Morgunblaðið - 04.10.2012, Síða 18

Morgunblaðið - 04.10.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 Rauði krossinn óskar eftir þrjú þús- und sjálfboðaliðum til þess að taka þátt í landssöfnun Rauða krossins, Göngum til góðs, á laugardag. „Þetta er kjörið tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og láta gott af sér leiða á sama tíma. Svo fær göngufólk á höfuðborg- arsvæðinu að slaka á frítt í sund- laugunum eftir gönguferðina," seg- ir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, í tilkynningu. Þetta er í sjöunda sinn sem Rauði krossinn býður Íslendingum að ger- ast sjálfboðaliðar í eina dagstund og ganga til góðs en söfnunin fer fram annað hvert ár. Sjálfboðaliðar eru hvattir til að finna næstu söfnunarstöð og skrá sig á www.raudikrossinn.is eða mæta beint á söfnunarstöð í sínu hverfi á bilinu 10-18 á laugardag. Þá má leggja söfnuninni lið með því að hringja í söfnunarnúmerin 904 1500, 904 3000 eða 904 5000 og dragast þá 1500, 3000 eða 5000 krónur af næsta símreikningi. Rauði krossinn óskar eftir sjálfboðaliðum Safnað Ungir sjálfboðaliðar að safna fyrir Rauða kross Íslands á Djúpavogi. Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, mun á þessu hausti veita þeim sem misst hafa manneskju í sjálfsvígi margvíslegan stuðning. Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum, að sjálfs- víg séu reglulega til umræðu í samfélaginu. Skemmst sé að minnast 40 krossa á Austurvelli við Dómkirkjuna 10. september s.l. til að minna á þessa staðreynd að síðustu ár hafa sjálfsvíg verið allt að 40 á ári. Hvert sjálfsvíg skilji oft stóran hóp fólks eftir í sárum og það taki nánustu aðstandendur undantekn- ingaralaust langan tíma að vinna úr sorginni. Fræðslufyrirlestur um sjálfsvíg verður í dag, 4. október, kl. 20:30 í safn- aðarheimili Háteigskirkju. Fyrirlesari er sr. Svavar Stefánsson en hann hef- ur mikla reynslu á þessu sviði. Húsið verður opnað kl 19 og fólk getur komið, spjallað og fengið kaffi. Í kjölfarið eða 11. október fer af stað stuðningshópur fyrir aðstandendur sem kemur vikulega saman á mánudögum kl. 20 í Fella- og Hólakirkju. Þá verður Opið hús fyrir þau sem misst hafa manneskju í sjálfsvígi er svo mán- aðarlega á þriðjudögum kl. 20 í Breiðholtskirkju, 23. október og 27. nóv- ember. Fjallað um afleiðingar sjálfsvíga Átján keppendur tóku þátt í Ís- landsmeistarakeppni í ökuleikni um helgina. Varð niðurstaðan sú að Ævar Sigmar Hjartarson sigraði í karlariðli og Ragna Óskarsdóttir í kvennariðli. Lítið bar þó á milli efstu manna í riðlum og var Ævar, sem ók sam- tals á 379 sekúndum aðeins níu sek- úndum á undan næsta manni, Sig- hvati Jónssyni, sem ók á 388 sekúndum. Í kvennariðli var munurinn enn minni en Ragna ók á 742 sek- úndum, aðeins þremur sekúndum á undan Íslandsmeistaranum frá 2011, Guðnýju Guðmundsdóttur sem ók á 745 sekúndum. Keppnin er haldin af Brautinni – bindindisfélagi ökumanna – í sam- vinnu við Ökukennarafélag Íslands og nokkur fyrirtæki. Gætinn Leysa þurfti ýmsar þrautir í öku- leikninni eins og sést á myndinni. Urðu Íslandsmeist- arar í ökuleikni Alþjóða-stómadagurinn er laug- ardaginn 6. október en Stóma- samtök Íslands ætla að minnast hans í dag, fimmtudag, með opnu húsi í húsnæði Krabbameinsfélags- ins að Skógarhlíð 8 kl. 19:30-21:30. Tilgangur Alþjóða-stómadagsins er að vekja athygli á aðstæðum stómaþega víðs vegar um heim. Stómasamtök Íslands voru stofn- uð árið 1980 með stuðningi Krabba- meinsfélagsins. Á þriðja hundrað manns eru í félaginu, en stómaþeg- ar á Íslandi eru taldir vera um 350. Alþjóðlega stóma- dagsins minnst Churchill-klúbburinn á Íslandi heldur hádegisverðar- fund á laugardag þar sem fjallað verður um heimsókn Winstons Churchills, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hingað