Morgunblaðið - 04.10.2012, Side 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ástarsamband þitt gengur eitthvað
stirðlega í dag og það gerir þig óörugga/n og
einmana. Farðu þér hægar og þá gengur dæm-
ið upp.
20. apríl - 20. maí
Naut Fylgdu innsæi þínu þegar um nýtt sam-
band er að ræða. Fall eða frami skapa þig ekki.
Samræður við nána vini rugla þig bara í rím-
inu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það getur verið fróðlegt að sækja
fundi þar sem málin eru rædd vítt og breitt.
Viljirðu ná málum fram af einhverju viti þarftu
að vera mjög þolinmóð/ur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Smáheimur ákvarðana þinna end-
urspeglar raunverulegan heim framtíðar þinn-
ar. Vertu ekki hrædd/ur þótt einhverjir erf-
iðleikar kunni að verða á vegi þínum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert að velta fyrir þér ákveðnum fjáröfl-
unarhugmyndum í dag. Sýndu umburðarlyndi.
Hafðu það í huga að oft má satt kyrrt liggja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú getur vanalega sjálf/ur höndlað rifr-
ildi og með hjálp þinna dyggustu stuðnings-
manna. Treystu á sjálfa/n þig því aðrir munu
ekki leysa þessi mál fyrir þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu fara lítið fyrir þér í dag, því öll óþarfa
athygli fer illa í þig. Ef þú hefur ekki verið að
nýta hæfileika þína er rétti tíminn til þess
núna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Forðist deilur við yfirboðara í dag.
Gættu þín að vera heiðarleg(ur) við sjálfa(n)
þig í dag því annars verður þú fyrir von-
brigðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að halda sig á
mottunni hvað fjárútlát varðar. Allt á sér sinn
stað og sína stund.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef þú fæst við hópa fólks í dag
skaltu ekki fallast á skilafresti. Renni þér eitt-
hvað úr greipum verður þú að trúa því fastlega
að eitthvað nýtt komi í staðinn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er auðvelt að nálgast þig. En
það er óþarfi að vorkenna sér þótt ekki sé unnt
að kaupa alla hluti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þegar þú gerir þér grein fyrir hvað þú
vilt ekki ertu rokin/n. Sá sem spyr of margra
spurninga er ekki traustsins verður.
ÍVísnahorninu í gær fór ég rangtmeð, auðvitað vegna þess að ég
tók vitlaust eftir, á ekki nægan
bókakost og kann ekki almennilega
á tölvu. Og bið ég lesendur að um-
bera það. En vísan um Guðrúnu Ei-
ríksdóttur á Hrafnabjörgum eftir
Gísla S. Helgason á Hrappsstöðum í
Vopnafirði er svona og skýrist með
því orðið „herkin“:
Gunna fór að sækja svörð
svona er hún herkin.
Hún er vel af guði gjörð
að gera karlmannsverkin.
Næstu stökur eru úr ljóðabréfi
Gísla til frú Sigríðar P. Blöndal á
Hallormsstað í febrúar 1943:
Ber ég þungan hugarharm,
harmur svellur minn við barm,
barma aldrei mun ég mér,
mér sem bráðum yfrum fer
Fer ég þá og brýt við blað,
blaðið sendi að Hallormsstað;
staður sá, er blómskrúð ber,
ber af öllum stöðum hér.
Hér kemur hringhenda eftir
Gísla:
Sunnanvindar falla frá
fjallatindum háum,
yfir strindi og út á sjá
eftir rindum bláum.
Í fornum stíl:
Á héraðsfund ég fór um stund,
festi sprund sem kætti lund.
Ístaðshundi hleypti um grund
hreppti sund í fjalla-und.
Gísli eignaðist reiðhest:
Gráan á ég gæðing nú,
gaman er að sjá ánn.
Komdu að reyna ef þorir þú
þegar ég legg á ánn.
Um Jökuldalinn yrkir Gísli:
Eg er kominn upp á Dal-
Efri, sem menn kalla, -
í þennan fríða fjallasal,
sem fer svo vel með alla.
Og að síðustu um sólsetur:
Fallega gyllast fjöllin há
fögrum sólar roða.
