Morgunblaðið - 26.10.2012, Qupperneq 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012
var „spikk og span“. Við hugsum
oft um helluborðið hennar ömmu
þegar við erum að elda, því henn-
ar var skínandi hreint öllum
stundum.
Já, hún amma var svo sann-
arlega fyrirmynd sem hægt er að
líta upp til í einu og öllu, amma
sem alltaf var til staðar fyrir okk-
ur.
Þínar,
Hlín, Guðrún og Selma.
Það er mikil eftirsjá og sökn-
uður þegar svona þýðingamikil
manneskja hverfur úr lífi manns.
Mér finnst ég þó mjög lánsöm að
hafa fengið að eiga ömmu að í yfir
fjörutíu ár. Samverustundirnar
voru óteljandi, mikið var spjallað
og alltaf var gott að leita til
ömmu. Amma þurfti að fá að
fylgjast vel með öllu sem var í
gangi í lífi okkar barnabarnanna
og hún var þægilega ýtin og for-
vitin og það var mjög gott að
ræða við hana. Það voru ekki fáir
kaffibollarnir sem við drukkum
saman í eldhúsinu hennar.
Það var ekki sjaldan sem ég
kom við á Smyrlahrauninu sem
barn og unglingur á leiðinni heim
úr tónlistarskólanum eða af
íþróttaæfingu. Það var bara svo
gott að koma þarna við, spjalla
aðeins og fá eitthvað í svanginn.
Maður varð líka auðvitað alltaf að
þiggja eitthvað. Stundum fór ég
til að lesa fyrir próf hjá þeim og
var amma dugleg að spyrja mig
út úr. Eitt sinn fór ég þó til þeirra
að lesa fyrir próf og endaði á mið-
nætursýningu Leikfélagsins í
Austurbæjarbíói. Þetta var auð-
vitað stórkostlegt upplifelsi en ég
man ekkert hvernig mér gekk í
prófinu daginn eftir en það var
aukaatriði.
Við systur gistum reglulega á
Smyrlahrauninu og alltaf fengum
við að sofa uppí hjá ömmu en afi
var sendur niður í „kofa“ eins og
við krakkarnir kölluðum baðstof-
una hans.
Þegar afi og amma tóku við
umsjón sumarbústaðanna og fé-
lagsheimilisins í Hraunborgum
vorum við þar reglulegir gestir
og nutum þess að fá að aðstoða
þau við ýmis störf og að vera í
sveitasælunni.
Amma fór ekki í sína fyrstu
siglingu fyrr en hún var komin
upp undir fimmtugt en þá varð
heldur ekki aftur snúið og voru
þau afi mjög dugleg að ferðast
meðan heilsa var til. Margir dag-
ar hljóta að hafa farið í búðaráp
því að það voru eins og jól hjá
okkur barnabörnunum í hvert
sinn sem þau komu heim. Einu
sinni þegar þau komu heim úr
ferð var skólaball hjá mér sama
kvöld. Við amma sátum saman og
spjölluðum og auðvitað barst tal-
ið að því í hverju ég ætlaði að fara
á ballið. Ég fór eitthvað að kvarta
yfir því að mamma vildi ekki að
lána mér leðurpilsið sitt á ballið
og amma sagðist nú geta reddað
því. Hún hafði nefnilega keypt
sér leðurpils og jakka í ferðinni.
Það var ekki tauti við hana komið
og ég send heim með nýja ónot-
aða dressið. Þetta varð auðvitað
til þess að ég fékk að fara í pilsinu
hennar mömmu þetta kvöld.
Á 70 ára afmæli afa ákváðu
amma og afi að koma og heim-
sækja mig til Þýskalands. Amma
hafði oft talað um að henni þætti
óþægilegt að vita ekki hvernig
þetta væri hjá mér þegar við töl-
uðum saman í síma. Ég var að
flytja á þessum tíma og auðvitað
þótti þeim það bara kjörið að geta
aðstoðað við flutningana. Þessar
vikur voru mér alveg ómetanleg-
ar og verða lengi í minnum hafð-
ar.
Þó svo að heilsunni hafi verið
farið að hraka síðustu ár fylgdist
hún vel með okkur öllum fram á
síðustu stundir. Hún var stór-
kostleg amma og langamma.
