Morgunblaðið - 04.10.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 04.10.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er jákvætt að skoða eignasam- setningu Orkuveitunnar og reyndar allt sem horfir til framfara í fjárhag og rekstri fyrirtækisins,“ segir Har- aldur Flosi Tryggvason, stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur, um þá hugmynd sem forveri hans í stjórn- inni, Guðlaugur Sverrisson, varpaði fram í blaðinu í gær um að selja lífeyr- issjóðum Sleggjuna svonefndu, raf- orkustöðina á Hellisheiði, í verkefna- fjármögnun. Með slíkri sölu telur Guðlaugur að Orkuveitan geti aflað sér 15 milljarða króna og allt að 25 milljarða ef lán fæst áfram hjá Evrópska fjárfesting- arbankanum. Ýmsum möguleikum velt upp „Við höfum ekki sérstaklega rætt um að selja Sleggjuna en alls konar möguleikum hefur verið velt upp. Málefni Orkuveitunnar eru mjög í vinnslu,“ segir Haraldur Flosi. Hann bendir á að Sleggjunni sé ætlað að þjóna verksmiðju Norðuráls í Helguvík líkt og hinni óbyggðu Hverahlíðarvirkjun. Sem kunnugt er hefur Orkuveitan hafið viðræður við lífeyrissjóðina um að síðarnefnda virkjunin verði í sameiginlegu eign- arhaldi OR og sjóðanna í gegnum svo- nefnda verkefnafjármögnun. Harald- ur Flosi vill fá niðurstöðu í því máli áður en lengra er haldið. „Verkefnafjármögnun með lífeyr- issjóðunum er ekki ný hugmynd. Sú vinna er í gangi varðandi Hverahlíð- arvirkjun og við skulum byrja á því,“ segir hann og varpar einnig fram þeirri hugmynd að hugsanlega sé betri leið að lífeyrissjóðir og aðrir eigi innviði á móti opinberum aðilum, líkt og tíðkast mjög í Noregi. Haraldur segir góða reynslu af slíku sameiginlegu eignarhaldi þar í landi á orkumannvirkjum og þess vegna gæti minnihlutaeign lífeyris- sjóðanna komið til greina. „Athyglisverð tilraun í þessa veru gæti verið fólgin í sölu á minnihluta í Gagnaveitu Reykjavíkur sem nú er að vænta,“ segir hann. Metum alla fjárfestingarkosti „Við höfum ekkert kynnt okkur málið og þekkjum ekki rekstur og áhættu þessa fyrirtækis,“ segir Gunn- ar Baldvinsson, formaður Landssam- taka lífeyrissjóða, um hugmynd Guð- laugs Sverrissonar varðandi Sleggj- una og aðkomu lífeyrissjóðanna. „Lífeyrissjóðum ber að ávaxta eignir með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. Við metum alla fjárfestingarkosti út frá þessari forsendu og það hefur ekki verið gert í þessu tilviki. Það er hins vegar ljóst að lífeyrissjóðir hafa áhuga á að fjárfesta í fyrirtækjum sem starfa í orkugeiranum, sérstak- lega ef rekstur skilar stöðugu greiðsluflæði. Það kemur vel til greina að skoða þetta fyrirtæki eins og aðra fjárfestingarkosti,“ segir Gunnar enn- fremur. Taka ágætlega í hug- myndina um Sleggjuna  Kaup í Sleggjunni koma til greina hjá lífeyrissjóðunum  Stjórnarformaður OR vill þó ljúka viðræðum um Hverahlíð Haraldur Flosi Tryggvason Gunnar Baldvinsson Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Gagnsæisgáttir, þar sem skatt- greiðendur geta séð svart á hvítu hvernig farið er með skattfé þeirra, auka ekki bara á gagnsæi, heldur stórauka aðhald að stjórnvöldum, segir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks. Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag tillögu um aukið aðgengi íbúa að fjármál- um borgarinnar en samkvæmt henni verða upp- lýsingar um allar kostnaðar- greiðslur borgarinnar gerðar al- menningi tiltækar með rafrænum hætti á netinu. Kjartan segir gáttina ekki munu kalla á flókinn hugbúnað né stór- tækar breytingar á fyrirliggjandi bókhaldskerfi, heldur verði fram- kvæmdin fólgin í því að þýða við- komandi upplýsingar yfir á til þess gerða heimasíðu. „Þetta yrði gjörbreyting á allri framlagningu upplýsinga. Fram að þessu höfum við bara verið að sjá einhverjar heildartölur, debet og kredit, og einhverja stóra súpu sem við vitum ekkert hvað inniheldur,“ segir Kjartan. Hann segir dæmi að utan sýna að stofnkostnaður við gáttir af þessu tagi hafi verið afar hóflegur og að þær hafi jafnvel sparað stjórnvöld- um stórfé á stuttum tíma. Til dæmis hafi gagnsæisgátt Texas-ríkis kost- að um 47 milljónir króna en talið sé að hún hafi sparað ríkissjóðnum rúmlega milljarð króna á einu ári, með aðgerðum sem gripið hafi verið til í kjölfar ábendinga. „Borgarkerfið veltir hundrað milljörðum, og