Morgunblaðið - 04.10.2012, Side 1
F I M M T U D A G U R 4. O K T Ó B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 232. tölublað 100. árgangur
TENGIR SAMAN
ULLARÁHUGA OG
FERÐAÞJÓNUSTU
ÚTFLUTNINGUR
ÞUNGAMIÐJAN
DANSSPOR FYRIR
KLARINETTU-
LEIKARA
MARTIN FRÖST MEÐ SÍ 42TÆKIFÆRI Í ULLINNI 10
Viðtal við Eggert Benedikt
Guðmundsson,
nýráðinn forstjóra N1
Húsleit Sérsveit ríkislögreglustjóra við fé-
lagsheimili Outlaws í Hafnarfirði.
Um tugur manna var handtekinn
í umfangsmiklum aðgerðum lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
og sérsveitar ríkislögreglustjóra í
gærkvöldi. Aðgerðirnar virðast
meðal annars hafa beinst gegn
vélhjólagengjum.
Húsleitir voru gerðar á fjórum til
fimm stöðum á höfuðborgarsvæð-
inu, meðal annars í félagsheimili
Outlaws í Hafnarfirði. Lagt var
hald á nokkurt magn vopna í leit-
unum. Aðeins tvær vikur eru síðan
sjö meðlimir Outlaws voru hand-
teknir í aðgerðum lögreglu.
Rassía gegn
vélhjólagengjum
Meira á leiðinni
» ESB studdi sjö verkefni
um rúmlega 1.900 milljónir á
landsáætlun IPA fyrir 2011.
» ESB hefur styrkt tvö verk-
efni um 434 milljónir í lands-
áætluninni fyrir þetta ár.
» Fleiri verkefni verða
styrkt.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Evrópusambandið styrkir níu íslensk
verkefni með IPA-styrkjum um 2.346
milljónir króna og er þess að vænta að
verkefnum muni fjölga.
Verkefnin níu koma að mestu leyti
til framkvæmdar í ár og á næsta ári.
Mikill áhugi er á styrkjunum og
sóttu 130 námskeið Byggðastofnunar
um þá í Reykjavík í gær og fyrradag,
að sögn Aðalsteins Þorsteinssonar,
forstjóra stofnunarinnar.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir menn líta svo á að styrkirnir séu
hluti af umsóknarferlinu. Þá séu
styrkirnir óafturkræfir.
Talið vera hluti af umsókninni
„Það eru ekki aðeins sveitarfélögin
sem eru að kynna sér styrkina heldur
líka samstarfsaðilar eins og í mat-
væla- og sjávarútvegsklösum. Það
eru allir að skoða þetta.
Menn líta á þetta sem tækifæri til
að fá fjármagn í verkefni,“ segir Hall-
dór sem kveðst ekki sjá að afstaða
manna til inngöngu í ESB hafi áhrif á
áhuga þeirra á styrkjunum.
Jón Bjarnason, þingmaður VG,
segir styrkina hluta af aðlögun. „ESB
veifar styrkjunum sem gulrótum fyrir
sveitarfélög og stofnanir. Styrkirnir
hafa það hlutverk að innleiða hér innri
gerð stofnana og stjórnsýslu sem fell-
ur að ESB. Sveitarfélög og stofnanir
fara að beina áherslum í þá átt sem er
ESB þóknanlegt til að fá styrkina.“
Margir vilja styrki frá ESB
Fjölmenni á kynningarfundi um IPA-styrki 2.346 milljónir í styrki 2012-2013
Sveitarfélög áhugasöm Þingmaður VG segir IPA-styrkina „gulrót“ frá ESB
MÚtdeila vel á þriðja »4
Morgunblaðið/Kristinn
Hluthafi Eignir JMS Partners námu
450 milljónum í árslok 2011.
Umsvif breska hlutafélagsins JMS
Partners, sem er að tveimur þriðja í
eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Gunnars Sigurðssonar, fyrrverandi
forstjóra Baugs Group, jukust um-
talsvert árið 2011, en heildareignir
þess námu 2,27 milljónum punda í
árslok og höfðu tífaldast á árinu.
Þetta kemur fram í nýjum gögn-
um frá fyrirtækjaskrá Bretlands
sem Morgunblaðið hefur undir hönd-
um. Félagið var upphaflega stofnað
árið 2009 til að selja ráðgjöf til PwC
vegna vinnu fyrirtækisins við að
halda utan um eignarhluti þrotabús
gamla Landsbankans í breskum fé-
lögum sem áður voru í eigu Baugs.
Gunnar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri JMS Partners, sagði í
samtali við blaðið að umsvif félagsins
á liðnu ári væru ekki sökum ráð-
gjafavinnu fyrir PwC. „Það samstarf
er löngu búið,“ heldur ráðgjöf í
tengslum við „alls konar verkefni
fyrir félög í Bretlandi,“ en vildi ekki
útskýra nánar hvers konar verkefni
um væri að ræða. JMS Partners
hagnaðist um 200.000 pund 2011.
Hagnast á ráðgjöf í London
Eignir JMS Partners meira en tífölduðust á síðasta ári
MEignirnar hafa... »Viðskiptablaðið
Það blés hraustlega á sprengjusérfræðinga í
Hvalfirði í gær. Hundruð sprengjusérfræðinga
frá tíu löndum komu saman til æfinga þar og í
kringum Keflavík og var það liður í Northern
Challenge sem er fjölþjóðleg æfing sprengju-
sérfræðinga.
Tilgangurinn var að æfa viðbrögð við hryðju-
verkum þar sem heimatilbúnum sprengjum
hefur verið komið fyrir.
Undirbjuggu viðbrögð við hryðjuverkum í Hvalfirði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Ég myndi
segja að þetta
væru frekar ein-
föld ljóð. Ég
stefni að tær-
leika og ein-
faldri, skýrri
hugsun,“ segir
Dagur Hjartar-
son, rithöfundur
og ljóðskáld, sem
hlaut í gær Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar fyrir
ljóðahandritið Þar sem vindarnir
hvílast – og fleiri einlæg ljóð. Faðir
Dags, Hjörtur Marteinsson, var
sæmdur sömu verðlaunum árið
2000, fyrir skáldsöguna AM 00.
Dagur hlaut fyrir þremur vikum
Nýræktarstyrk Bókmenntasjóðs
fyrir smásagnahandritið Fjarlægð-
ir og fleiri sögur. » 42
Feðgar sæmdir
sömu verðlaunum
Dagur Hjartarson
Milli 300 og 400 milljónir króna
þarf til að ljúka við nýtt safnahús
yfir Lækningaminjasafnið á Sel-
tjarnarnesi ef ljúka á fram-
kvæmdum í samræmi við upphaf-
legar teikningar. Byggingin er
fokheld og henni hefur verið lokað.
Heildarkostnaður við safnbygg-
inguna var upphaflega áætlaður
um 345 milljónir króna. Bæjarstjór-
inn á Seltjarnarnesi segir að ljóst sé
að sveitarfélagið eitt og sér muni
ekki geta klárað framkvæmdirnar.
Nú standa yfir viðræður við
menntamálaráðuneytið um að
koma inn í verkefnið til að geta
klárað það. Ríkið hefur þegar lagt
töluverða fjármuni í verkefnið. »12
Lækningaminjasafn
fram úr áætlun
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG