Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 28
H allgrímur Jónasson ræður ríkjum á veit- ingastað Icelandair hótelsins á Akureyri. Staðnum verður fljótlega gefið nafnið Aurora – sem er vel við hæfi, því á hótelinu munu í vetur gista hátt í 3.000 útlendingar sem koma gagngert til bæjarins til þess að skoða norðurljós; Aurora Bo- realis. Einhverjir gesta hótelsins leggja sér líklega gæs til munns í vetur. Matreiðslumeistarinn, sem sjálfur er forfallinn veiðimaður, gefur hér lesendum Morgunblaðsins upp- skrift, og góð ráð. Vanda skal til verka Hallgrímur bendir á að gera megi ráð fyrir einni klukkustund í að plokka gæs og svíða. „Betra er að gera það úti við, jafnvel þannig að setið sé á nettum stól og plastpoki sé undir svo hægt sé að setja fiðrið beint ofan í. Það fýkur þá ekki allt í kring. Reikna má með um að bil hálftíma í að plokka gæsina og öðru eins í að svíða hana. Við hvort tveggja þarf að vanda sig og því mjög mikilvægt að gefa sér góðan tíma en flýta sér ekki.“ Í stuttu máli er ferlið svona, seg- ir Hallgrímur:  Skerið vængi og lappir af við liðamót. Ekki taka hausinn af!  Reytið fuglinn eins vel og þið getið alveg vel upp á háls. Gott er að halda við skinnið með hinni hendinni á móti til að fitan fari ekki með fiðrinu.  Hengið fuglinn upp á hausnum og svíðið fiður sem hefur ekki náðst af, en ekki hafa of skarpan hita. Hægt er að notast við snúru- staur úti í garði eða annað tilfall- andi sem hæfir. Passa að hafa fuglinn í þeirri hæð að þægilegt sé að vinna með hann.  Burstið eða skafið fuglinn og svíðið aftur. Passa sem fyrr að bera hitann ekki of nálægt fugl- inum. Ef farið er of geyst er hætta á að innri fitan bráðni en hana vill maður helst eiga til að nota í ofnsteikingu.  Af með höfuð – á fuglinum! – þegar búið er að svíða vel. Ekki að höggva höfuðið af fyrr, því best er að halda í það þegar unnið er með fuglinn, í stað þess að eiga á hættu að fitan fari af ef haldið er í skrokkinn sjálfan.  Næst er að opna fuglinn með hníf. Skera skal frá bringubeini og aðeins aftur fyrir varpop. Ekki skera of djúpt til að skemma ekki innyflin. Takið þau öll úr.  Geymið innyfli; fóarn, lifur og hjarta fyrir soð. Þegar þarna er komið sögu er fuglinn tilbúinn til steikingar. Hallgrímur segir nauðsynlegt að hafa um það bil 250 grömm af smjöri við höndina þegar fuglinn er steiktur og hella því bræddu yfir bringu og læri á 10 til 15 mín- útna fresti. Þannig verði þeir hlut- Mikilvægt að gefa sér góðan tíma GÆS ER HERRAMANNSMATUR SEM ÖNNUR VILLIBRÁÐ. HALLGRÍMUR JÓNASSON, YFIRMATREIÐSLUMAÐUR Á ICE- LANDAIR HÓTELINU Á AKUREYRI, RÆÐIR VEIÐIMENNSKU OG GEFUR UPPSKRIFT AÐ GÓMSÆTRI, FYLLTRI GÆS. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Hallgrímur búinn að reyta gæsina og nýbyrjaður að svíða hana með gasinu. … og loks sviðin af vandvirkni. Fyrst skal skera af lappir og vængi … … síðan er gæsin reytt varlega … 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 07. 10. 2012 Matur og drykkir „Það er engin launung að ég stunda alla þá veiði sem ég kemst í,“ segir Hallgrímur Jón- asson. „Þó að sumarið hafi verið magurt hjá mörgum veiddi ég 15 laxa. Fékk aflann einmitt úr reyk í vikunni, ein 20 kíló af laxi og sil- ungi. En það er auðvitað bara brot af því sem maður veiðir því mestu er sleppt aftur.“ Hann kveðst fá langmest út úr laxveiðinni og því að fara á rjúpu. Er löngu farinn að hlakka til þess að ganga til rjúpna á ný. Hallgrímur, sem er fæddur á Akureyri, bjó í 17 ár austur á landi og er mikill áhugamaður um hreindýraveiðar. Hann var ekki svo heppinn að næla í leyfi að þessu sinni, en fékk að fljóta með sem aðstoðarmaður. Gæsir skaut hann í haust víða í Eyjafirði eða nálægum sveitum. Mest í Hörgárdal. „Mér finnst ég verða að sinna veiðigyðjunni í góðra vina hópi, ef ég næ því ekki tærist ég hrein- lega upp. Þá er nauðsynlegt að eiga góða eiginkonu sem skilur þetta brambolt í manni.“ En hún nýtur vissulega góðs af þegar kræsingarnar eru bornar á borð … Hallgrímur matreiðslumeistari og skytta í leyni í Hörgárdalnum nýverið. Tærist upp ef ég get ekki sinnt veiðigyðjunni FRUMHVÖT MANNSINS AÐ VEIÐA SÉR TIL MATAR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.