Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012
Nú stendur yfir Evr-
ópsk vinnuverndarvika
og af því tilefni er
ástæða til að velta fyrir
sér hvort hægt sé að
koma í veg fyrir vinnu-
slys og hvaða aðferðir
eru árangursríkar í því
sambandi. Það er ekk-
ert náttúrulögmál að
slasast við vinnu og það
er engin afsökun að
unnið sé við erfiðar og
hættulegar aðstæður.
Slíkt kallar eingöngu á
auknar öryggisráðstaf-
anir og í dag höfum við
nauðsynleg tól og tæki
til að takast á við slíkar
aðstæður án þess að
stofna öryggi starfs-
manna í hættu. Fyr-
irtæki eru misjafnlega
stödd í öryggismálum
og víða er pottur brot-
inn í þeim efnum. Ör-
yggisbragur er til stað-
ar þegar starfsmenn sýna í verki
ábyrgð í öryggismálum, áhættu-
hegðun er lítil og slysatíðni er lág.
Ekki ber að einskorða sig við slys
sem leiða til fjarvista þegar árangur í
slysavörnum er skoðaður. Líta verð-
ur á öll atvik og næstum slys sem
skráð eru hjá viðkomandi fyrirtæki
til að sjá hvernig staðan er. Það tekur
tíma og vinnu að innleiða góðan ör-
yggisbrag en sú vinna skilar sér að
lokum í færri fjarvistum, minni
kostnaði og ánægðari starfsmönnum.
Hvað einkennir fyrirmynd-
arfyrirtæki í öryggismálum?
Yfirstjórn fyrirtækis tekur ábyrgð
á öryggismálum og sýnir gott for-
dæmi í verki. Þetta er lykilatriði ef
byggja á upp öryggisbrag innan fyr-
irtækis því eftir höfðinu dansa lim-
irnir.
Ábyrgðarskipting öryggismála er
skýr og starfsmenn hafa vald til að
setja öryggismál í forgang við
ágreining eða erfiðar aðstæður.
Almennur skilningur er á því að
ástæður slysa eru fyrst og fremst at-
ferlislegar og þjálfun starfsmanna
miðast við það. Reynslan sýnir að
stóran hluta vinnuslysa má rekja til
atferlis eða hegðunar fremur en
hættulegra aðstæðna eða tækjabil-
ana. Með atferli er átt við að menn
fara ekki að öryggisreglum, þekkja
ekki öryggisreglur vinnustaðarins
eða hafa ekki hlotið nauðsynlega
þjálfun.
Almennir starfsmenn hafa sömu
skoðun á ástandi öryggismála í fyr-
irtækinu og yfirstjórn. Ef á þessu er
munur þá eru öryggismálin yfirleitt
ekki í lagi.
Mælanleg töluleg markmið eru
sett í öryggismálum. Að gera betur í
ár en á síðasta ári eða betur en sam-
keppnisaðili er ekki mælanlegt
markmið.
Öll atvik sem snerta öryggismál
eru skráð og unnið úr þeim í forvarn-
arskyni. Engu er sópað undir teppið
og starfsmenn fá að vita hvernig
nauðsynlegum úrbótum er háttað.
Þetta er algjört lykilatriði til að fá
starfsmenn til að tilkynna atvik/
næstum slys og óæskilegar vinnuað-
stæður.
Hvaða aðferðir höfum við til að
koma í veg fyrir vinnuslys?
Hægt er að nota ýmsar aðferðir og
engin ein er betri en önnur. Hér eru
taldar upp fimm aðferðir sem hægt
er að nota í þeim tilgangi og sé þeim
fylgt er líklegt að góður árangur ná-
ist við að fækka slysum á vinnustöð-
um. Sumar eru lögbundnar en aðrar
ekki.
Áhættumat: Skylt er að áhættu-
meta öll störf jafnt sem vinnuum-
hverfi. Áhættumat er grundvall-
artæki til fyrirbyggja slys á
vinnustöðum. Nauðsynlegt er að
starfsmenn komi beint að vinnu við
að áhættumeta sína eigin vinnu og
vinnustað, aðeins þannig gefur
áhættumat rétta mynd af aðstæðum.
Rannsókn vinnuslysa og atvik:
Nauðsynlegt er að rannsaka öll slys
og næstum slys til að koma í veg fyrir
að þau endurtaki sig. Flokka skal at-
vik eftir alvarleika og úrvinnslu og
endurbætur skal kynna öllum starfs-
mönnum. Bestu fyrirtæki geta lent í
því að það verði slys í þeirra starf-
semi. Það sem skilur á milli er hvern-
ig tekið er á málum og unnið úr þeim.
Atvikaskráning: Tilkynna og skrá
skal öll atvik sem geta haft áhrif á
heilsu, öryggi og vinnuumhverfi
starfsmanna. Því fleiri tilkynningar,
því betri öryggisbragur á vinnu-
staðnum.
Öryggissamtöl: Umræður og
kynningar á öryggismálum efla ör-
yggisvitund og styrkja öryggisbrag á
vinnustöðum. Nauðsynlegt er að allir
starfsmenn, yfirstjórn meðtalin, taki
þátt í slíkum umræðum og sýni gott
fordæmi í öryggismálum.
