Morgunblaðið - 26.10.2012, Side 35
ur verið markaðsstjóri Smáralind-
ar frá 2010.
Guðrún sat í stjórn AIESEC,
Alþjóðafélags viðskipta- og hag-
fræðinema sem vann að starfa-
skiptum nema milli landa.
Les og spilar árið um kring
Guðrún segist vera bókaormur:
„Ég hef alltaf átt mjög auðvelt
með að detta ofan í bækur þannig
að ég gleymi stund og stað. Ég las
mikið glæpareyfara hér áður fyrr
en svo var ég í bókaklúbbi um
skeið og nú les ég eiginlega allt
milli himins og jarðar. Það er af-
skaplega notalegt að geta slökkt á
heiminum og sökkt sér ofan í
bók.“
Heldurðu að fólk sé farið að lesa
meira og draga úr sjónvarpsglápi?
„Ef ég ætti að svara þessari
spurningu með hliðsjón af mínum
vinum og kunningjum, þá held ég
að svo sé. Ég er hins vegar ekkert
viss um að það eigi við um sam-
félagið í heild. Ætli fólk geri ekki
hvort tveggja, horfi á sjónvarp og
lesi. Ég held hins vegar að þeim
fækki mikið sem horfi á hvað sem
er í sjónvarpi, hvenær sem er.“
Einhver önnur áhugamál?
„Já, ég er mjög mikil spila-
manneskja. Afi heitinn kenndi mér
að spila þegar ég var krakki.
Hann hélt því nú reyndar fram að
ekki mætti spila á sumrin, þ.e.a.s.
einungis mætti spila í þeim mán-
uðum sem hafa „r“ í heiti sínu.
Þess vegna mætti ekki spila í maí,
júní, júlí né í ágúst. En ég hef nú
ekki haldið þessa reglu hans afa í
heiðri í seinni tíð. Ég spila allan
ársins hring.“
Í fullorðinsfimleikum
En hvað spilarðu og við hverja?
„Ég spila aðallega borðspil við
fjölskyldu mína og vini. Risk var
mjög vinsælt á tímabili en nú er
Catan efst á vinsældalistanum.
Við höfum gaman af því að
bjóða vinum í mat og síðan er sest
niður og spilað á fullu.
Síðan verð ég að nefna fimleik-
ana. Ég fór að æfa fimleika fyrir
fullorðna í byrjun þessa árs hjá
Fjölni í Egilshöll, og ég er alveg
heilluð af þessari íþrótt. Þetta er
súpergóð hreyfing og alveg sér-
staklega skemmtilegt, með frá-
bæru fólki og góðum þjálfurum.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Auð-
unn Stefánsson, f. 20.10. 1972,
sölu- og markaðsstjóri hjá tölvu-
fyrirtækinu Þekkingu. Hann er
sonur Stefáns Halldórssonar, f.
20.5. 1927, d. 4.4. 2009, frá Hlöðum
í Hörgárdal, bónda, og Önnu Jóns-
dóttur, f. 10.8. 1927, fyrrv. hús-
freyju og bónda.
Börn Guðrúnar og Auðuns eru
Elvar Karl, f. 24.2. 2001; Júlía
Hrönn, f. 2.10. 2004, og Hrafnkell
Orri, f. 27.4. 2008.
Systkini Guðrúnar eru Sveinn
Kristinn Örnólfsson, f. 18.2. 1977,
rafeindatæknifræðingur, búsettur
í Reykjavík; Sigríður Rósa Örn-
ólfsdóttir, f. 1.10. 1992, nemi við
HÍ.
Foreldrar Guðrúnar eru Örn-
ólfur Sveinsson, f. 20.11. 1947,
framkvæmdastjóri í Reykjavík, og
Guðrún Björnsdóttir, f. 9.12. 1950,
lengi starfsmaður við Morgun-
blaðið.
Guðrún Björnsdóttir, lengi starfsm.Morgunblaðsins
Úr frændgarði Guðrúnar Margrétar Örnólfsdóttur
Guðrún Margrét
Örnólfsdóttir
Kristfríður Sveinbjörg Hallsdóttir
húsfr. á Ölviskrossi
Markús Benjamínsson
b. á Ölviskrossi í
Kolbeinsstaðahr.
