Morgunblaðið - 04.10.2012, Side 39
ÍSLENDINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Bjarni var framkvæmdastjóri
kertaverksmiðjunnar Heimaeyjar á
árunum 1984-88. Þá var hann um
skeið vélstjóri og afleysingaskipstjóri
á farþegabát sem Páll Helgason hafði
til skoðunarferða í þrjú sumur og
sinnti ýmsum öðrum störfum sem til
féllu hverju sinni.
Bjarni stofnaði Útvarpsstöð Vest-
mannaeyja 1993 og hefur starfrækt
hana síðan. Stöðin sendir einkum út
um helgar, tónlist og samtalsþætti.
Bjarni hefur sinnt ýmsum félags-
störfum, starfaði í skátafélagi, hefur
skrifað greinar í blöð og stóð eitt sinn
fyrir óháðu framboði til bæj-
arstjórnar í Vestmannaeyjum.
Ljósmyndun og tónlistaráhugi
Áhugamál Bjarna hafa einna helst
snúist um ljósmyndun og tónlist:
„Ég fékk snemma ljósmyndadellu
og hef tekið góðar ljósmyndatarnir en
hætt að taka myndir þess á milli. Ég
tók t.d. oft vélina með mér á sjóinn og
tók myndir af mannskapnum um
borð. Annars eru þetta helst myndir
úr mannlífinu í Eyjum.
Ég hef einnig mikinn áhuga á tón-
list, er harmónikkuunnandi og var
formaður Harmónikkufélags Vest-
mannaeyja um skeið. Ég hef átt
fjölda hljóðfæra og gutla svona á hitt
og þetta, s.s. orgel og gítar. Þegar
seiðandi nikkuhljómunum sleppir vil
ég helst hlusta á fjörugt rokk.“
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 4.10. 1958 Jórunni
Þorgerði Bergsdóttur, f. 22.9. 1935,
en hún starfaði lengi við eldhúsið í
Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra
í Eyjum. Jórunn Þorgerður er dóttir
Guðmundar Bergs Þorsteinssonar,
bónda á Hofi í Öræfum, og Pálu Jón-
ínu Pálsdóttur húsfreyju.
Börn Bjarna og Jórunnar Þorgerð-
ar: Jónas, f. 13.9. 1956, rafmagns-
verkfræðingur hjá Landsneti, búsett-
ur í Reykjavík en kona hans er
Margrét Pálsdóttir svæfingarhjúkr-
unarfræðingur og eiga þau þrjú börn.
Rúnar, f. 1.2. 1958, lést af slysförum
5.7. 1980. Bergur, f. 27.5. 1959, d. 14.7.
1960. Valgerður, f. 24.10. 1961, grunn-
skólakennari í Vestmannaeyjum, en
maður hennar er Björgvin Björg-
vinsson byggingatæknifræðingur og
eiga þau þrjú börn. Bergþór, f. 2.6.
1968, íslenskufræðingur, búsettur í
Nice í Frakklandi.
Alsystkini Bjarna eru Gréta Jón-
asdóttir, f. 19.9. 1933, fyrrv. húsfreyja
á Brúsastöðum í Þingvallaveit, nú bú-
sett á Hrafnistu í Reykjavík; Valgeir
Jónasson, f. 2.2. 1944, húsasmíða-
meistari í Vestmannaeyjum.
Hálfsystir Bjarna er Vilborg Þor-
steinsdóttir, f. 11.9. 1956, starfsmaður
hjá Vinnumiðlun Suðurlands, búsett í
Vestmannaeyjum.
Foreldrar Bjarna voru Jónas
Bjarnason, f. 21.6. 1899, d. 24.3. 1978,
skipstjóri og útgerðarmaður í Eyjum,
og Valgerður Bjarnadóttir, f. 1.1.
1915, d. 12.8. 1978, húsfreyja.
