Morgunblaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 2012 ✝ Bolli A. Ólafs-son fæddist í Valhöll á Patreks- firði 12. september 1926. Hann lést í Sunnuhlíð, hjúkr- unarheimili í Kópa- vogi, 20. nóvember 2012. Foreldrar hans voru Aðalsteinn P. Ólafsson, f. 19. sept. 1899, d. 18. júní 1980 og Stefanía Erlendsd., f. 21. nóv. 1896, d. 18. feb. 1943. Systkini, Heba A. Ólafsson, f. 1928, d. 1991, Sjöfn A. Ólafsson, f. 1929, d. 1989, Sif A. Ólafsson, f. 1931, d. 2010, Hera A. Ólafs- son, f. 1933, Pétur A. Ólafsson, f. 1937, d. 1998, hálfsystir, sam- mæðra Erla Egilsson, f. 1924, d. 2010. Hinn 22. október 1947 giftist Bolli Svanhildi M. Júlíusdóttur frá Viðey, f. 15. des. 1925, d. 11. Gunnars frá fyrra hjónabandi m/ Sóleyju Sigurðardóttur eru Sigurður Hólm forstöðumaður, f. 1976, og Haraldur Ingi nemi, f. 1983, hann á eina dóttur Rúnu, f. 2007. Svala á eina dótt- ur Elsu Ýri flugvirkja, f. 1975. Bolli ólst upp á Patreksfirði til 12 ára aldurs en eftir það að mestu hjá afa sínum og ömmu á Akureyri sem voru María og Pétur A. Ólafsson. Hann lærði húsgagnasmíði hjá Snæbirni G. Jónssyni. Þá var hann verkstæð- isformaður hjá Helga Ein- arssyni í 26 ár. Bolli var formað- ur Félags húsgagnasmiða í 18 ár og í stjórn félagsins í 35 ár. Bolli var fyrsti formaður Sambands byggingamanna sem var stofn- að árið 1964, hann sat í Iðn- fræðsluráði í árabil. Bolli var í stjórn Barðstrendingafélagsins í Reykjavík í 21 ár og í stjórn Gests í 15 ár. Bolli vann hjá Landmælingum Íslands 1985- 1996 í 11 ár. Útför Bolla fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 29. nóv- ember 2012, klukkan 13. júní 2007. For- eldrar hennar voru Guðrún Gunn- arsdóttir, f. 20. júní 1899, d. 7. okt. 1980, og Júlíus H. Svanberg, f. 7. maí 1900, d. 30. júní 1972. Börn Bolla og Svanhildar eru 1) Hildur kjólameist- ari, f. 1949, gift Ófeigi Björnssyni gullsmiðameistara, f. 1948. Syn- ir þeirra eru a) Bolli gull- smiðameistari, f. 1970, kona hans Þórunn Margrét Gunn- arsdóttir, börn þeirra eru Gunn- ar, f. 1992, Hildur Margrét, f. 2002, Bára María, f. 2005. b) Björn kvikmyndaframleiðandi, f. 1973, sambýliskona hans er Aníta Rut Harðardóttir. 2) Gunnar matreiðslumeistari, f. 1953, kona hans Svala Ágústs- dóttir kennari, f. 1959. Synir Ég vil minnast Bolla tengda- föður míns með fáeinum orðum. Hann reyndist mér ákaflega vel í alla staði og margt hef ég lært af honum, ekki síst um mannleg samskipti. Hann átti ákaflega farsælan feril sem húsgagna- smiður og var virkur í fé- lagsstarfi greinarinnar, ekki síst fræðslumálum. Árið 1974 byggði hann sér verkstæði að Kirkjuteigi 17 þar sem hann tók að sér margvísleg verkefni. Meðal verkefna voru gluggar, hurðir og stigar í hús í Þing- holtunum, Kvosinni og víðar. Mér er sérstaklega minnis- stætt þegar hann smíðaði bæði glugga og hurðina fyrir Flateyj- arkirkju á Breiðafirði. Honum þótti málið sér skylt sem Barð- strendingi og naut verkefnisins. Hann var fagmaður fram í fing- urgóma, vinnuglaður og hraust- ur. En þar kom að hann fékk heilablóðfall og lamaðist hann hægra megin. Einnig missti hann málið að miklu leyti og það