Morgunblaðið - 04.10.2012, Page 16

Morgunblaðið - 04.10.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 SVIÐSLJÓS Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Nálægðin var svo mikil. Ég hneigð- ist fljótlega að félagsmálastússi. Áður en það kom til var ég farinn að leika aðeins á orgelið, stalst í það í kirkj- unni. Það kom allt hvað af öðru,“ segir Haraldur Júlíusson, sóknar- nefndarformaður og organisti Akureyjarkirkju í Vestur- Landeyjum. Har- aldur var lengi bóndi í Akurey og hefur starfað fyrir sókn og kirkju í meira en fjóra ára- tugi. Akureyjarkirkja var vígð 20. októ- ber 1912 og verður tímamótanna minnst við hátíðarguðsþjónustu í kirkjunni næstkomandi sunnudag. Áður hafði verið kirkja í Sigluvík í tæpa öld en Voðmúlastaða- og Siglu- víkursóknir voru sameinaðar um leið og ný kirkja var byggð í Akurey. Lengst hefur verið kirkja í Vestur- Landeyjum á Skúmsstöðum og er hennar getið á 12. öld. Hún var flutt að Sigluvík 1815. Einnig hafa verið kirkjur í Eystra- og Vestra-Fíflholti og bænhús í Álfhólum. „Ég held að Akurey hafi verið val- in af því að jörðin var miðsvæðis í Vestur-Landeyjum. Þá var þurrlent þar,“ segir Haraldur um staðarvalið. „Það var erfitt fyrir fólkið á bæjunum í vesturhluta sóknarinnar að sækja kirkju, jafnt í Akurey og Sigluvík, það var svo mikill vatnságangur að fólk komst ekki á milli bæja. Svo var landið þurrkað upp og vegir lagðir. Ég er helst á því að kirkjusókn hafi frekar minnkað við bættar sam- göngur,“ segir Haraldur. Þarf að vera hófstillt Akureyjarkirkja er byggð eftir teikningum Rögnvaldar Ólafssonar, arkitekts og húsameistara. Hún er járnvarin timburkirkja byggð á steinsteyptum grunni. Yfirsmiður var Tryggvi Árnason, kirkjusmiður úr Reykjavík, og Skúli Jónsson tré- smiður var honum til aðstoðar. Teikningarnar eru að mestu þær sömu og af Grindavíkurkirkju sem Rögnvaldur teiknaði og Tryggvi byggði. Grindavíkurkirkja var af- helguð 1982 eftir að Grindvíkingar höfðu byggt nýja kirkju. Kirkjunni í Akurey og umhverfi hennar hefur frá upphafi verið vel við haldið. Haraldur segir að kirkjan hafi verið máluð að utan fyrir þremur ár- um og þá var jafnframt gert við skemmdir á turni og smíðaður nýr kross. Í sumar var grindverk kirkju- garðsins málað. Það verk unnu skát- ar frá Belgíu í sjálfboðavinnu. Auk þess gróðursettu þeir um þúsund trjáplöntur við félagsheimilið Njáls- búð sem er í nágrenni kirkjunnar. Framundan er áframhaldandi við- hald. „Það þarf að skipta um glugga og taka kirkjuna í gegn að innan. Það er lítið um fjármagn og allt þarf þetta að vera hófstillt,“ segir Haraldur. Hann hefur unnið mikið við kirkj- una. „Maður er enn að stússast í þessu, hefur lítið annað að gera.“ Haraldur hefur verið formaður sóknarnefndar Akureyjarkirkju í rúm fjörutíu ár. Tók við embættinu af föður sínum, Júlíusi Bjarnasyni, sem jafnframt var meðhjálpari og hringjari í tæpa fjóra áratugi. „Já, maður hefur taugar til kirkj- unnar. Hún er eins og hluti af manni. Ég finn það sennilega enn betur þeg- ar ég hætti,“ segir Haraldur. Hann flutti í Hvolsvöll fyrir sex árum en hann hafði alist upp í Akurey, eftir að foreldar hans fluttu þangað austan úr Meðallandi þegar hann var barn að aldri. Íbúum fækkar Veruleg fækkun hefur verið í Ak- ureyjarsókn á þeim hundrað árum sem liðin eru frá byggingu kirkj- unnar. Er það sama þróun og víðar í sveitum landsins. Samkvæmt mann- tali í lok árs 1920 voru 287 íbúar í Ak- ureyjarsókn en voru 125 í lok árs 2010. Því hefur íbúum í sókninni fækkað um 162 á þessum tíma þrátt fyrir að svokallaðir Bakkabæir sem voru áður í Oddasókn hafi verið færð- ir