Úr frændgarði Bjarna Jónassonar
Bjarni
Jónasson
Guðmundur Guðni Ólafsson
form. í Mýrarhúsum á Akranesi
Björn Guðmundsson
bakari í Tvøeyri í Færeyjum
Júlíana Guðmundsdóttir
af færeyskumættum
Valgerður Björnsdóttir
húsfr. í Eyjum
Arnlaug Sveinsdóttir
húsfr. í Nýjabæ
Arnlaug Sveinsdóttir
húsfr. í Bjarnaborg
Bjarni Jónasson
form. í Bjarnaborg á Stokkseyri
Jónas Bjarnason
skipstj. og útg.m. í Eyjum
Margrét Bjarnadóttir
húsfr. í Magnúsarfjósum
Jónas J. Hannesson
b. í Magnúsarfjósum
Sveinn Einarsson
b. í Nýjabæ
Sighvatur
Einarsson,
frá Suðurbæ
undir
Eyjafjöllum
Elín
Sighvatsd.
húsfr. í
Rvík
Sighvatur
Árnason
múrari á
Patreksf.
Björgvin
skólastj.
á Ísafirði,
faðir
Sighvats,
fyrrv.
ráðherra
Sighvatur Bjarnason
forstj. Vinnslustöðvar-
innar í Eyjum
Hannesína
Bjarnadóttir
húsfr. á Ísafirði
Bjarni Sighvatsson
fyrrv. stjórnarform.
Vinnslust., faðir
Sighvats sem var
framkvæmdastj. þar
Sjöfn
Magnúsdóttir
húsfr. á
Ísafirði
Magnús
Jóhannesson
ráðuneytisstj.
Málfríður Jónasdóttir
húsfr. í Hrísakoti
Marta Ólafsdóttir
húsfr. í Rvík
Manfreð Vilhjálmsson
arkitekt
Útvarpsstjórinn Bjarni í dag.
Guðmundur Daníelsson rithöf-undur fæddist að Guttorms-haga í Holtum 4.10. 1910,
sonur Daníels Daníelssonar, bónda
þar, og Guðrúnar Sigríðar Guð-
mundsdóttur húsfreyju. Daníel var
sonur Daníels, b. á Kaldárholti á
Rangárvöllum Þorsteinssonar, og
Guðrúnar Sigurðardóttur, b. á
Gaddastöðum á Rangárvöllum Guð-
brandssonar, bróður Sæmundar,
ættföður Lækjarbotnaættar þeirra
Bubba og Hauks Morthens.
Eiginkona Guðmundar var Sigríð-
ur Arinbjarnardóttir og eignuðust
þau þrjú börn sem öll hafa stundað
kennslu, Iðunni, Heimi og Arnheiði.
Guðmundur var í Héraðsskól-
anum á Laugarvatni, lauk kenn-
araprófi 1934, og stundaði fram-
haldsnám við Lærerhöjskolen í
Kaupmannahöfn 1948-49.
Hann var skólastjóri á Suðureyri
1938-43, kennari á Eyrarbakka
1943-44, skólastjóri þar 1945-68 og
kennari við Gagnfræðaskólann á
Selfossi 1968-73.
Guðmundur stundaði ritstörf með
kennslu og skólastjórnun og síðan
eingöngu frá 1973 en hann var einn
afkastamesti skáldsagnahöfundur
landsins á sínum tíma.
Meðal skáldsagna hans má nefna
Bræðurna í Grashaga, 1935; Á bökk-
um Bolafljóts, I. og II. bindi, 1940;
Blindingsleik, 1955; Húsið, 1963;
Járnblómið, 1972, og Vatnið, 1987.
Hann samdi sögulegu skáldsögurnar
Sonur minn, Sinfjötli, 1961, og Bróð-
ir minn, Húni, 1976, samdi smásögur
og leikrit og sendi frá sér ljóðabæk-
ur, ferðalýsingar, endurminningar
og viðtalsbækur. Hann naut heið-
urslauna listamanna frá 1974.
Guðmundur var ritstjóri Suður-
lands 1953-73 og náinn vinur Ingólfs
Jónssonar á Hellu. Hann sat í
hreppsnefnd Selfoss, sat í yfirkjör-
stjórn Suðurlandskjördæmis 1959-
74, var formaður skólanefndar Hér-
aðsskólans á Laugarvatni 1960-72,
sat í hreppsnefnd Selfoss 1970-74,
var formaður stjórnar Héraðs-
bókasafns Árnesinga 1970-80. Hann
var formaður Félags íslenskra rit-
höfunda 1970-72 og sat í rithöf-
undaráði 1974-78.
Guðmundur lést 6.2. 1990.
