syngur tvö lög eftir hann á
plötunni á Í skugga Morthens, lögin
Með blik í auga og Hvar ertu?“
Hvenær fórst þú að leika á hljóð-
færi?
„Finnur afi gaf mér harmónikku
þegar ég var átta ára gamall. Ég
var í harmonikkunámi í tvo vetur
þar sem Reynir Jónasson kenndi
mér um tíma en ég var nú ekki sér-
lega góður nemandi. Ég var í
unglingahljómsveitum og gekk í
tónlistarskóla, þar til ég lauk
námi í viðskiptafræði við Háskóla
Íslands, 24 ára gamall. Lengst af
undir handleiðslu Sigurðar Mar-
teinssonar, en einnig Agnesar Löve.
Ég hef reynt að viðhalda tónlistinni,
hlusta mikið og er alæta á tónlist.
Mest hlusta ég þó á djass og klass-
íska tónlist en einnig á það sem er í
gangi hverju sinni og kaupi töluvert
af íslenskri tónlist. Ungir íslenskir
tónlistarmenn eru að gera frábæra
hluti og svo eru menn eins og Bubbi
sem er búinn að halda sér á toppn-
um í allan þennan tíma sem hlýtur
að teljast töluvert afrek því sam-
keppnin er afar hörð og markaður-
inn lítill.
Það er píanó á heimilinu og að
setjast við það er dálítið eins og að
fara í jóga. Maður sest niður og
slakar á og fær hvíld frá hinu dag-
lega amstri. Við fjölskyldan höfum
öll gaman af tónlist. Konan mín er
Anna María Urbancic sem er
barnabarn Victors Urbancic, þannig
að það er mikil tónlist í þeirri ætt.
Börnin okkar fjögur, Árni Grétar,
Ebba Katrín, Oliver Páll og Viktor
Pétur, sem eru á aldrinum 13-22
ára, hafa öll lært á hljóðfæri en
stefna samt ekki að því að leggja
tónlist fyrir sig.“
Gefandi að semja lög
Faðir þinn, Árni Grétar Finnsson
lögfræðingur, gaf út fjórar ljóða-
bækur á sínum tíma og þið systk-
inin gáfuð út heildarsafn ljóða hans
fyrir nokkrum árum. Yrkir þú ljóð
og skrifar þú sögur?
„Ég hef skrifað eitthvað smotterí
en það er allt ofan í skúffu. Ég hef
fiktað við að semja lög og texta við
þau en þessi tvö lög sem nú eru
komin á disk eru þau fyrstu sem
eru fullkláruð. Ég samdi þessi lög
mér til gamans og þar sem þessi
iðja veitir mér ánægju langar mig
til að gera meira af því að semja lög
og texta. Ég á til drög að lögum en
það er meira mál en ég taldi að
ljúka við þau. Ég hélt líka að texta-
smíði væri auðveldari en lagasmíði
en það hefur ekki verið þannig. Það
má segja að þessir tveir diskar hafi
verið prófraun í því að klára lög.
Þetta var áskorun og ég fór út fyrir
minn eigin þægindahring. Þetta eru
bara lítil lög en fyrir mér er stórt
skref að setja endapunktinn við þau
með útgáfu. Nú er ég búinn að láta
þessi lög frá mér fullunnin og það
sem maður hefur látið frá sér verð-
ur ekki tekið aftur. Ég mun halda
áfram að semja lög og texta einfald-
lega vegna þess að mér finnst það
svo gefandi. Auðvitað væri gaman
að eiga í fyllingu tímans safn laga,
en ég er ekki fljótur að semja og
þarf yfirleitt að taka nokkur tilhlaup
áður en ég lýk við lag. “
Hvernig taka starfsmenn þínir
þessari útgáfu?
„Mjög vel. Á árshátíðum innan
fyrirtækisins hafa í gegnum árin
verið settar saman hljómsveitir og
þá hef ég stundum verið klæddur í
búning og farið upp á svið. Þannig
að starfsmenn hafa séð mig spila,
þótt það hafi mest verið í gríni gert.“
Syngur þú á sviði á árshátíðum?
„Ég syng ekki. Það er mikilvægt
að þekkja takmörk sín.“
Það er nokkurt mál að koma lög-
um sínum og texta á disk og fá
landsfræga menn til að syngja.
Hvernig tókst þér það?
„Hagkaup hefur verið með ís-
lenska tónlistardaga í nóvember á
hverju ári í meira en áratug. Þar er
lögð áhersla á að kynna nýja útgáfu
og tónlistarmenn mæta í búðirnar,
spila lög og árita plötur. Í gegnum
þetta framtak kynntist ég tónlist-
armönnum og þar á meðal Bubba og
umboðsmaður hans, Páll Eyjólfsson,
hefur unnið mikið með okkar fyr-
irtækjum. Þessi samskipti þróuðust
síðan skemmtilega í þessa átt. Það
er eitt að langa til að semja lög og
texta og svo er annað að koma inn í
hóp og hvetjandi umhverfi þar sem
menn eru snillingar, hver á sínu
sviði. Ég hef verið svo lánsamur að
lenda í réttum höndum en það má
segja að Benzín bræður, Daði og
Börkur Birgissynir, hafi tekið mig í
fóstur. Þeir reka Stúdíó Sýrland og
fengu Inga Björn Ingason, barna-
barn Alberts Guðmundssonar, til að
Út fyrir
eigin
þæginda-
hring
FINNUR ÁRNASON, FORSTJÓRI HAGA,
STÝRIR STÓRU FYRIRTÆKI EN Í FRÍSTUNDUM
SEMUR HANN LÖG OG TEXTA. TVÖ LÖG
ERU KOMIN Á DISK OG ANNAÐ ER KOMIÐ Í
SPILUN HJÁ ÚTVARPSSTÖÐVUM OG HITT
LAGIÐ MUN EINNIG RATA ÞANGAÐ.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
*Það er eitt að langa til að semja lög ogtexta og svo er annað að koma inn íhóp og hvetjandi umhverfi þar sem menn
eru snillingar, hver á sínu sviði. Ég hef ver-
ið svo lánsamur að lenda í réttum höndum