til lands 16. ágúst 1941. Illugi Jökulsson mun fjalla um heimsóknina. Churc- hill var á þessum tíma á heimleið yfir hafið eftir sögu- legan fund með Franklin Roosevelt Bandaríkjaforseta þar sem þeir undirrituðu Atlantshafssáttmálann en hann markaði upphafið að stofnun Sameinuðu þjóð- anna 1945. Fram kemur í tilkynningu, að heimsókn Churchills hafi komið flestum að óvörum en eitthvað hafi þó verið í aðsigi því Morgunblaðið birti litla frétt að morgni þess 16. ágúst þar sem stóð: „[...]Sennilegt er, að eitthvað verði um að vera við höfnina um 10-leytið fyrir hádegi og má vera að bæjarbúar hafi gaman af því að sjá hvað fram fer þar.“ Fundurinn verður haldinn á Nauthól frá klukkan 12 til 13:30. Fjallað um heimsókn Churchills til Íslands Winston Churchill. Haustráðstefna SÁÁ hefst klukkan 8:30 í dag í Von, húsi samtakanna við Efstaleiti 7. Ráðstefnan, sem er öllum opin, stendur einnig yfir á morgun. Afmælisfundur SÁÁ verður síðan haldinn í Háskólabíói laugardaginn 6. október. Húsið verður opnað fyr- ir almenning kl. 12:30. Hátíð Frá afmælisfundi SÁÁ á síðasta ári. Haustráðstefna og afmælisfundur SÁÁ STUTT GJÖRIÐ SVO VEL!HÁDEGISMATUR TIL FYRIRTÆKJA HAFÐU SAMBAND OG FÁÐU TILBOÐ! HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is HEITT OG KALT býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu heimsendingu á hollum og kjarngóðum hádegismat. Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims. Stjórnarráðið í Reykjavík er ákaflega fögur bygging með merka sögu, prýdd íslenska fánanum og styttum af Kristjáni níunda Danakonungi og Hannesi Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands. Mikilvægt er að halda um- hverfi byggingarinnar snyrtilegu og þessi vandvirki starfsmaður sér til þess að skiltin sé tandurhrein. Morgunblaðið/Golli Skiltin hreinsuð við Stjórnarráðið „Það er komið ákveðið jafnvægi sem við teljum að verði áfram,“ sagði Ey- þór H. Ólafsson, verkfræðingur og forseti bæjarstjórnar í Hveragerði, um niðurdælingu á Hellisheiði. Hvergerðingar finna ekki fyrir jarð- skjálftum í sama mæli og áður. Eyþór var fulltrúi Hvergerðinga í sérfræðingahópi sem Orkuveita Reykjavíkur (OR) fékk til að fjalla um niðurdælingu vatns frá Hellis- heiðarvirkjun sem olli miklum jarð- hræringum við Húsmúla haustið 2011. Skjálftarnir ollu Hvergerðing- um bæði ama og áhyggjum. Eyþór sagði að OR dæli enn sama vatnsmagni og byrjað var á í fyrra eða um 500 lítrum á sekúndu. Hann sagði mikilvægast að breytingar t.d. á vatnsmagni séu gerðar rólega til að trufla ekki kerfið. Ef virkj- unin slær út hættir niðurdæl- ingin skyndilega. Eyþór sagði að þá verði að fara hægt af stað aftur við að dæla niður vatninu. „Við höfum ekki stórar áhyggjur af þessari niðurdælingu nú,“ sagði Eyþór. Sami staður hefur verið not- aður til niðurdælingar frá því hún hófst. Eyþór sagði að væntanlega yrði ekki farið í að dæla niður á nýj- um stöðum nema farið yrði í nýjar virkjanir, t.d. Hverahlíðarvirkjun. Þá þurfi menn að fara varlega af stað. Í skýrslu samráðshópsins eru settar fram leiðbeiningar um hvern- ig standa eigi að undirbúningi virkj- ana og samskiptum við íbúa. „Samráðið hefur verið miklu betra eftir að starfshópurinn var settur á legg. Við höfum fengið upplýsingar um stöðu mála og reynt að miðla þeim til íbúanna. Mér finnst óánægja fólks ekki jafn mikil og hún var,“ sagði Eyþór. Búið er að mynda annan stýrihóp um brennisteinsvetnismengun frá bæði núverandi og væntanlegum jarðvarmavirkjunum. Hvergerðing- ar eiga ekki enn sem komið er full- trúa í þeim starfshópi. gudni@mbl.is Jörðin komin í jafnvægi Eyþór H. Ólafsson,  Miklu betra samráð við Hvergerðinga eftir að OR setti á fót starfshóp um niðurdælingu á Hellisheiði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.