Merkir Íslendingar
Guðmundur
Daníelsson
90 ára
Ásta Jónsdóttir
Helgi Björnsson
Margrét Halldórsdóttir
Óli Valur Hansson
85 ára
Anna Guðbjörg
Gunnarsdóttir
Gerða Friðriksdóttir
Ingimundur Ingimund-
arson
María Einarsdóttir
80 ára
Aðalheiður Gunnarsdóttir
Elín Þórhallsdóttir
Hermann Guðjón
Hermannsson
Hrafnhildur M. Ingólfs-
dóttir
Ólafur O. Sveinbjörnsson
75 ára
Finnbogi Geir
Guðmundsson
Guðrún Þóra Kjart-
ansdóttir
Leifur Guðmundsson
Magnús Jóhannesson
Sigrún O. Sigurðardóttir
70 ára
Anna M. Petersen
Sigurðardóttir
Dóra Stína Helgadóttir
Elín Guðmundsdóttir
Gunnlaug B. Jónsdóttir
Hörður Bergsteinsson
Jóhanna Sigurðardóttir
Kristbjörg Oddgeirsdóttir
Ragnhildur Garðarsdóttir
Selma Jóhannsdóttir
Sigríður V. Ásgeirsdóttir
Sunneva María Joensen
60 ára
Anna Ólafsdóttir
Ásgeir Soffíuson
Brynjar Kristmundsson
Einar Sturluson
Gunnar Ásgeirsson
Herdís Rut Hallgrímsdóttir
Ingveldur Karlsdóttir
Jósúa Steinar Óskarsson
Kristjana Ásta Á. Long
Sigurbjörg Ingvarsdóttir
Sigurbjörn Ásgeirsson
50 ára
Anna Margrét Björnsdóttir
Birna Magnúsdóttir
Dóra Guðrún Wild
Erla Guðmundsdóttir
Gíslína Jensdóttir
Haukur Hólm Hauksson
Helgi Bergsson
Magnús Ingibjörn Gíslason
Þórarinn Guðni Sverrisson
40 ára
Björg Stefanía
Sigurgeirsdóttir
Margrét Líndal
Steinþórsdóttir
Mariusz Dabrowski
Viðar Bragason
30 ára
Andri Fannar Bergþórsson
Ásdís Erla Erlingsdóttir
Bergsveinn Hjalti
Magnússon
Dorota Leszczuk
Gígja Gunnlaugsdóttir
Guðjón Björnsson
Hans Jónsson
Lára Rúnarsdóttir
Oddur Þór Guðlaugsson
Óli Ívarsson
Petra Mjöll Pétursdóttir
Þorbergur Ingi Jónsson
Þórarinn Snæfeld
Jóhannsson
Til hamingju með daginn
30 ára Páll ólst upp í
Kópavogi, er með einka-
flugmannspróf og próf í
verkefnastjórn og vinnur
við leikjahönnun hjá CCP.
Maki: Emmanuel Luis
Santiago Canales, f. 1984,
starfar við skemmt-
anastjórn.
Foreldrar: Ívar Magn-
ússon, f. 1948, tækni-
fræðingur í Garðabæ, og
Guðlaug Eyþórsdóttir, f.
1949, kerfisstjóri hjá
Bændasamtökunum.
Páll Ívarsson
50 ára Hörður lauk vél-
fræðiprófi og er vélvirki
hjá Norðuráli.
Maki: Geirlaug Jóna
Rafnsdóttir, f. 1965,
starfsmaður við Bókasafn
Akraness.
Börn: Klara Árný, f. 1991;
Guðni Rafn, f. 1994, og
Davíð Örn, f. 2001.
Foreldrar: Hallgrímur
Ólafsson, f. 1924, d.
2009, vélstjóri á Akra-
nesi, og Guðný Sigurð-
ardóttir, f. 1927, húsfr.
Hörður
Hallgrímsson
50 ára Kolbrún ólst upp í
Hafnarfirði og hefur unnið
við bókhald frá 1997.
Maki: Hilmar Hall-
dórsson, f. 1962, frum-
kvöðull.
Börn: Ester, f. 1980; Ólaf-
ur, f. 1984; Helga, f. 1988,
og Daníel, f. 1994.
Foreldrar: Ólafur Guð-
mundsson, f. 1928, bif-
vélavirki, og Unnur
Ágústsdóttir, f. 1927, d.
2012, húsfreyja og fisk-
vinnslukona.
Kolbrún
Ólafsdóttir
Gjafir sem gleðja
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Hálsmen 7.900 kr.
Eyrnalokkar
8.300 kr.