Hjarta mannsins hressir þá
himin-dýrð að skoða
Halldór Blöndal
halldor@simnet.is
Vísnahorn
Svona er hún herkin
eftir Jim Unger
„BARA ÞÓ AÐ ÞEIR SÉU 100 SINNUM
FLEIRI EN VIÐ ÞÝÐIR ÞAÐ EKKI AÐ
SVONA BLÓTSYRÐI SÉU LEYFILEG!“
HermannÍ klípu
„ÞETTA HEFUR EKKI VERIÐ FUNDIÐ UPP
ENNÞÁ. OG VIÐ HEFÐUM LÍKA ALDREI
EFNI Á SVONA.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... letihelgi. Saman.
ELÍN, EF ÞÚ SKELLIR Á MIG
MUN ÉG ALDREI HRINGJA
Í ÞIG FRAMAR.
VESALINGS,
VESALINGS ELÍN ...
VESALINGS,
VESALINGS OFURKÁTA
OG HAMINGJUSAMA
ELÍN.
KLIKK!
ÞÚ LÍTUR ÚT FYRIR
AÐ HAFA ÞYNGST,
HROLLUR!
HEFURÐU
VERIÐ
AÐ TELJA
KALORÍUR
EINS OG ÉG
RÁÐLAGÐI
ÞÉR?
ÉG REYNDI
ÞAÐ ...
... EN ÉG VEIT EKKI
HVERNIG ÞÆR LÍTA ÚT!
Víkverja finnst hugmyndin um aðfæra miðstöð strætisvagna frá
Hlemmi í BSÍ við Hringbraut for-
vitnileg. Helstu veikleikar almenn-
ingssamgangna á höfuðborgarsvæð-
inu eru strjálar ferðir og tíminn, sem
það tekur að komast milli staða.
Vagnarnir fara krókaleiðir um höf-
uðborgarsvæðið til þess að sem
flestir séu nálægt stoppistöðvum
þess og niðurstaðan er sú að strætó-
ferðir verða iðulega svo tímafrekar
að í raun eru þær orðnar að útsýn-
isferðum. Eigi almennings-
samgöngur einhvern tímann að geta
skákað einkabílnum verður að vera
hægt að komast hratt á milli staða.
Nú er örugglega hægt að svara Vík-
verja með ræðum um sérleiðir, sem
með skilvirkni myndu koma Vík-
verja heilu og höldnu frá einum stað
til annars, en það á við um ákveðnar
stofnleiðir, en engan veginn allt
svæðið.
x x x
Reyndar er Strætó ákveðin vor-kunn. Almenningssamgöngur í
stórborgum eru oft betri kostur en
að hírast í umferðarstöppu og eiga í
stöðugum bílastæðavandræðum á
leiðarenda. Þar þýða almennings-
samgöngur tímasparnað og farþeg-
inn getur til dæmis nýtt tímann til
þess að lesa, sem er útilokað undir
stýri, þótt Víkverji hafi séð bílstjóra
reyna ótrúlegustu kúnstir undir
stýri á götum Reykjavíkur, allt frá
því að mála sig og lesa til þess að
borða hádegismat.
x x x
Þá eru stórborgir yfirleitt nokkuðmannmargar þannig að ekki eru
tómir vagnar þótt boðið sé upp á tíð-
ar ferðir. Höfuðborgarsvæðið er á
stærð við stórborg, en íbúafjöldinn
eins og í smáborg. Hér er því ekki
mannskapur til að fylla vagna skil-
virkra almenningssamgangna, jafn-
vel þótt íbúarnir hefðu það að að-
alstarfi.
x x x
Hvað sem tuði Víkverja líður erstrætó nauðsynlegur, en senni-
lega er eilífðarverkefni að átta sig á
hvernig best er að reka almennings-
samgöngur á höfuðborgarsvæðinu
og skipuleggja. víkverji@mbl.is
Víkverji
Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita
ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert
Drottinn minn, ég á engin gæði nema
þig.“ (Sálm. 16:1-2)
Kolabrautin er á 4. hæð Hörpu
Borðapantanir í síma 519 9700
info@kolabrautin.is
www.kolabrautin.is
Besti kokteilbarinn 2012
að mati Reykjavík Grapevine
Hvort sem þú vilt kalla drykkinn þinn
hanastél eða kokteil þá er ljóst hvar best er
að njóta hans. Reykjavík Grapevine komst
að þeirri niðurstöðu í árlegri úttekt sinni að
Kolabrautin hefði að bjóða besta kokteilbar
borgarinnar árið 2012.
Komdu og bragðaðu á ógleymanlegu kvöldi.