Morgunblaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2012 Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 25 ára karlmann í fimm mánaða fangelsi fyrir fjölda þjófn- aða. Maðurinn var m.a. sakfelldur fyrir að stela 42 pökkum af kjúk- lingabringum úr Krónunni á tveimur vikum. Að auki stal hann tveimur flösk- um af viskíi úr verslun Vínbúðar- innar og tölvuleikjafjarstýringu, tveimur tölvuleikjum, minnislykli, rafmagnstannbursta og stafrænum myndaramma úr Elko. Maðurinn var að auki sakfelldur ásamt 24 ára konu fyrir að stela skeggsnyrti, hárklippum og þráð- lausum USB móttakara úr Elko. Öll voru brotin framin í janúar á þessu ári. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil en honum hefur sjö sinn- um verið gerð refsing frá árinu 2007. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann stal fyrir rúmar tvö hundruð þúsund krónur á stuttum tíma. Í meðferð vegna ópíumfíknar Konan var dæmd í þriggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi en hún á að baki töluverðan sakaferil og rauf með broti sínu skilorð. Hún lagði fram læknisvottorð þar sem fram kemur að hún innritaðist og dvaldi á Vogi frá 7. febrúar sl. til 25. febrúar á þessu ári. Þá hefði hún verið í eftirmeðferð á Vík frá 25. febrúar sl. til 10. apríl sl. og staðfest sé að hún sé í viðhalds- meðferð, vegna ópíumfíknar, á Vogi. Konan sagðist hafa verið í mik- illi neyslu en snúið við blaðinu. Dómhús Héraðsdómur Reykjaness í Hafnarfirði. Stal 42 pökkum af kjúklingabringum Komdu við og kynntu þér samskiptatæki sem gætu opnað nýjan heim fyrir þig og þína. Ellisif Björnsdóttir heyrnarfræðingur Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur Sími 534 9600 · heyrn.is Opið kl. 9.00-16.30 Verð nú 27.455 kr. Einfalt og ódýrt samskiptatæki með 15% jóla- afslætti til áramóta Jólagjöfin fyrir þá sem vilja heyra betur F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is Iðnaðarryksugur Teg: T 12/1 Ryksugar þurrt Teg: NT 45/1 Eco Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35 mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. Gólfþvottavélar Háþrýstidælur Teg: SX Plus Teg: BR 40/10 C Adv Teg: BD 40/12 C Sópar Teg: KM 70/20 C Teg: MC 50 Classic Gufudælur Teg: HDS 10/20-4 M 30-200 bör 500-1000 ltr/klst makes a difference Þegar gerðar eru hámarkskröfur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.