Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.10.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012 Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Við setjum stór spurningarmerki við þær breytur sem þarna eru sett- ar inn,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, um niðurstöður nýrrar rannsóknar sem benda til þess að íbúar háhitasvæða séu allt að þrefalt líklegri til að greinast með ákveðnar tegundir krabbameins en aðrir. Rannsóknin var meistaraverkefni Aðalbjargar Kristbjörnsdóttur í lýðheilsuvís- indum við Háskóla Íslands en í henni var 74.806 einstaklingum úr mann- talinu 1981 fylgt eftir í Krabba- meinsskrá til ársins 2010. Tvö há- hitasvæði voru til athugunar í rannsókninni, Hveragerði og Mý- vatnssveit. „Þarna er í raun bara tekið tillit til eins þáttar og það er hvort fólkið bjó í Hveragerði á ákveðnum degi árið 1981. Það er ekki spurt að því hvað það bjó lengi hérna til dæmis en það hlýtur að vera afgerandi þátt- ur,“ segir Aldís. Hún segir að Aðal- björg og leiðbeinandi hennar, Vil- hjálmur Rafnsson prófessor, hafi fundað með bæjaryfirvöldum um niðurstöðurnar en á þeim fundi hafi komi fram að ekki hafi verið kannað hvort aðrir lífsstílstengdir þættir hefðu haft áhrif. Erfðaþátturinn ókannaður „Síðan setjum við spurning- armerki við það hvers vegna Reykjavík og Suðurnesin voru ekki í samanburðinum,“ segir Aldís en svæðin voru undanskilin í rannsókn- inni vegna þess að tíðni krabbameins er hærri þar og því þóttu þau ekki samanburðarhæf við háhitasvæðin tvö. Aldís segir að enn fremur hafi ekki verið kannað hvað þeir ein- staklingar sem greindust með krabbamein á þessum árum áttu sameiginlegt annað en að hafa búið á háhitasvæðunum né hvort erfða- þættir hafi hugsanlega spilað inn í. Dagbjört S. Bjarnadóttir, odd- viti hreppsnefndar Skútustaða- hrepps, segir rannsóknina kalla á frekari rannsóknir. Aðstandendur hennar hafi boðist til að koma og sitja fyrir svörum og segir Dagbjört að Aðalbjörg verði meðal gesta á íbúafundi sem hefur verið boðaður 30. október næstkomandi, þar sem m.a. stendur til að ræða fram- kvæmdir í Bjarnarflagi. „Ég held að það séu bestu og heiðarlegustu viðbrögðin gagnvart íbúum að bjóða þeim upp á að spyrja þann sem framkvæmdi rannsóknina spurninga,“ segir Dagbjört. „Mér finnst þessi rannsókn allrar athygli verð en hún kallar á fleiri spurn- ingar og við fáum svör við ein- hverjum þeirra en ekki öllum,“ segir hún. Frekari rannsóknir Hvað varðar framhaldið segir Dagbjört ítarlegar upplýsingar liggja fyrir um heilsufar starfs- manna kísiliðjunnar og starfsmanna Landsvirkjunnar, sem gangist ár- lega undir læknisrannsókn, og segir hún að næst væri að vinna úr þeim upplýsingum, þar sem þessir starfs- menn séu hugsanlega útsettastir fyrir áhrif frá háhitanum. „Ef það eru þarna til mik- ilvægar upplýsingar þá ætti ekkert að liggja á þeim. En þetta er ferli í gegnum Persónuvernd og annað sem tekur tíma og þá þarf einhver að sýna þessu áhuga og allt kostar þetta peninga,“ segir hún. Ljósmynd/www.mats.is Rannsókn Fulltrúar háhitasvæðanna sem voru til athugunar í rannsókninni segja niðurstöðurnar vekja upp ýmsar spurningar. Niðurstöður kalla á frekari rannsóknir  Hefði þurft að taka tillit til fleiri þátta, segir bæjarstjóri Aldís Hafsteinsdóttir Dagbjört S. Bjarnadóttir Alþingi samþykkti í gær með 17 atkvæðum gegn 5 lagafrumvarp frá meirihluta eftirlits- og stjórn- skipunarnefndar þingsins. 12 þingmenn sátu hjá. Nýju lögin fela það m.a. í sér að fallið er frá áformum um hljóðritun rík- isstjórnarfunda. Lög um Stjórnarráð Íslands, sem samþykkt voru haustið 2011, gerðu ráð fyrir því að byrjað yrði að hljóðrita ríkisstjórnarfundi um síðustu áramót. Alþingi sam- þykkti síðan í desember 2011 lagafrumvarp um að gildistöku þessa ákvæðis yrði frestað til 1. nóvember í ár og nú hefur ákvæðið verið fellt úr gildi. Þing- menn stjórnarflokkanna sam- þykktu frumvarpið í gær að und- anskildum Þráni Bertelssyni, þingmanni VG, sem greiddi at- kvæði gegn því. Það gerðu einnig tveir þingmenn Hreyfingarinnar og tveir óháðir þingmenn en þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og einn þing- maður Hreyfingarinnar sátu hjá. Ríkisstjórnarfundir ekki hljóðritaðir Geir Gunn- laugsson landlæknir segir nið- urstöður rannsókn- arinnar at- hyglisverðar og vísbend- ingu um að ef til vill þurfi að athuga betur út- gufun frá háhitasvæðum. „Það sem er erfitt við svona rannsókn er að þetta er byggt á mannfjölda á ákveðnum tíma- punkti en það segir ekki hvernig fólk eyðir sínu daglega lífi,“ segir Geir, þrátt fyrir að fólk t.d. búi á háhitasvæði geti verið að það starfi utan þess svæðis. Hann segir rannsóknir af þessu tagi flóknar og að fjöl- margt þurfi að hafa í huga. „Akkúrat þessar niðurstöður leiða ekki til þess að við grípum til einhverra sértækra aðgerða. Miklu frekar til að hvetja rann- sóknarsamfélagið til að skoða þessi mál með opnum hug og velta fyrir sér hvert þetta sam- band raunverulega er og hvort það sé til staðar,“ segir hann. Þarf að hafa margt í huga LANDLÆKNIR Geir Gunnlaugsson Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - Sími 551 6646 Opið virka daga frá 10 -18 og laugardaga frá 11-15 Steinunn Kristjánsdóttir Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur mun næst- komandi þriðjudag segja frá niðurstöðum rannsóknar á rústum klaustursins sem rekið var á Skriðu í Fljóts- dal frá 1493 til 1554. Fyrirlesturinn verður í Þjóðminjasafninu þriðjudag- inn 30. október og hefst klukkan 12:05. Fjallað verður m.a. um það hvernig viðhorf kaþ- ólskra til dauðans og hlutverk klaustursins end- urspeglast í þeim leifum sem fundust í rústum Skriðu- klausturs. Fyrirlestur um klaustrið á Skriðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.