Björn Svavar Markússon
húsasmiður í Borgarnesi og á Akranesi
Sigríður Rósa Þórðardóttir
húsfr. í Borgarnesi og á
Akranesi
Guðrún Björnsdóttir
lengi starfsm.Morgunblaðsins
Sigurveig Davíðsdóttir
húsfr. í Hraunsmúla
Þórður Árnason
b. á Hraunsmúla í Kolbeinsstaðahr.
Margrét Þórlaug Guðnadóttir
húsfr. á Suðureyri og í Rvík
Örnólfur Jóhannesson
verkam. á Suðureyri og síðar
starfsm. prentsm. Eddu í Rvík
Guðrún Þ. Örnólfsdóttir
húsfr. á Akranesi
Sveinn Kristinn Guðmundsson
kaupfélagsstj og útibússtjóri á
Akranesi
Örnólfur Sveinsson
framkvæmdastj. í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. á Búðum
Guðmundur Stefánsson
járnsmiður á Búðum á Fáskrúðsfirði
Benjamín Markússon
b. á Ystu-Görðum
Ölver Benjamínsson
b. á Ystu-Görðum
Í Smáralind Guðrún Margrét í
vinnunni.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2012
Ingvar Vilhjálmsson útgerð-armaður fæddist í Dísukoti íDjúpárhreppi 26. október 1899.
Foreldrar Ingvars voru Vilhjálmur
Hildibrandsson, járnsmiður í
Reykjavík, og k.h., Ingibjörg Ólafs-
dóttir húsfreyja.
Vilhjálmur var sonur Hildibrands,
b. í Vétleifsholti Gíslasonar, og
Sigríðar Einarsdóttur, b. í Búð-
arkoti Ólafssonar, bróður Jóns, b. í
Snotru, langafa Guðrúnar, móður
Guðmundar Arnlaugssonar, fyrrv.
rektors MH.
Ingibjörg var systir Önnu, föður-
ömmu Sveinbjörns Dagfinnssonar,
fyrrv. ráðuneytisstjóra. Ingibjörg
var dóttir Ólafs, b. á Bakka í Þykkva-
bæ, bróður Guðbjargar, langömmu
Rúnars Guðjónssonar, sýslumanns í
Reykjavík.
Ingvar lauk prófi frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík 1926.
Ingvar hóf sjómennsku á opnum
bátum frá Þorlákshöfn 1916, var á
vélbát frá Eyjum, togarasjómaður
1920-27, stýrimaður frá Patreksfirði
1927-30 og skipstjóri þar til 1935.
Ingvar var einn þekktasti úgerð-
armaður aldarinnar. Hann hóf út-
gerð, fiskkaup og fiskverkun í
Reykjavík 1935, stundaði síldar-
söltun 1935-39, stofnaði Sölt-
unarstöðina Sunnu hf. á Siglufirði
1939, keypti hluta Síldarbræðslunnar
hf. á Seyðisfirði 1942, stofnaði Ís-
björninn hf. í Reykjavík 1944 og var
forstjóri hans. Þá stofnaði hann
Sunnuver á Seyðisfirði og Síldar-
verksmiðjuna Hafsíld.
Ingvar sat í sjó- og verslunardómi
Reykjavíkur, í sjávarútvegsnefnd, í
Útgerðarráði Reykjavíkur, var
stjórnarformaður Samlags skreið-
arframleiðenda, sat í Rannsóknar-
ráði ríkisins, var stjórnarformaður
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar
hf., varaformaður stjórnar Eimskips,
sat í stjórnum LÍÚ, VSÍ, Aflatrygg-
ingasjóðs, Olíuverslunar Íslands,
Sjóvár, SH og Coldwater Seafood
Corporation.
Kona Ingvars var Áslaug Jóns-
dóttir en börn þeirra á lífi eru Jón,
fyrrv. stjórnarformaður SH, og Sig-
ríður stjórnmálafræðingur.
Ingvar lést á aðfangadag jóla 1992.