Öryggisskoðanir: Reglulegar ör-
yggisskoðanir eru hluti af öruggum
vinnustað. Allir starfsmenn bera
ábyrgð í öryggismálum og öryggis-
mál eru ekki einkamál ákveðinna
starfsmanna.
Það eru hagsmunir allra að fækka
vinnuslysum. Það eru mannréttindi
að koma heill heilsu heim úr
vinnunni.
Vinnuslys eru ekki náttúrulögmál
Eftir Kristján
Kristinsson »Reynslan sýnir að
stóran hluta vinnu-
slysa má rekja til atferl-
is eða hegðunar fremur
en hættulegra aðstæðna
eða tækjabilana.
Kristján
Kristinsson
Höfundur er öryggisstjóri nýfram-
kvæmda Landsvirkjunar.
Ég óttast að hér sé að hefjast kín-
verskt landnám. Ég óttast að það
sé að verða á Grímsstöðum á Fjöll-
um til að byrja með. Fyrst verður
félagi Nupos leyft að leigja jörðina
til 60 eða 99 ára með framlenging-
arleyfi, eins og Nupo segir í Kína
við blaðamenn. Hvernig geta sveit-
arstjórnir ráðið því að Ísland verði
fjötrað um aldur og ævi? Ég hélt
að hér væri ríkisstjórn, sem réði
hlutunum og þyrði að taka á þeim.
Ég sé framhaldið svona fyrir
mér ef samningur við Nupo um
leigu jarðarinnar verður gerður.
Fyrst koma hér Kínverjar og
teikna allt upp og hinar og þessar
byggingar verður ákveðið að
byggja. Svo segir Nupo: „Mig
vantar þúsund byggingaverka-
menn.“ „Þá höfum við ekki, svona
allt í einu. Við höfum tuttugu eða
þrjátíu héðan að norðan,“ segja
sveitarstjórnarmennirnir. „Það
gengur ekki,“ segir Nupo, „þetta
þarf að ganga fljótt fyrir sig. Ég
ráðgeri að hér komi fljótlega kín-
versk skip, fleiri en eitt, með bún-
að og þá verða verkamennirnir að
vera tilbúnir. Ég
þarf þúsund
bygginga-
verkamenn og þá
get ég fengið
strax frá Kína
og þeir koma
með fjölskyldur
sínar með sér.“
„Hvaða laun
eiga þessir
verkamenn að fá,“ verður hér
spurt? Þá segir Nupo: „Því ræð ég
sjálfur, það er ég sem borga og
það verður ekki eftir íslenskum
töxtum.“ Þá segja sveitarstjórn-
armennirnir: „Þetta er mjög skilj-
anlegt hjá honum. Þetta verður að
gera eins og hann segir svo að
eitthvað verði af framkvæmdum.
Þetta er Íslandsvinur og þykir
vænt um Ísland, hann gengur í
lopapeysu og borðar harðfisk. Svo
er hann dýravinur, myndir hafa
sést af honum þegar hann er að
leika sér með kött á skrifborðinu.“
„Godfather“ var líka að leika sér
með kött. Ætli Nupo hugsi að
kötturinn sé eins og íslenska þjóð-
in; veikgeðja og auðvelt að ljúga
öllu sem maður vill að henni.
Íslenskur málsháttur segir: Ef
þú réttir fjandanum litla putta, þá
tekur hann alla höndina. Kínverjar
flæddu yfir Tíbet og innlimuðu
það. Ef Ísland lægi við hlið Kína
væri búið að innlima það. Ísland
var fyrsta landið sem neitaði
Þýskalandi Hitlers um útþenslu
þegar við neituðum þýska flug-
félaginu Lufthansa um lending-
arleyfi hér. Hefur stjórn Íslands
manndóm í sér til að segja „nei“
núna? „Leyfið risanum að sofa,“
sagði Napóleon um Kína. Nú er
Kína vaknað en er Ísland sofnað?
Fljótum við sofandi að feigðarósi?
Umrætt leiguland er of stórt. Við
getum leyft útlendingum að byggja
hér hótel en ekki eignast land-
svæði. Ísland fyrir Íslendinga!
Kínverjar geta komið hingað eins
og aðrir ferðamenn og dvalið hér
um tíma en ekki til að setjast hér
að. Kínverjar! Verið velkomnir í
heimsókn en þegar brottfarartími
er kominn þá viljum við að þið far-
ið heim en setjist ekki að á heim-
ilum okkar. Guð blessi Ísland.
EYÞÓR HEIÐBERG
landunnandi.
Kínverskt landnám á Íslandi
Frá Eyþóri Heiðberg
Eyþór Heiðberg
Bréf til blaðsins
HERRASKÓR
Þú færð SKECHERS herraskó í: Skór.is, Kringlunni og Smáralind
Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | OUTLET Fiskislóð 75, Rvk
Fjarðarskór, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi
Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Versluninni Skógum,
Egilstöðum | System, Neskaupstað Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð
Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Verð 94.000 kr
Stærð 90x90cm
Sérsmíðum eldhúsborð eftir ósk hvers og eins
val um stærð, lögun og efni.