til Akureyjarsóknar með ákvörðun kirkjuþings 2009. Akureyjarsókn tilheyrði Berþórs- hvolsprestakalli en frá 1988 Holts- prestakalli undir Eyjafjöllum eftir að prestaköllin voru sameinuð. Holts- prestakall var lagt niður í byrjun síð- asta árs. Þá færðust Landeyjasóknir til Breiðabólstaðarprestakalls. Kirkjan er eins og hluti af manni Akureyjarkirkja Viðhaldi kirkjunnar hefur frá upphafi verið vel sinnt. Kirkjan var máluð að utan fyrir fáeinum ár- um og í sumar var tréverkið í kringum kirkju og kirkjugarð málað. Ýmis verkefni eru þó framundan.  Öld liðin frá vígslu Akureyjarkirkju í Vestur-Landeyjum  Haraldur Júlíusson sóknarnefndarfor- maður hefur starfað fyrir kirkjuna sína í rúma fjóra áratugi  Hátíðarguðsþjónusta og kirkjukaffi Akureyjarkirkja » Akureyjarkirkja þjónar íbú- um Vestur-Landeyja. Kirkja var byggð þar 1912 þegar tvær sóknir voru sameinaðar. Þar er hún miðsvæðis og á þurrlendi. » Haraldur Júlíusson frá Ak- urey hefur verið organisti Ak- ureyjarkirkju frá 1966. Hann hefur verið formaður sókn- arnefndar í áratugi og tók við því embætti af föður sínum. Hundrað ára vígsluafmælis Akureyjarkirkju í Vestur- Landeyjum verður minnst með hátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 7. október næstkomandi, kl. 14. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, prédikar og sóknarpresturinn, Önundur S. Björnsson, þjónar fyrir altari. Kirkjukór Landeyja syngur undir stjórn Haraldar Júlíussonar organista. Að lokinni guðsþjónustu býður sóknarnefndin til sam- komu í félagsheimilinu Njálsbúð. Þar verður saga kirkj- unnar rakin. Kvenfélagið Bergþóra sér um veitingar. Sóknarbörn fyrr og síðar og allir aðrir velunnarar kirkju og kristni eru velkomnir, segir í tilkynningu frá sóknarnefndinni. Eftir breytingar á sóknaskipan nær Akureyjarsókn nú yfir allar Vestur- Landeyjar. Biskup Íslands prédikar HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA Á SUNNUDAG Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Meirihluti borgarstjórnar Reykja- víkur samþykkti á fundi sínum í vikunni að færa listaverkið Svörtu keiluna, eftir Santiago Sierra, sem staðið hefur fyrir framan Alþing- ishúsið frá því í byrjun þessa árs. Svarta keilan verður framvegis á hellulögðu torgi á horni Kirkju- strætis og Thorvaldsenstrætis. Engin sátt var um staðsetningu listaverksins í borgarstjórn og lagði borgarfulltrúi Vinstri grænna fram þá tillögu að Svarta keilan yrði lögð til hliðar. Í stað þess yrði efnt til samkeppni um minnisvarða um rétt fólks til borgaralegrar óhlýðni sem staðsett verði á svip- uðum slóðum. Tillagan var felld með níu atkvæðum gegn einu. Þá létu borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins bóka að þeir féllust ekki á tillögu meirihlutans og teldu mikilvægt að vinna að meiri sátt þegar taka ætti ákvarðanir um að setja niður listaverk á hátíðarstað borgarinnar. Einnig var á það bent að forsætisnefnd Alþingis hefði í tvígang mótmælt tillögu meirihlut- ans um staðsetningu verksins. Engu að síður fór svo að tillaga meirihlutans var samþykkt með níu atkvæðum gegn sex. Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Umdeilt verk Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni. Samþykkt að flytja Svörtu keiluna Haraldur Júlíusson Vandaðir og vottaðir ofnar Ofnlokasett í úrvali NJÓTTU ÞESS AÐ GERA BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA FINGERS 70x120 cm • Ryðfrítt stál KROM 53x80 cm • Aluminum / Ál COMB 50x120 cm • Ryðfrítt stál Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem gæði ráða ríkjum á góðu verði. Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.