Morgunblaðið - 04.10.2012, Side 10
Guðrún Vala Elísdóttir
gve@ismennt.is
R
agnheiður Sjöfn Jó-
hannsdóttir er ein af
þessum konum sem
hafa ýmislegt á prjón-
unum í orðsins fyllstu
merkingu. Hún starfar sem sér-
kennari hjá Lágafellsskóla í Mos-
fellsbæ í hálfu starfi en hefur und-
anfarin misseri einbeitt sér að því
að tengja saman áhugamálið og
ferðaþjónustu. Hún er ferðaskipu-
leggjandi og forfallinn handverks-
listamaður sem hefur sérstakan
áhuga á ull og ullarvörum, enda
komin með yfir 40 ára reynslu af
því að spinna, lita, prjóna og þæfa.
Margir þekkja „vinsælu“ sem hún
hannar fyrir fjöruga fætur.
Segir ullarsögur og kennir
að prjóna
Fyrir einu ári lét hún slag
standa og stofnaði fyrirtækið „Cult-
ure and craft“ sem m.a. hefur það
að markmiði að kenna enskumæl-
andi fólki að prjóna auk þess að
bjóða upp á sögugöngur í Mos-
fellsbæ, þar sem saga ullarinnar á
Íslandi er rakin.
„Þessar göngur taka u.þ.b.
tvær klukkustundir og leiðsögnin
fer fram á ensku. Ég hef einnig far-
ið í gönguferð með Íslendinga, ör-
lítið öðruvísi og bara ein klst. en
Mosfellsbær er vagga ullariðnaðar-
ins hér á landi og hér er sagan, en
iðnframleiðsla hófst á ullarvörum
hér fyrir meira en öld,“ segir Ragn-
heiður. Hún býður jafnframt upp á
þriggja klukkustunda „prjóna-
smiðjur“ þar sem hún kennir fólki
að prjóna úr íslenskri ull, en hægt
er að fá lengri námskeið allt upp í
viku, fyrir þá sem vilja læra meira.
Ullarhátíð í Englandi
„Culture and Craft“ er í sam-
starfi við 12 ára gamla breska
ferðaskrifstofu sem heitir Iceland
traveller sem sérhæfir sig í Ís-
landsferðum. Ýmsar fleiri hug-
myndir eru í farvatninu. „Nú er ég
á fullu við að skrá áhugasamt fólk í
ferð til Suður-Englands á ullarhá-
tíðina Festival of Knitting UNRA-
VEL en þar má sjá ullarframleið-
endur vinna ull, í höndum eða með
vélum. Þar eru hönnuðir og hand-
verksfólk að sýna og selja hand-
verkið sitt, helst má líkja þessari
hátíð við sýninguna á Hrafnagili, en
eingöngu er horft á ullartengdar
vörur,“ segir Ragnheiður. Á
UNRAVEL eru bæði stórfyrirtæki
og óþekktir aðilar að koma sér og
sínu á framfæri og segir Ragnheið-
ur að stórmerkilegt sé að sjá mis-
munandi vinnslustig á ullinni og
þarna er boðið upp á sýnikennslu
og vinnusmiðjur til að læra. Sýn-
ingin er haldin 24. og 25. febrúar á
næsta ári en bóka þarf þátttöku
fyrir 20. október næstkomandi.
„Sýninguna ber upp á helgi, en
til viðbótar er í boði að heimsækja
búgarð þar sem Alpaca-sauðfé, sem
ein af fjórum tegundum sauðfjár í
Bretlandi. Það er dálítið merkilegt
að geta skoðað Alpaca-ull á nokkr-
Sér tækifæri í ullinni
Ragnheiður Sjöfn Jóhannsdóttir tengir saman áhugamál sitt og ferðaþjónustu. En
Ragnheiður Sjöfn hefur sérstakan áhuga á ull og ullarvörum og skipuleggur nú
ferð á ullarhátíð í Suður-Englandi næstkomandi febrúar.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Tækifæri Ragnheiður er mikil áhugamanneskja um ull.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Sýning á ljósmyndum Trausta Ólafs-
sonar (1891-1961), Frá Breiðavík til
Kaupmannahafnar, stendur nú yfir á
Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Á sýningunni eru sýndar ríflega 20
ljósmyndir af um 200 mynda plötu-
safni Trausta Ólafssonar sem varð-
veitt er á Ljósmyndasafni Reykjavík-
ur. Flestar myndirnar eru teknar á
árunum 1919-1928, í heimasveit hans
fyrir vestan, í Kaupmannahöfn á
námsárunum og í heimabæ eiginkon-
unnar, Maríu S. Petersen (1898-
1965), Klakksvík í Færeyjum.
