Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012
Þ
að eru fallegir og for-
vitnilegir, nýstárlegir og
sígildir hlutir í búðinni
Suomi PRKL!, sem stend-
ur í bakhúsi við Laugaveg 27, í
porti milli Hríms hönnunarhúss og
Tíu dropa. Þeir eiga líka allir það
sameiginlegt að vera af finnskum
uppruna, líkt og stofnendur og eig-
endur verslunarinnar, Maarit Kai-
painen og Satu Rämö. Flestir eru
hlutirnir líka ákaflega nytsamlegir,
sem er eitt einkenni finnskrar
hönnunar. Búðin er líka hugvits-
samlega innréttuð fyrir lítinn pen-
ing og margt þar inni sem getur
veitt innblástur.
Helsinki er Hönnunarhöf-
uðborg heimsins 2012
Það er líka við hæfi að heimsækja
þessa finnsku búð á Íslandi árið
2012, árið sem finnska höfuðborgin
Helsinki ber titilinn „World Design
Capital“ eða Hönnnunarhöfuðborg
heimsins, ásamt nokkrum ná-
grannaborgum. Finnsk hönn-
un hefur því verið í
sviðsljósinu í ár enda
af ríkum
hönnunarheimi að taka, bæði nýj-
um sprotum og rótgrónum fyr-
irtækjum á borð við Arabia, Fisk-
ars og Iittala.
Verslunin var opnuð í júní og
hefur gengið vel, að sögn Maaritar
sem verður fyrir svörum. „Ég
hugsa mikið til hefðbundinnar
hönnunar eins og þessara handofnu
bómullarmotta sem við erum með,“
segir hún en motturnar sem hún á
við eru sérhannaðar fyrir búðina
og aðeins til í fáum eintökum.
Finnar hanna ekki vöru bara til
þess að gera eitthvað nýtt, útskýrir
hún. „Það verður alltaf að vera
eitthvað nýtt í hönnuninni, sem
virkar betur en það sem er þegar
til.“
Annað einkenni á finnskri hönn-
un er grafísk og litrík hönnun, sem
er áberandi í búðinni. „Íslendingar
skilja finnskt formtungumál mjög
vel. Það er mjög svipað og á Ís-
landi og margt líkt því sem ís-
lenskir hönnuðir eru að gera
þó sjónarhornið sé aðeins
annað,“ segir hún.
Maarit er með
hálsmen sem gert
er úr afgangsleðri
úr húsgagnaiðn-
aðinum, ný gerð af
perlufesti, segir hún en
þetta byrjaði sem heim-
ilisiðja hjá einni konu.
„Mér finnst gaman að
finna svona vörur, eitthvað
VERSLUNIN SUOMI PRKL! VIÐ LAUGAVEG SELUR EIN-
VÖRÐUNGU HÖNNUNARVÖRUR FRÁ FINNLANDI
Finnskur
fjársjóður
ÍSLENDINGAR SKILJA FINNSKT FORMTUNGUMÁL MJÖG VEL,
AÐ SÖGN MAARITAR KAIPAINEN, ANNARS EIGANDA
HÖNNUNARVERSLUNARINNAR SUOMI PRKL!
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is
Maarit fyrir framan búðina
sem er jafn forvitnileg að
utan sem innan.
Skemmtilegur reyk-
skynjari frá Lento.
Þessi Hai-stígvél frá Nokia
hafa verið í uppáhaldi hjá
Finnum frá því á sjöunda
áratugnum.
Mikið úrval endurskinsmerkja er í búðinni. Hér má sjá blóm
sem var sérstaklega framleitt fyrir Helsinki Design Capital
2012, Angry Birds-endurskinsmerki og fyrsta endurskins-
merkið sem framleitt var í heiminum og er enn í framleiðslu.
D Ý N U R O G K O D D A R
Elskaðu að vakna!
Heimili og hönnun