Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.10.2012, Síða 24
E
f einhver staður á heimilinu er athvarf frá áreiti hversdagsleikans þá er það
svefnherbergið. Svefnherbergið á að vera staður þar sem hægt er að slaka á
og láta sér líða vel. Nokkrir hlutir þurfa samt að vera í lagi eins og birtan í
herberginu. Það þarf að vera gott loftljós fyrir þrif og þegar þarf að leita í
skápunum. Ekki er verra ef ljósið er fallegt og það getur komið sér vel að hafa dimmer
á því. Ef herbergið er lítið er betra að hafa ljósið í kúpli en ekki velja fyrirferðarmikið
hangandi ljós. En líka er mikilvægt að hafa góða lampa við rúmið því fátt er notalegra
en að lesa uppi í rúmi. Náttborð verður líka að vera sitt hvorum megin við rúmið ef
tveir deila rúmi og á það að vera sem næst hæð rúmsins, að minnsta kosti ekki hærra.
Gott er að hafa hirslu í því, eina lokaða fyrir sitthvað smálegt og aðra opna fyrir bækur.
Hluti af því að halda áreitinu frá svefnherberginu getur verið að mála það í hlut-
lausum litum og velja vandlega hlutina inn í herbergið. Ef stólinn í herberginu gerir
ekkert nema að safna fötum í hrúgu, af hverju ekki bara fjarlægja hann? Til að skapa
munaðartilfinningu er svo kjörið að vanda efnisvalið, þykkar gardínur eða velúr-
rúmteppi eru þar sterkur leikur. Hótelherbergi geta verið ákveðin fyrirmynd, mjúkar
mottur á gólfi taka vel á móti manni að morgni. Og ekki gleyma að búa um!
Svartur og hvítur litur
passa alltaf vel saman
og skapar samsetningin
stílhreint yfirbragð.
HVÍLDARHREIÐUR Á HEIMILINU
Svefnherbergið
er athvarf
SVEFNHERBERGIÐ ER ÞAÐ ALLRA HEILAGASTA Á HEIMILINU OG ÞARF
MARGT AÐ HAFA Í HUGA TIL AÐ HALDA ÞESSU ATHVARFI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
* Í staðinn fyrir höf-uðgafl er hægt að nota
eitthvert fallegt skraut. Líka
er gott ráð til að fá kar-
akter í herbergið að vegg-
fóðra einn vegg, vegginn
sem er fyrir aftan hjóna-
rúmið. Þannig verður
veggfóðrið eins konar höf-
uðgafl og rammar inn
rúmið. Stóri glugginn spillir
ekki fyrir.
* Fallegur höfuðgaflgetur gert gæfumuninn.
Höfuðgafl úr við er glæsi-
legur og gefur líka ákveðna
mýkt í herbergið. Þó svefn-
herbergið sé ekki málað í
afgerandi litum er gott ráð
að nota skæra púða í takt
við tískuna, árstíðirnar og
eftir því sem smekkurinn
breytist. Skærgulur er fal-
legur áherslulitur.
AFP
Heimili og hönnun*Halla Bára Gestsdóttir leggur á borð en á borðið notar hún rúmteppi sem hún litaði »26