Merkir Íslendingar
Ingvar
Vilhjálmsson
90 ára
Brynjólfur Jónsson
85 ára
Árni Einarsson
Steinunn Þorsteinsdóttir
80 ára
Dagbjört Jóns
Sigurðardóttir
Elín Kristinsdóttir
Erna S. Karlsdóttir
Friðrik Kristjánsson
75 ára
Alda Sveinsdóttir
Elías Guðmundsson
Guðjón Sigurður
Guðbjartsson
Gunnlaugur H. Gíslason
Ingibjörg Kjartansdóttir
Magnús Gíslason
70 ára
Ingibjörg Harðardóttir
Þórður Jónsson
60 ára
Anna Ragna Gunnarsdóttir
Einar Sigurþórsson
Gunnar Atli Överby
Ingibjörg F. Bernódusdóttir
Jónas Þorgeirsson
Kristín Haraldsdóttir
Páll Magnússon
Þorvarður Þórðarson
50 ára
Einar Guðmundur
Unnsteinsson
Guðmundur Halldór
Magnússon
Guðmundur J. Hjaltested
Guðmundur Kristinn
Ásvaldsson
Gunnhildur Harðardóttir
Olga Hanna Möller
Olgeirsdóttir
Ragnheiður K.
Sigurðardóttir
Róbert Jósefsson
Sevil Gasanova
Snorri Leifsson
Svavar Þór Guðjónsson
Valgerður Friðriksdóttir
Valur Þór Helgason
40 ára
Brynja Árnadóttir
Dalrós Jóhanna
Halldórsdóttir
Daníel Sveinsson
Dorota Murawska
Heiða Viðarsdóttir
Íris Hvanndal Skaftadóttir
Pétur Gíslason
Sigríður Björg Ingólfsdóttir
Sonja Pétursdóttir
Sævar Haukdal Böðvarsson
30 ára
Ari Guðvarðsson
Ásrún Björg Arnþórsdóttir
Barði Erling Barðason
Benoit Daniel Francois
Deblire
Garðar Jóhannsson
Heimir Berg Vilhjálmsson
Helga Dóra Gunnarsdóttir
Huyen Thu Nguyen
Jón Björgvin Pétursson
Jón Snær Ragnarsson
Jón Torfi Gunnlaugsson
Sigríður María
Róbertsdóttir
Vilborg Jónsdóttir
Til hamingju með daginn
70 ára Kristján ólst upp í
Reykjavík og er mat-
reiðslumeistari mötuneyt-
is RÚV í Reykjavík.
Maki: Vigdís Aðalsteins-
dóttir, f. 1946, húsfreyja.
Börn: Sæmundur, f.
1965; Hersteinn, f. 1969;
Arndís Eir, f. 1970, og
Hekla Rán, f. 1983.
Foreldrar: Sæmundur E.
Kristjánsson, f. 1909. d.
1982, vélstjóri, og Bene-
dikta Þorsteinsdóttir, f.
1920, d. 2011, húsfreyja.
Kristján
Sæmundsson
50 ára Birgir ólst upp í
Reykjavík, er mat-
reiðslumaður og rak Hót-
el Læk á Siglufirði.
Maki: Sóley Ingibjörg Er-
lendsdóttir, f. 1959,
starfsmaður ÍTR.
Synir: Guðlaugur Ellert, f.
1988, og Gunnar, f. 1990.
Foreldrar: Halldóra
Gunnarsdóttir, f. 1933,
sjómannskona, og Hauk-
ur Guðmundsson, f. 1921,
d. 1991, skipstjóri.
Hann er að heiman.
Birgir Kr.
Hauksson
60 ára Halldór ólst upp í
Reykjavík lauk prófi í raf-
virkjun frá Iðnskólanum
og er rafverktaki.
Maki: Gyða Þórisdóttir, f.
1959, kennari.
Börn: Guðrún Björg, f.
1982; Ragnheiður, f. 1986,
og Þórir Ólafur, f. 1990.
Foreldrar: Guðrún Ólafs-
dóttir, f. 1932, d. 2012,
húsfreyja og skrif-
stofumaður, og Ólafur
Helgason, f. 1925, d.
1986, bifreiðastjóri.
Halldór
Ólafsson
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Bjöllutímarnir hjà Hilmari
eru meirihàttar. Mjög
fagmannlegir, skemmtilegir
og fjölbreyttir. Bjöllurnar eru
nákvæmlega það sem ég var
að leita að til að koma mér í
frábært form.
Veggsport hefur upp á allt að
bjóða sem èg þarf.
Lárus Ómarsson
Styrkir alla vöðva líkamans
Frábært nýtt æfingarform
sem þjálfar þol, styrk og
liðleika, allt í senn.
Ketilbjöllur gætu
verið málið fyrir þig
Frír prufurtími
Ketilbjöllutímar
þri. og fim., kl 12.00 og 17.15
lau., kl. 10.00