Elsku afi og fjölskylda, megi
minningar um þessa einstöku
konu styðja ykkur í sorginni.
Elsku amma mín, takk fyrir
allt, hvíldu í friði, þín
Margrét (Ben).
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts ástkærs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
PÁLS INGIMUNDAR
AÐALSTEINSSONAR,
Bjarkarholti 1,
Mosfellsbæ.
Guðrún Hafsteinsdóttir,
Hafsteinn Pálsson, Lára Torfadóttir,
Bjarnveig Pálsdóttir,
Björk Pálsdóttir, Páll Valdimarsson,
Hrönn Pálsdóttir, Magnús L. Alexíusson,
Aðalsteinn Pálsson, Helga Grímsdóttir,
Steinþór Pálsson, Áslaug Guðjónsdóttir,
Gunnar Páll Pálsson, Ásta Pálsdóttir,
Snæbjörn Pálsson, Þórdís Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærra foreldra
okkar, tengdaforeldra, ömmu og afa, langömmu og langafa,
GUÐRÚNAR KARLSDÓTTUR
sem lést þriðjudaginn 8. maí 2012
og
JÓNS VIGFÚSSONAR
sem lést sunnudaginn 2. september 2012.
Edda Melax, Günter W. Schmid,
Stefán Már Jónsson, Hrefna Lind Borgþórsdóttir,
Kolbrún Jónsdóttir, Bæring Sigurbjörnsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGÓLFUR GUÐJÓNSSON
frá Eyri, Ingólfsfirði,
Nýbýlavegi 80,
Kópavogi,
lést mánudaginn 22. október.
Ólafur Ingólfsson, Svanhildur Guðmundsdóttir,
Lára Ingólfsdóttir, Jón Leifur Óskarsson,
Sigurður Ingólfsson, Ingunn Hinriksdóttir,
Halldór Kr. Ingólfsson, Hrönn Jónsdóttir,
Guðjón Ingólfsson, Harpa Snorradóttir,
Þórhildur Hrönn Ingólfsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, stjúpfaðir og bróðir,
ÓLAFUR FELIX HARALDSSON,
Mýrum 10,
Patreksfirði,
lést af slysförum laugardaginn 20. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Björg Sæmundsdóttir,
Alexandra Hólm Felixdóttir, Ísak Már Símonarson,
Melkorka Marsibil Felixdóttir, Ásþór Elvarsson,
Guðbjartur Ingi Felixson,
Sædís Eiríksdóttir, Davíð Þ. Valgeirsson,
Davíð Jónsson,
Stefán Dagur Jónsson
og systkini hins látna.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og
bróðir,
ELINÓR HÖRÐUR MAR,
Eyjabakka 10,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
mánudagskvöldið 22. október.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 2. nóvember
klukkan 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Árni Eggert Harðarson,
Elinóra Ósk Harðardóttir, Gunnar Valgeirsson,
Halldór Þór Harðarson
og barnabörn.
✝ Ólöf MaríaGuðmunds-
dóttir fæddist 20.
september 1919 á
Refsteinsstöðum í
Víðidal, Vestur-
Húnavatnssýslu.
Hún lést á Dvalar-
og hjúkrunarheim-
ilinu Grund í
Reykjavík 22.
október 2012.
Foreldrar Ólaf-
ar Maríu voru Guðmundur Pét-
ursson frá Stóru-Borg í Vestur-
Húnavatnssýslu og Sigurlaug
Jakobína Sigurvaldadóttir frá
Gauksmýri í sömu sýslu. Átján
ára fluttist hún ásamt fjöl-
skyldu sinni frá Refsteins-
stöðum að Nefstöðum í Stíflu.
Ólöf María var næstelst systk-
ina sinna en þau eru í ald-
ursröð: Þrúður Elísabet, látin,
Vilhjálmur, látinn, Pétur Krist-
ófer, látinn, Sigurvaldi, Stein-
unn, Sigurbjörg, látin, Jón
Unnsteinn, látinn, og Fríða
Klara.
Árið 1943 giftist Ólöf María
Guðmundi Jóhannssyni frá
Tungu í Stíflu, þau skildu.
