Morgunblaðið - 04.10.2012, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Okkur hvalaskoðunarmönnum hefði
ekki liðið vel ef við hefðum ekki getað
bjargað hnúfubaknum. Sem betur fer
tókst okkur að losa net og færi af
sporði hans,“ segir Halldór Hall-
dórsson á Hauganesi. Hann og fé-
lagar hans á Níels Jónssyni EA 106
fengu hval í þorskanet á föstudag, en
tókst að lempa netið út af sporðinum
án þess að hvalnum yrði meint af.
„Þegar við vorum búnir að leggja
netin urðum við varir við að hvalurinn
hafði fest sig í þeim,“ segir Halldór.
„Við fórum í land og náðum í tæki og
tól til að reyna að losa dýrið. Það
tókst eftir klukkustundar barning og
nokkrar tilraunir, en þá hafði hval-
urinn farið með allt draslið aftan í sér
um hálfan kílómetra. Sérfræðingur
frá Hafrannsóknastofnun var um
borð og notaði tækifærið til að koma
gervihnattasendi í hvalinn.“
Hnúfubakar allt árið
Mikið gekk á meðan verið var að
losa hvalinn, enda er hnúfubakur
engin smásmíði. Fullorðinn er hann
13 til 17 metra langur og 25 til 40 tonn
á þyngd.
Níels Jónsson EA er eikarbátur
smíðaður á Akureyri 1974 og er not-
aður í hvalaskoðun á sumrin, en er á
netum yfir vetrartímann. Halldór
segir að mikið hafi verið af hval í
Eyjafirði tvö síðastliðin sumur og
hvalaskoðun njóti mikilla vinsælda. Á
laugardag var farið í hvalaskoðun og
þá voru þrír hnúfubakar rétt fyrir
utan bryggjuna á Hauganesi. Vinur
þeirra frá því deginum áður var þó
ekki þeirra á meðal.
Halldór segir að sú breyting hafi
orðið síðustu ár að hnúfubakar sjáist
nú orðið í Eyjafirði alla mánuði árs-
ins.
Ekki meint af ævintýrinu
Á Hafrannsóknastofnun er greint
frá merkingu hvalsins og ferðum
hans síðan. Þar segir að dýrinu virð-
ist ekki hafa orðið meint af þessu
ævintýri og hafi synt rösklega sinn
veg. Hvalurinn hélt sig fyrst um sinn
nálægt merkingarstað suðaustan við
Hrísey. Helginni eyddi hnúfubak-
urinn út af Ólafsfirði og Héðinsfirði,
en hélt þaðan lengra norður.
Hann hefur síðustu daga verið í
Eyjafjarðarál.
Dró netin um hálfan kílómetra
Mikið gekk á meðan veiðarfæri voru losuð úr hnúfubak Hvalaskoðun, þorskveiðar og hvalabjörgun
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Gamall og góður Níels Jónsson er meðal síðustu eikarbátanna sem smíðaðir voru hér á landi. Hann er nú jöfnum
höndum notaður við fiskveiðar og hvalaskoðun. Mikið hefur verið af hval í Eyjafirði síðustu tvö ár.
Hafrannsóknastofnunin hefur
á undanförnum árum staðið
fyrir tilraunum til að merkja
hvali með gervitunglasendum.
Markmið verkefnisins er að
kanna ferðir skíðishvala við
landið og far þeirra frá ís-
lenskum hafsvæðum á haust-
in. Í haust verða væntanlega
þrjár hrefnur merktar auk
hnúfubaksins.
Kanna ferðir
skíðishvala
GERVITUNGLASENDAR
Vel tengdur Sendirinn kominn á
sinn stað í hnúfubaknum.
Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is
Vantar þig innihurð?
Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir frá Grauthoff.
Þær eru yfirfelldar með samlokukörmum sem auka
hljóðeinangrun og brunavörn.
Margar útfærslur eru fáanlegar í öllum viðartegundum.
Sjón er sögu ríkari.