Trausti var á sínum tíma allþekktur
í íslensku samfélagi fyrir störf sín í
þágu efnafræðirannsókna og gegndi
á því sviði ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir íslenska ríkið. Hann fæddist í
Breiðavík í Rauðasandshreppi í Vest-
ur-Barðastrandarsýslu sumarið 1891.
Hann útskrifaðist frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1915 og
sigldi sama ár til Kaupmannahafnar
þar sem hann hóf nám í efnaverk-
fræði við Den Polytekniske Lærean-
stalt. Við heimkomuna tók Trausti við
stöðu forstöðumanns Efnarann-
sóknastofnunar ríkisins. Hann sinnti
einnig ýmsum öðrum störfum og var
sæmdur prófessorsnafnbót af for-
seta Íslands sumarið 1945.
Frá Breiðavík til Kaupmannhafnar
Ljósmynd/Trausti Ólafsson
Herra Einar Ólafur Sveinsson há-
skólastúdent í Kaupmannahöfn.
Ljósmyndir Trausta Ólafssonar
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
Helgarsprengja
Leðurjakkar, úlpur , skyrtur
25% afsláttur
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Sunnlenska bókakaffið á Selfossi er
kærkominn kostur fyrir unnendur
hverskonar bóka en ekki síður fyrir
þá sem kunna að meta að sitja í nota-
legu umhverfi umvafðir bókum og
drekka gott kaffi. Og fá sér kannski
með því vöfflu eða eitthvert annað
góðgæti sem vert hússins framreiðir
af ást og umhyggju. Persónuleg þjón-
usta og spjall er líka eitthvað sem
margir vilja finna á kaffihúsum og
nóg er af slíku á Sunnlenska bóka-
kaffinu, en það hefur orð á sér fyrir
að vera einstaklega heimilislegt. Þau
gleðitíðindi hafa nú borist fyrir þá
sem ekki eiga heimangengt eða búa
fjarri Sunnlenska kaffihúsinu, en vilja
gjarnan kaupa einhverja af þeim bók-
um sem þar fást, þá hefur vefsíðan
þeirra www.netbokabud.is nú verið
opnuð fyrir almenning. Þar kennir
sannarlega ýmissa grasa. Ekki aðeins
eru þar nýjar bækur í öllum flokkum,
heldur einnig forvitnilegt fágæti og
þá helst fornt, sérstakur flokkur árit-
aðra bóka, ættfræði, þjóðsögur, forn-
bókmenntir og fleira.
Einnig er gagnvirkt blogg á síðunni
um efni tengt bókunum í versluninni.
Vefsíðan www.netbokabud.is
Hvítir hrafnar Bók eftir Þórberg Þórðarson sem til er undir flokknum Fágæti.
Fágæti og fleiri bækur
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Hljómsveitin The Saints of Boogie
street heldur tónleika í Landnáms-
setri Íslands fimmtudaginn 4. októ-
ber. The Saints of Boogie Street er
hljómsveit sem flytur lög eftir snill-
inginn Leonard Cohen. Sveitin hefur
verið starfandi undanfarin þrjú ár og
haldið tónleika vítt og breitt um land-
ið við góðan orðstír. Hljómsveitin gaf
nýverið út geisladisk með lögum
meistarans og fékk hann nafnið
Leonard Cohen Covered en þar er að
finna 14 af helstu perlum Cohen í
flutningi tveggja söngkvenna í nýjum
fallegum útsetningum.
Hljómsveitina skipa þau;
Esther Jökulsdóttir söngur
Soffía Karlsdóttir söngur
Kristinn Einarsson píanó
Ingólfur Sigurðsson trommur
Ólafur Kristjánsson bassi
Pétur V. Pétursson gítar
Hefjast tónleikarnir klukkan 21 og
kostar 2.000 krónur inn.
Endilega …
… hlýðið á
tónleika í
Landnámssetri