Börn þeirra eru: 1) Sigríður
Jóhanna, gift Jóni
Péturssyni, þau
eiga tvö börn,
þrjú barnabörn og
eitt lang-
ömmubarn. 2) Ólöf
Sigurlaug, látin,
hún var gift Sig-
urði Emil Ólafs-
syni, eiga þau tvö
börn og tvö barna-
börn. 3) Sigurlína,
var gift Gylfa Þór
Gíslasyni, þau skildu, eiga þau
þrjú börn og átta barnabörn
og er hún nú í sambúð með
Jean Posocco. 4) Guðmundur
Þröstur, kvæntur Björgu
Ólafsdóttur og eiga þau eina
dóttur.
Eftir almenna skólagöngu
stundaði Ólöf María nám við
Húsmæðraskólann á Blönduósi
frá 1938-1939 og síðan á
Laugalandi í Eyjafirði veturinn
1940-1941. Ásamt húsmóð-
urstörfum vann hún á Rauða-
krosshótelinu í Reykjavík um
tíma.
Ólöf María verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju í
dag, 26. október 2012, og hefst
athöfnin kl. 13.
Mamma, þú varst yndisleg
mamma mín, mér fannst gott
að koma til þín, já, svoleiðis var
það á okkar æskuheimili, það
var alltaf jafn gott að koma til
þín. Þú varst okkar fyrirmynd
og stoð og stytta, þú varst
glæsileg kona með góða skapið
alltaf í fyrirrúmi. Syngjandi
varstu við vaskinn og syngjandi
varstu yfirleitt öllum stundum
og gerðir alltaf gott úr öllu.
Það er erfitt að setjast nið-
ur til að skrifa minningargrein
um þig, því fyrir utan að vera
móðir okkar og uppalandi
varstu stórbrotin manneskja.
Þú varst í orðsins fyllstu
merkingu hvunndagshetja, þú
varst engum lík í dugnaði, þú
bjóst okkur fallegt heimili, þú
eldaðir besta mat í heimi og
oft tókst þér að búa til veislu-
mat úr litlu, alltaf var heimilið
þitt hreint og fágað og alla tíð
vaktir þú yfir velferð okkar
tilbúin að leiðbeina okkur ef
hægt var.
Það dýrmætasta sem móðir
getur gefið börnum sínum er
umhyggja, umburðarlyndi og
ást þú áttir nægtabrunn af
þessu öllu, þú gafst okkur þetta
allt og miklu meira. Elsku
mamma það er ekki hægt að
lýsa þér með neinum lýsing-
arorðum, þú varst svo stórkost-
lega ótrúleg stundum að við
dætur þínar veltum því oft fyrir
okkur frá hvaða plánetu þú
hefðir komið í upphafi. Að
mörgu leyti varstu gæfukona í
lífinu, þrátt fyrir veikindi þín,
sorgina og marga erfiðleika
sem þú þurftir að ganga í gegn-
um, en skynsemi þín og létta
lundin hjálpuðu þér til að rísa
upp og halda áfram veginn.
Þú varst ekki bara glæsileg,
þú varst falleg og alltaf varstu
fallega klædd, enda svolítil
pjattrófa í eðli þínu, þinn
minnisvarði er fallegur og
margir munu minnast þín með
virðingu, þú varst góð vinkona
okkar barnanna þinna og var
nærvera þín þægileg, húmor-
inn og létta lundin og brosið
þitt fallega var alltaf í far-
arbroddi, þú laðaðir að þér
fólk og það munu margir
sakna vinar í stað.
Við systurnar eigum eftir að
sakna þín, við erum búnar að
vera saman og fylgjast að í allt
að 70 ár og verður það und-
arlegt að hafa þig ekki lengur á
meðal okkar. Mamma, það
verður tómlegt þegar kveðju-
stundin er afstaðin og við
kveðjum þig með trega en
þakklæti fyrir að hafa átt þig.
Við erum fullvissar um að þér
hefur verið vel fagnað og eins
vitum við að þú munt standa í
hlaðvarpanum þegar okkar tími
kemur og taka þar á móti okk-
ur fagnandi.
Þú varst móðirin mín,
og er minnist ég þín,
mér hugstæðast verður þér hjá:
þín meðfædda gleði
og mildi í geði
er mótlæti sigruðust á.