þótti honum verst að sætta sig við því hann var alveg klár í kollinum. Ég kveð vin minn og tengdaföður með miklum sökn- uði en samt með gleði í huga. Ófeigur Björnsson. Afi er dáinn, ég var hjá hon- um þegar hann fór ásamt hans nánustu og er ég þakklátur fyr- ir að geta kvatt hann á fallegri stund. Ég fæddist á afmælis- daginn hans 12. september 1970 og var skírður í höfuðið á hon- um og hef ég alltaf verið stoltur af að fá að bera nafnið hans. Hann var góður maður, glaður og stríðinn. Hann var alltaf að flauta og var algjör snillingur, því miður náði ég aldrei þeirri færni en reyndi þó mikið. Afi fór daglega í sund í Laugardals- laugina alveg þangað til hann missti heilsuna, ég og Bjössi bróðir minn fórum oft með hon- um í sund og kenndi hann okk- ur að synda. Ég var oft með honum á trésmíðaverkstæðinu hans á Kirkjuteignum og fylgd- ist ég með honum af aðdáun. Hann var nákvæmnismaður og allt svo vandað sem hann gerði. Þegar ég fékk flís sem kom stundum fyrir þá var hann snöggur til og fjarlægði hana með sporjárni, og setti síðan plástur á. Traust á honum var algjört, enda gekk það alltaf vel. Ég fór með honum og ömmu Svanhildi til Patró og gistum við á leiðinni í Bjarkarlundi og Flókalundi. Afi vann mikið fyrir Barðstrendingafélagið og tók þátt í að byggja þessi hótel. Ég og Bjössi fórum líka oft með afa og ömmu á skemmtanir hjá Barðstrendingafélaginu, þá var gaman, fullt af veitingum og nóg að gera í eltingaleik með krökkunum. Þegar ég var hjá ömmu og afa gaf afi mér stund- um pening og mátti ég alls ekki segja ömmu frá en þá var ég oft búinn að fá aur hjá ömmu og fékk sömu skilaboðin frá henni. Á Kirkjuteignum hjá ömmu og afa var gaman að vera og nóg að gera. Afi og amma voru oft með veislur, gömlu húsgagna- smiðirnir komu alltaf árlega og fengum við oft að vera með. Afi var mjög góður kokkur hann eldaði og bakaði, uppáhaldið mitt var alltaf vestfirskar hveitikökur með hangikjöti og baunasalati. Ég kveð afa minn með söknuði. Bolli Ófeigsson. Sólskinssumarið mikla 1939 vorum við Bolli frændi minn á Þrastarstöðum hjá Páli móður- bróður okkar og Hólmfríði konu hans. Það var síðasta sumarið þeirra þar. Við nutum dvalar- innar hjá frændfólkinu okkar góða við störf sem hæfðu aldri og getu. Tómstundir áttum við nægar og er mér í minni að Bolli var hagari miklu en við frændsystkini hans, smíðaði til að mynda lítinn bát sem var ná- kvæm eftirlíking togara. Hann var glaðvær og þolinmóður og hlýr við okkur sem yngri vorum en hann. Þetta sólbjarta sumar kynntist ég frænda mínum vel. Ég hafði þó vitað af honum svo lengi sem ég mundi. Mæður okkar skrifuðust á, ég fékk jóla- kort frá Bolla og við fengum myndir af fjölskyldunni á Pat- reksfirði. Bolli átti fimm systur, hverja annarri fallegri. Það þótti mér ofrausn því að ég átti enga. Ég hafði einnig hitt hann þegar hann kom við á Siglufirði á ferðum sínum að vestan til Akureyrar. En eftir sumarið okkar á Þrastarstöðum tengdi ég hann alltaf sumri og sólskini. Árin liðu. Bolli hélt til Reykjavíkur, lærði húsgagna- smíði og reyndist ekki einasta hagur heldur og smekkvís og listfengur. Hann