Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.10.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 BAKSVIÐ Kristján Jónsson kjon@mbl.is Forsetaefnin tvö í Bandaríkjunum, Barack Obama og Mitt Romney, munu á næstu vikum heyja þrjú sjónvarpseinvígi, það fyrsta var fyr- irhugað sl. nótt í Colorado. Munurinn í flestum könnunum á landsvísu er Obama í hag en inn- an skekkjumarka. Sigur Obama er því alls ekki í höfn, skyndi- leg ótíðindi í efnahagsmálum geta breytt stöð- unni, Romney í hag og einnig slæm mistök á lokasprettinum. Joe Biden varaforseti þykir afar málglaður og er oft fljótfær. Hann færði repúblikönum gott vopn í hendur á þriðjudag þegar hann sagði að millistéttin, sem er mikill meirihluti þjóðarinnar, hefði verið „jörðuð með sköttum“ síðustu fjögur árin. Paul Ryan vara- forsetaefni Romneys, var fljótur að segja að hann væri sammála og skipta yrði um ráða- menn. Biden sagðist þá, vandræðalegur á svip, hafa átt við að í tíð repúblikanans George W. Bush í Hvíta húsinu hefði verið mótuð stefna sem hefði valdið þessari skattaáþján. En repúblikanar hafa einnig gert mistök, klaufaleg ummæli Romneys um að nær helm- ingur þjóðarinnar væri á bótum og vildi því ekki minnka ríkisafskipti voru honum ekki til framdráttar. Hann vildi vafalaust vekja at- hygli á vanda sem menn stríða nú við á öllum Vesturlöndum í kreppunni: erfitt er að vinda ofan af ríkisskuldum vegna þess hve stór hluti kjósenda á allt sitt undir miklu ríkisbákni. Mikil breyting á viðhorfum kjósenda Athyglisvert er að sjá hvernig viðhorf kjós- enda hafa breyst síðustu árin. Fram kemur í könnun CNN að mun færri en áður eða um 40% vilji nú að ríkið ýti markvisst undir svo- nefnd „hefðbundin gildi“ eins og kjarnafjöl- skylduna, gildi sem repúblikanar halda mjög á lofti. Hlutfallið var 57% fyrir tveim árum. Þessi breyting gæti gagnast demókrötum en á hinn bóginn eru 60% þeirrar skoðunar að um- svif ríkisvaldsins séu of mikil og hefur það hlutfall sjaldan verið jafn hátt. Rök repúblik- ana gegn velferðarríkishugmyndum Obama ættu því einnig að finna hljómgrunn.  Obama og Romney munu heyja þrennar kappræður í sjónvarpi fram að kosningum 6. nóvember  Forsetinn stendur vel í sveifluríkjunum en munurinn á landsvísu er innan skekkjumarka Mistök á lokaspretti geta kostað sigur AFP Prufa Dia Mohamed, stúdent í Denver, fær jakka í yfirstærð áður en hann leikur hlutverk Obama á æfingu fyrir kappræðurnar. Obama öflugri í sveifluríkjum » Ný landskönnun Wall Street Journal/ NBC, sem birt var í gær, sýndi 49% stuðning við Obama en Romney var með 46%. » Í mörgum af sambandsríkjunum 50 eru úrslitin í forsetakjöri yfirleitt fyrir- sjáanleg. » En í nokkrum svonefndum „sveifluríkj- um“ er spennan mikil. Obama hefur um- talsvert meira fylgi í þeim flestum. Marcello Di Finizio, eigandi strandbars á Ítalíu, klifraði upp eftir hvolfþaki Péturskirkjunnar í Róm og mót- mælti í gær ESB-tilskipun um uppboð á strandsvæðum. Risafyrirtæki muni þá útrýma þeim smáu, segir hann. „Hjálp! Nú er nóg komið, Monti. Nóg komið, Evrópa. Nóg komið, fjölþjóðafyrirtæki!“ stendur á borðanum. Óttast samkeppni risafyrirtækja á baðströndum AFP „Nú er nóg komið, Monti!