Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 6. O K T Ó B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 251. tölublað 100. árgangur
JÓLAHLAÐBORÐ SKYFALL Í HÓPIBESTU BOND-MYNDA
SÖGUNNAR
SAGA ALSETT HRAÐA OG HASAR 38
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tryggði
sér farseðil í úrslitakeppni Evrópumótsins í Sví-
þjóð á næsta ári með 3:2 sigri á Úkraínu í síðari
dyggilega við bakið á liðinu. Á myndinni flýgur
markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir
hátt í baráttunni um boltann. » Íþróttir
umspilsleik liðanna á Laugardalsvelli í gær-
kvöldi. Vallarmet á kvennalandsleik féll í nepj-
unni en 6.647 manns mættu á völlinn og studdu
Morgunblaðið/Eggert
Vallarmet á kvennalandsleik í nepjunni í Laugardalnum
Stelpurnar
okkar aftur í
úrslit EM
„Það kemur ekki til greina að
ganga frá nauðasamningunum við
þessar aðstæður að mínu áliti,“ segir
Guðlaugur Þór Þórðarson alþingis-
maður um uppgjör þrotabúa föllnu
bankanna. Hann óskaði í gær eftir
sérstakri umræðu á Alþingi um málið.
Eygló Harðardóttir, Framsóknar-
flokki, óskaði í gær eftir fundi í efna-
hags- og viðskiptanefnd til að fara
yfir það sem fram kom í umfjöllun
Morgunblaðsins um þessi mál í gær.
Fer hann fram 31. okt. og eru
fulltrúar Seðlabankans boðaðir. »16
Útilokað að ganga frá
nauðasamningum
www.kaupumgull.is
Græddu
á gulli
Kringlunni 3.
hæð í dag frá kl.
11.00 til 18.00.
Loka dagurinn.
Upplýsingar og tímapantanir:
Sverrir s. 661-7000
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Undanfarin þrjú ár hefur allt of mik-
ið af kröftum okkar sem störfum í
sjávarútvegi farið í varnarbaráttu
sem komin er til af mannavöldum,“
sagði Adolf Guðmundsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, í ræðu sinni við upphaf aðal-
fundar LÍÚ í gær. Hann skoraði á at-
vinnuvegaráðherra og þingmenn sem
láta sig atvinnumál varða, að hlusta á
þau rök sem fram hafa verið færð og
beita sér fyrir endurskoðun laganna
um veiðigjöld til að forða því tjóni
sem við blasi.
Afleiðingarnar ekki metnar
„Við höfum glímt við hverja atlögu
stjórnarflokkanna á fætur annarri.
Það sem hefur verið einkennandi fyr-
ir þær allar, er að settar hafa verið
fram hugmyndir og síðan lagafrum-
vörp án þess að afleiðingarnar væru
metnar,“ sagði Adolf.
„Það hefur síðan verið hlutverk
okkar og fjölda annarra að sýna fram
á skaðsemi hugmyndanna. Með
gögnum og rökum hefur verið reynt
að sannfæra þá sem fara með hið póli-
tíska vald. Það hefur því miður væg-
ast sagt gengið illa. Þegar þeir sem
með valdið fara nálgast verkefnið
eins og að guðleg forsjón hafi falið
þeim að leiða þjóðina í heilögu stríði
vandast málið,“ sagði hann.
Gæti komið niður á hagvexti
Steingrímur J. Sigfússon atvinnu-
vegaráðherra var meðal ræðumanna
á fundi LÍÚ og vék þar m.a. að slæm-
um horfum á fiskmörkuðum. Hann
telur aðspurður að sú þróun geti
komið niður á hagvexti næsta árs.
„Já. Að sjálfsögðu skipta viðskipta-
kjörin máli í því, hvaða kjör við fáum í
okkar útflutningsviðskiptum. Það er
einn af áhættuþáttunum sem eru
fram undan. Það er spurningin hvort
ástandið í Evrópu fari í vaxandi mæli
að hafa áhrif á viðskiptakjör.“
Hver atlaga stjórnarflokk-
anna á fætur annarri
Hörð gagnrýni LÍÚ á stjórnvöld
Steingrímur uggandi um hagvöxtinn
Morgunblaðið/Ómar
Fundur LÍÚ Sveinn Hjörtur Hjartarson, Adolf Guðmundsson og Steingrímur
J. Sigfússon í pallborði. Á fundinum í gær voru veiðigjöld mjög til umræðu.
MNiðurstaðan varð »6
„Menn búa sig undir að það verði mun meira þorskframboð á mörkuðum
og að markaðsstarfið verði erfitt út af því,“ segir dr. Alda Möller matvæla-
fræðingur um horfur í þorskútflutningi næstu misserin.
Alda var meðal ræðumanna á aðalfundi LÍÚ í gær en hún rifjar upp að
áætlað sé að þorskaflinn í Norður-Atlantshafi aukist um 80.000 tonn í ár og
um 200.000 tonn á næsta ári. Stærstur hluti aukningarinnar muni koma úr
Barentshafi.
Alda telur íslensku útgerðina standa frammi fyrir vissri áskorun vegna
hins aukna framboðs. Samdráttur í ýsu annars staðar skapi hins vegar
tækifæri fyrir íslenska þorskinn. Hún segir eftirspurn eftir frosnum vörum
í kreppu.
Blikur á lofti með þorskinn
Útgáfa viðauka við útboðslýsingu, líkt
og þess sem Eimskip hyggst gefa út í
kjölfar þess að lykilstjórnendur félags-
ins létu af kaupréttum sínum í fram-
haldi af móttöku tilboða í lokuðu hlut-
fjárútboði Eimskips í gær, dregur ekki
úr lögmæti útboðslýsingar, að sögn
Unnar Gunnarsdóttur, forstjóra FME.
„Ég býst við því að við þurfum að
fara yfir viðaukann þannig að það sé
ekki bútasaumur,“ segir Unnur. Að-
spurð hvort FME hafi borist ein-
hverjar upplýsingar um það hvort ein-
hverjir fjárfestar hafi mögulega vitað
af því á undan öðrum að horfið yrði frá
kaupréttunum, segir Unnur svo ekki
vera.
„Við tókum okkar afstöðu á þeim
forsendum sem lágu fyrir í útboðslýs-
ingunni og okkar niðurstaða byggðist
bæði á því að verðið væri fullhátt og
jafnframt á því að kaupréttarsamn-
ingarnir væru þess eðlis að okkur
hugnaðist ekki að kaupa í fyrirtækinu.
Ef það eru breyttar aðstæður þá met-
um við hlutina upp á nýtt,“ segir
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri LSR. »2
Útboðslýs-
ingu verð-
ur breytt
Skoðað af FME
Heimagert konfekt, Glöggagægir, sushi
með dádýrinu, jólaísinn, grófar greinar
og blúnda í 32 síðna aukablaði