Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 22
*Heimili og hönnunFinnar virðast einhverra hluta vegna frjórri en aðrar þjóðir þegar kemur að hönnun »36 Annað tölublað íslenska hönnunar- og lífs- stílstímaritsins Home & Delicious er kom- ið út, en ritið er eingöngu gefið út á vefn- um. Um er að ræða hugarfóstur hjónanna Höllu Báru Gestsdóttur hönnuðar og Gunnars Sverrissonar ljósmyndara, sem m.a. eru kunn af stofnun blaðsins Lifunar. Er tímaritinu ætlað að veita fólki innblástur og gefa því hug- myndir að ýmiskonar útfærslum um hvaðeina sem tengist heim- ilum, hönnun, lífsstíl og matargerð svo fátt eitt sé nefnt. Vef- tímaritið er öllum opið á slóðinni: www.homeanddelicious.is HOME & DELICIOUS KOMIÐ ÚT Nýtt vefrit um hönnun Annað tölublað veftímaritsins Home & Delicious er komið út og kennir þar ýmissa áhugaverðra grasa. M atarstell með andlitum nokk- urra höfuðfígúra úr æv- intýraheimi hönnunarfyrirtæk- isins Tulipop njóta nú vinsælda, en furðuverurnar sem mynda þennan undarlega heim spretta úr hug- arheimi Signýjar Kolbeinsdóttur vöruhönn- uðar. Veröld Tulipop er hugsuð sem eyja og á henni búa þrettán verur sem Signý hefur teiknað. En hvert sækir hún innblástur að þessum skrautlegu karakterum? „Mestan innblástur fæ ég frá fólkinu í kringum mig,“ segir Signý en bætir við að oftar en ekki átti hún sig ekki á því fyr- irfram hver fyrirmyndin að karakternum er. „Ég fatta það oft eftir á hverjum persónan líkist. Þá hef ég kannski orðið fyrir áhrifum af persónueinkennum einhvers í kringum mig, úr fjölskyldu eða vinahópi, án þess að tengja það beint þegar ég byrja að teikna.“ Tulipop vörurnar fást í Epal, Dúka, Kokku, Snúðum og snældum, Hrím, Barna- búðinni, Aurum og Mýrinni í Reykjavík, í Pottum og prikum og Kistunni Akureyri, Birtu Egilsstöðum og Hrund Ólafsvík. Signý Kolbeinsdóttir hönnuður og hugmynda- smiður Tulipop. Morgunblaðið/Sigurgeir S. ÆVINTÝRAVERÖLD TULIPOP LIFNAR VIÐ Furðuverur byggðar á fólki ÚR SMIÐJU TULIPOP SPRETTA SKRINGILEGAR VERUR SEM VIRÐAST AF ÖÐRUM HEIMI EN ERU ÞÓ ALÍSLENSKAR OG BYGGJA Á FYRIRMYNDUM ÚR HÓPI VINA OG VANDAMANNA HÖNNUÐARINS. GLÓ, BÚI, UGGI, SPOTTI OG KÚPA ERU TIL SEM MATARSTELL OG HERRA BARRI VERÐUR AÐ LAMPA Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is * Sveppastrákurinn Búi er hrifnæmurnáttúruunnandi, bókaormur og ofurnörd! Milli þess sem hann liggur í bókum og spjallar við dýr og blóm og aðrar verur lætur hann sig dagdreyma og hugsar upp ný orð svo eitthvað sé nefnt. Lífið er því nokkuð notalegt hjá þess- um ljúflingi nema þegar hann lætur áhyggjurnar ná tökum á sér. * Sveppastelpan Gló er systir Búa enlíklega er leitun að ólíkari systkinum. Öfugt við hinn hægláta og mjúklynda Búa er Gló æv- intýragjörn, hvatvís en þó umfram allt hugrökk. Það er alltaf eitthvað í spennandi í gangi hjá þessari dugnaðarkonu. Hún elskar ráðgátur og leyndardóma sem er ástæða þess að hún býr í jaðri Svartaskógar við rætur eldfjalls. * Bræðurnir Uggi og Spotti erumiklir brandarakarlar. Þeir leggja í vana sinn að ganga aðeins of langt í gríninu en eins og allir trúðar hafa þeir stórt hjarta og eru miklar til- finningaverur. * Kúpa er kaldhæðin og stundumsvolítið stuttur í henni þráðurinn. Hún trúir á sannleikann og hann getur verið bitur, eins og við vitum. Kúpa er ljóðskáld, með snarpan stíl og beinskeytt skilaboð. * Herra Barri býr á sama stað og Kúpa en þau hafa kom-ið sér upp samskiptamynstri sem einkennist af sífelldu tuði og að- finnslum en ósættið er þó bara á yfirborðinu – þau gætu í raun ekki hugsað sér lífið án hins. Ætli það kallist ekki bara ást. Brátt getur Barri lýst upp herbergi með glyrnunum sínum því Tulipop áformar að senda frá sér lampa í líki Barra. Lampinn er væntanlegur í verslanir í nóvember en hann er hægt að forpanta á www.tulipop.is. * Matarstell úr melamín með myndumaf Tulipop fígúrunum Ugga og Spotta. Sumir kaupa matarstellin fyrir börn en það má líka hugsa sér þau sem skraut, t.d. sem namm- iskálar. Leiðbeinandi verð fyrir matarstellin, sem samanstanda af diski, skál og glasi, er 5.990 kr. Tripp Trapp stóllinn þekkti á 40 ára af- mæli um þessar mundir. Stólinn hannaði norski hús- gagnahönnuðurinn Peter Opsvik upp- haflega árið 1972. Hugmyndina fékk hann þegar hann fylgdist með syni sín- um sem náði ekki upp á matarborð fjöl- skyldunnar af hefðbundnum stól. Hann- aði hann Tripp Trapp með í huga að hann gæti vaxið með barninu en hægt er að aðlaga bæði sæti og fótskemil eftir því sem það stækkar. Er stóllinn gott dæmi um vel heppnaða, tímalausa hönnun. AFMÆLI VERÐLAUNAHÖNNUNAR Tripp Trapp stóllinn 40 ára Tripp Trapp stóllinn er gott dæmi um tímalausa hönnun.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.