ríkiskerfið meiru, og flækjustigið er mikið. Við fáum oft ábendingar um eitthvað sem má betur fara en það getur verið mjög tímafrekt að vinna úr þeim; að afla upplýsinga, senda fyrirspurnir út í kerfið, skoða upplýsingarnar og fá útskýringar á þeim,“ segir Kjartan. Með gáttinni verði almennum borg- urum hins vegar gert kleift að fá upplýsingar beint af internetinu. Kjartan segist sjá fyrir sér að auk þess að hægt verði að fletta upp greiddri upphæð fyrir ákveðinn út- gjaldalið, verði einnig hægt að fá skyldar upplýsingar, s.s. um hvaða verk var að ræða og hver fram- kvæmdi. Þannig verði allar upplýs- ingar um kostnaðargreiðslur borg- arinnar aðgengilegar á einum stað, utan launa- og bótagreiðslna, sem yrðu undanskildar vegna persónu- verndarsjónarmiða. Gagnsæisgáttir veita aðhald og spara peninga  Launa- og bótagreiðslur undanskildar Morgunblaðið/Heiddi Gátt Almenningur mun hafa aðgang að öllum kostnaðarupplýsingum. Kjartan Magnússon um Tísku og förðun föstudaginn 12.október. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna veturinn 2012 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihlutum auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. SÉRBLAÐ Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt sérblað TÍSKA & FÖRÐUN Pöntunartími auglýsinga: er fyrir klukkan 16 mánudaginn 8.október NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími 569-1105 kata@mbl.is – Meira fyrir lesendur Förðunarvörur.• Förðun - litir, straumar og stefnur í• haust og vetur. Krem fyrir andlit og líkama.• Umhirða húðar.• Hártískan í vetur.• Ilmvötn fyrir dömur og herra.• Brúnkukrem.• Neglur og naglalakk.• Fylgihlutir.• Skartgripir.• Nýjar og spennandi vörur.• Haust- og vetrartíska kvenna.• Haust- og vetrartíska karla.• Íslensk hönnun.• Ásamt fullt af öðru spennandi efni.• MEÐAL EFNIS: Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Vinkonurnar Anna Sigríður Sig- urjónsdóttir myndhöggvari og Christine Buchholz ætla að taka þátt í 166 kílómetra hlaupi í Andalúsíu á Spáni síðar í þessum mánuði til styrktar MS-félaginu. Anna Sigríður segir að hug- myndin hafi kviknað hjá sér fyrir nokkuð löngu síðan en systir hennar er með MS-sjúkdóminn. Hún segir að ein af ástæðunum fyrir því að hún vildi styrkja MS-félagið hafi verið setrið sem það rekur þar sem sjúklingar geta komið, sótt æfingar og dægradvöl. „Þessi sjúkdómur er erfiður því þú veist aldrei hvað getur gerst og hvar þú stendur. Óvissan er svo mik- il. Því er svo mikið atriði að styrkja MS-félagið og starfsemi þess. Þetta eru svo mikils virði fyrir fólk sem er veikt,“ segir hún. Stefndi á 100 kílómetra Sjálf hefur Anna Sigríður þurft að sigrast á krabbameini. Þegar hún var í krabbameinsmeðferðinni setti hún sér það markmið að hlaupa hundrað kílómetra hlaup þegar hún fengi krafta til. Það tókst henni einu ári eftir að hún lauk meðferðinni. „Þetta var stórkostlegur sigur fyrir mig. Það er fullt af fólki sem stendur frammi fyrir því að vera með krabbamein og það eru ekki all- ir jafnheppnir og ég. Ég vonast til þess að þetta hlaup geti virkað sem ákveðinn stuðningur og fólk geti átt- að sig á því að það er ýmislegt hægt að gera þó að maður lendi í áföllum,“ segir hún. Hlaupið á Spáni nefnist „Última Frontera“ eða „ystu mörkin“. Það er hlaupið frá bænum Loja í nágrenni Granada og er hlaupinn hringur í fjallendinu þar í kring. Keppendur hafa 32 klukkustundir til þess að ljúka hlaupinu. Það stendur yfir dagana 20. og 21. október. Anna Sigríður segist ekki setja sér tímamarkmið fyrir hlaupið held- ur stefni hún aðeins að því að klára það. „Stór hluti af því að svona hlaup gangi upp er að maður nái að næra sig og vökva almennilega. Maður þarf að vera eins vel undirbúinn og hægt er,“ segir hún. Hægt er að heita á Önnu Sigríði og Christine með því að leggja inn á reikning 0115-26-102713, kt. 520279- 0169 eða hringja í síma 901-5010, 5030 eða 5050 og dragast þá 1.000, 3.000 eða 5.000 kr. af símreikningi. Hlaupa út á ystu mörk á Suður-Spáni Hlaupagarpar Christine (t.v.) og Anna Sigríður (t.h.) á fleygiferð í fimm daga hlaupi í Ölpunum í september.  Safna fé fyrir MS-félagið með því að þreyta 166 km hlaup  Hljóp 100 kílómetra eftir að hafa sigrast á krabbameini

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.