(Ívar Björnsson frá Steðja.)
Elsku mamma.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Kveðja frá dætrum þínum,
Sigríði Jóhönnu (Sirrý)
og Sigurlínu (Línu.)
Elsku Lóa amma kvaddi
þennan heim í vikunni. Ynd-
islegri konu var hvergi að finna
og er ég þess fullviss að hún
hefur áunnið sér þann besta
stað á himnum sem völ er á. Ég
og mín fjölskylda urðum þess
heiðurs aðnjótandi að hafa
hana oft í kringum okkur og
eru okkur sérstaklega í minni
þau jól sem hún dvaldi hjá okk-
ur, enda litríkur karakter sem
hafði frá mörgu að segja. Við
nutum þess að hlusta á hana
segja okkur sögur frá því í
gamla daga, þegar ekkert raf-
magn var í torfkofanum og hún
þurfti að lesa við tungsljósið,
eða að hún æfði sig að skrifa á
spássíurnar í lestrarbókunum
því enginn pappír var til.
Elsku amma mín á stóran
sess í mínu hjarta og kenndi
mér margt, ekki síst bænir.
Hér er bæn sem við fórum oft
með saman og mun fylgja mér
sem minning um ömmu um
ókomna tíð.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Ég elska þig.
Þín nafna,
Ólöf María yngri.
Mig langar að segja nokkur
kveðjuorð til Lóu ömmu.
Elsku besta amma mín, þú
hefur komið þó nokkru af
visku í kollinn á manni. Ég hef
metið það amma mín enda var
ég mikið hjá þér. Sem barn í
Barmahlíðinni þegar þú bjóst
þar kenndir þú mér að prjóna
vettlinga, svo kenndir þú mér
líka vísur og kvæði. Síðan
fluttist þú í Bólstaðarhlíðina,
þá var ég komin á fullorðinsár
og farin að búa, en samt kom
ég oft til þín amma mín. Við
höfum átt margar góðar
stundir saman en síðasta árið
bjóstu á Grund. Ég kom líka
oft til þín þangað.
Þú kenndir mér mikið af vís-
um og hér eru tvær af vísunum
sem þú kenndir mér.
Allt fram streymir endalaust
ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust
horfin sumarblíða.
Hina vísuna orti langafi
minn, hann Guðmundur Péturs-
son, pabbi þinn.
Kátur og hún Týra tík
tölta hér um bæinn,
enga sem þau eiga flík
í að vera á daginn.
Þín
Hildigunnur Jónína.
Ólöf María
Guðmundsdóttir
Látinn er vinur okkar og fé-
lagi Aðalsteinn Valdimarsson.
Aðalsteinn
Valdimarsson
✝ AðalsteinnValdimarsson
skipstjóri fæddist á
Eskifirði 24. maí
1931. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaup-
stað 14. október
2012.
Útför Aðalsteins
fór fram frá Eski-
fjarðarkirkju 19.
október 2012.
Aðalsteinn sat í
stjórn Hjartaheilla
til margra ára og
var formaður deild-
arinnar á Austur-
landi til dauðadags.
Hann vann ýmis
trúnaðarstörf fyrir
Hjartaheill og sat
m.a. í stjórn SÍBS
um nokkurra ára
skeið sem fulltrúi
Hjartaheilla og
naut hann sín vel á þeim vett-
vangi.
Aðalsteinn vann ötullega að
málefnum Hjartaheilla, alla tíð,
með hagsmuni samtakanna og
félagsmanna að leiðarljósi. Að-
alsteinn var hreinskiptinn,
fylginn sér og gagnorður. Hann
var afskaplega ljúfur maður með
létta lund og átti auðvelt með að
fá aðra til fylgis við hin ýmsu
málefni þegar á þurfti að halda.
Fyrir nokkrum árum ákvað
hann að kominn væri tími á að
hleypa yngra fólki að og yfirgaf
stjórnarsetu í stjórnum Hjarta-
heilla og SÍBS.
Fyrir hönd stjórnar Hjarta-
heilla þökkum við Aðalsteini
samfylgdina og sendum aðstand-
endum hans okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Guðmundur Bjarnason for-
maður og Ásgeir Þór Árna-
son, framkvæmdastjóri
Hjartaheilla.