Morgunblaðið - 04.10.2012, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
„Þetta er ákaflega gleðileg þróun
enda finnum við fyrir jákvæðu and-
rúmslofti í samfélaginu,“ segir Ást-
hildur Sturludóttir, bæjarstjóri
Vesturbyggðar. Samkvæmt upplýs-
ingum sem hún hefur frá Þjóðskrá
eru íbúar 940 í sveitarfélaginu öllu
og hefur fjölgað um 40 frá því að
íbúarnir voru fæstir en það var fyr-
ir um tveimur árum.
Þéttbýlisstaðirnir Patreksfjörður
og Bíldudalur eru í Vesturbyggð
auk sveitasamfélaga á Barðaströnd,
Rauðasandi, í Örlygshöfn og víðar.
Íbúar voru um 1.400 þegar fjögur
sveitarfélög sam-
einuðust fyrir
átján árum undir
merkjum Vestur-
byggðar. Umtals-
verð fækkun varð
allt til ársins 2010
þegar talið er að
íbúatalin hafi ver-
ið komin niður í
890 manns.
Uppgangur
hefur verið í atvinnulífinu undan-
farin tvö ár. Mörg störf hafa orðið
til í fiskeldi og stækkun kalkþör-
ungaversmiðjunnar á Bíldudal. Þá
eru nokkrar framkvæmdir, til
dæmis við uppbyggingu hótels á
Patreksfirði. Útgerð og fiskvinnsla
er þó áfram meginstoð atvinnulífs-
ins.
„Þetta er stöðug
varnarbarátta“
„Það er talsvert af ungu fólki að
flytja heim eftir að hafa lokið fram-
haldsnámi. Það fær vinnu við upp-
bygginguna,“ segir Ásthildur.
Ekki er allt jafn jákvætt og nefn-
ir Ásthildur ákvarðanir Lands-
bankans og nú Íslandspósts um að
leggja niður afgreiðslur sínar á
Bíldudal. „Þetta er stöðug varnar-
barátta,“ segir bæjarstjórinn, „þeg-
ar við náum einu skrefi fram á við
kemur annað til baka“. helgi@mbl.is
Unga fólkið flytur aftur heim
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fjölgun Þorpin í Vesturbyggð eru aftur í sókn. Myndin er frá Patreksfirði.
Íbúum Vesturbyggðar hefur fjölgað um 40 á tveimur árum
Ásthildur
Sturludóttir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, átti sl. þriðjudag fundi með
Nitin Nohria, forseta Harvard Bus-
iness School, og David T. Ellwood,
forseta John F. Kennedy School of
Government, um þróun norðurslóða
og nauðsyn víðtækrar samvinnu um
rannsóknir á því sviði.
Í fréttatilkynningu frá forseta-
embættinu kemur fram að á fund-
unum var fjallað um aukinn áhuga
ríkja í öðrum heimshlutum á aðild að
stefnumótun og nýtingu auðlinda á
norðurslóðum. „Á fundinum með
forseta John F. Kennedy School of
Government var vísað til ýmissa
rannsókna sem unnar hafa verið á
vegum skólans og í viðræðum við
forseta Harvard Business School
kom fram áhugi hans á því að skól-
inn ynni sérstök rannsóknarverkefni
sem tengdust undirbúningi fram-
kvæmda, þróun nýrra siglingaleiða
og nýtingu auðlinda.
Niðurstaða beggja fundanna var
að skynsamlegt gæti verið að fræða-
stofnanir innan Harvard-háskóla
mynduðu samstarfsvettvang sem
gæti orðið þátttakandi í auknu sam-
starfi um málefni norðurslóða.“
Morgunblaðið/Eggert
Fundur Ólafur Ragnar ræddi við
forseta Harvard Business School og
Kennedy School of Government.
Ræðir mál
norðurslóða
í Harvard
Áhugi á að mynda
samstarfsvettvang
Á Októberhittingi Femínistafélags
Íslands á Hallveigarstöðum við Tún-
götu í kvöld kl. 20 verður umfjöll-
unarefnið „Stríðið gegn konum“.
Silja Bára Ómarsdóttir, al-
þjóðastjórnmálafræðingur og að-
júnkt við Stjórnmálafræðideild HÍ,
mun ræða um „stríðið gegn konum“
með áherslu á hlutverk kynfrelsis í
bandarísku forsetakosningunum en í
alþjóðapólitísku samhengi. „Það er
ekki aðeins í Bandaríkjunum sem
rætt er um að skerða yfirráðarétt
kvenna yfir eigin líkama. Í Tyrk-
landi var í vor rætt um að banna
fóstureyðingar eftir sjöttu viku með-
göngu og á Spáni í sumar kom fram
hugmynd um að þrengja réttinn til
fóstureyðinga,“ segir í tilkynningu.
Femínistar
ræða „stríðið
gegn konum“