“ Kristján Jónsson kjon@mbl.is Fyrirtæki í Bandaríkjunum, Ralls Corp, sem er í kínverskri eigu, hefur höfðað mál gegn stjórnvöldum sem hafa stöðvað samning um kaup á mikilli vindmyllusamstæðu í grennd við æfingastöð flotans í Oregon. Er skýring stjórnvalda sú að kaupin myndu ógna öryggi þjóðarinnar. Liðin eru 22 ár síðan síðast var beitt áðurnefndum rökum gegn viðskipta- samningi vestra, að sögn BBC. Ralls keypti svæðið með myllun- um fyrr á árinu en Barack Obama forseti undirritaði skipun um bannið í liðinni viku. Fyrirtækið segir að forsetinn hafi ekki haft vald til að stöðva kaupin. Ekki hafi verið lagðar fram neinar sannanir fyrir því að Ralls muni njósna og ógna öryggi Bandaríkjanna. Í æfingastöðinni eru m.a. gerðar tilraunir með mannlaus- ar flugvélar á vegum flotans sem notaðar eru í æ meiri mæli til eftirlits og sprengjuárása. Deilt á viðskiptahætti Kínverja Nokkrar vikur eru í forsetakjör í Bandaríkjunum og kínverska ríkis- fréttastofan Xinhua sagði að Obama vildi með banninu ráðast á Kínverja til að „krækja í atkvæði nokkurra verkamanna“. Margir Bandaríkjamenn segja að störfum í iðnaði hafi fækkað vegna samkeppni á mörkuðum við ódýrt vinnuafl í Kína. Repúblikanar hafa gagnrýnt Obama fyrir að sýna lin- kind gagnvart Kínverjum í deilum um viðskiptahætti og fjárfestingar. Kínverjar eru m.a. sakaðir um að halda gengi jensins óeðlilega lágu til að verð á útflutningsvörum þeirra sé lægra en á vörum annarra. Stjórn Obama kærði nýlega Kín- verja hjá Heimsviðskiptastofnuninni fyrir að styrkja með niðurgreiðslum innlenda bílaframleiðslu. Umræður af þessu tagi harðna oft fyrir kosn- ingar vestra og segja Kínverjar að þeir séu gerðir að blóraböggli, þeim sé kennt um efnahagsvanda Banda- ríkjamanna. Óttast njósnir um herstöð af hálfu Kínverja  Obama stöðvar kaup á vindmyllum Varúð Umdeildar vindmyllur í sam- bandsríkinu Oregon. Breska lögreglan hefur í þrjá sólar- hringa leitað með aðstoð þúsunda sjálfboðaliða að fimm ára stúlku, April Jones, sem hvarf frá heimili sínu í smábænum Machynlleth í Wa- les á mánudag. „Við bíðum í örvænt- ingu eftir einhverjum fréttum... Ap- ril er fimm ára, í öllum bænum hjálpið okkur við að finna hana,“ sagði móðir stúlkunnar, Coral Jon- es. Fólk í bænum er slegið yfir hvarfi barnsins og vill leggja sitt fram við leitina. En lögreglan sendi á þriðju- dag sjálfboðaliðana heim og sagði að þeir yrðu að hvíla sig. Í gær kom fram að fjöllótt leitarsvæðið væri svo erfitt að það væri hættulegt fyrir óvant fólk og framvegis yrði því eingöngu not- ast við þjálfaða leitarmenn. 46 ára gamall karlmaður, Mark Bridger, hefur verið handtekinn en hann á bláan Land Rover Disco- very-jeppa sem talinn er tengjast hvarfi April. Bridger er að sögn BBC nú yfirheyrður. kjon@mbl.is Fimm ára barn hvarf í smábæ í Wales April Jones Fjölhæfasti starfskrafturinn Fjölnota vinnuþjarkur sem höndlar hátt í 100 verkfæri ▪ Lágur rekstrarkostnaður ▪ Einstaklega lipur í notkun ▪ Vökvaknúinn í aldrifi ▪ Sjá nánar á VBL.is - myndbönd o.fl. 630 28 hö Kubota díeselmótor með 44 lítra vökvadælu, 200 bar Hæð 209 cm Lengd 255 cm Breidd 99 - 129 cm Þyngd 1350 kg Lyftihæð 282 cm Lyftigeta 1400 kg Fáanlegur með húsi Í drifbúnaði eru engar reimar, kúplingsdiskar né drifsköft.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.