var stéttvís hugsjónamaður og árum saman formaður Sveinafélags hús- gagnasmiða. En hann sótti fleira til höfuðborgarinnar en kunnáttu og félagsþroska. Mér er í minni að hann kom í heim- sókn norður með fallega stúlku sér við hlið, Svanhildi Svanberg. Þau geisluðu af hamingju ung og glæsileg. Ekki grunaði mig þá að er tímar liðu yrðu þau hjón nánir vinir okkar Bjargar. Við áttum margar glaðar stund- ir á glæsilegu heimili þeirra. Við ferðuðumst saman og eru okkur Vatnsfjarðarferðirnar sérstak- lega minnisstæðar. Það var gaman að vera með Bolla og Svanhildi. Þau bjuggu yfir nota- legri glaðværð og öfundlausri hlýju svo að öllum leið vel í ná- vist þeirra. Ósjálfrátt brugðu þau birtu yfir umhverfi sitt. Eftir óvenju sólríkt sumar hefur Bolli nú kvatt „fólk og frón“ og haldið á vit þeirrar dýrðar sem er of björt mann- legum augum. Við Björg þökk- um fyrir okkur og biðjum hon- um og ástvinum hans allrar blessunar. Ólafur Haukur Árnason. Bolli A. Ólafsson  Fleiri minningargreinar um Bolla A. Ólafsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, JÚLÍUS INGASON, varð bráðkvaddur í Taílandi fimmtudaginn 22. nóvember. Þóra Gyða Júlíusdóttir, Árni Júlíusson, Bergþór Júlíusson, Júlíus Ingi Júlíusson, tengdabörn, barnabörn og systkini. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, JÓNS S.R. MAGNÚSSONAR frá Grímsey. Ragna Kristín Karlsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Aðalsteinn Friðþjófsson, Magnús Jónsson, Silvia Puttha, Hólmfríður Jónsdóttir, Gísli Jóhannsson, Helena Jónsdóttir, Vilhjálmur Sigurðsson, Rögnvaldur Jónsson, Björg Traustadóttir, Harpa Jónsdóttir, Magnús Ágústsson, barnabörn, barnabarnabörn, Sigmundur Magnússon, Bjarni Magnússon og Jórunn Magnúsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir og bróðir, GUNNAR REYNIR KRISTINSSON, verður jarðsunginn frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 30. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Björgunar- sveitina Tind, Ólafsfirði. Kristjana Sveinsdóttir, Jón Már, Kolbrún, Sveinn og Kristinn, Lilja Kristinsdóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, MARÍA DALBERG, sem lést sunnudaginn 25. nóvember verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 3. desember klukkan 15.00. Stefán Dalberg, Ingibjörg Kristín Dalberg, Magnús Rúnar Dalberg, Ragnheiður Njálsdóttir, Ingibjörg Dalberg, Sigurður Á. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur bróðir, mágur og frændi, JÓN HALLDÓR GUNNARSSON, Skjólbraut 1a, Kópavogi, lést föstudaginn 16. nóvember. Jarðarförin fór fram í kyrrþey föstudaginn 23. nóvember. F.h. hins látna viljum við aðstandendur færa öllum þessum inni- legar þakkir: Selmu Júlíusdóttur hjá Lífsskólanum, Sigríði Hildi Snæbjörnsdóttur forstöðukonu sambýlisins að Skjólbraut 1a, heimilismönnum og starfsfólki fyrr og nú; starfsfólki gjörgæslu- deildar og starfsfólki deildar A6 ásamt sr. Gunnari Matthíassyni á Landspítalanum í Fossvogi fyrir kærleiksríka umönnun, um- hyggju og aðstoð. Guð blessi ykkur öll. F.h. aðstandenda, Júlíana Sóley Gunnarsdóttir, Friðrik Már Bergsveinsson. ✝ Okkar ástkæra MARGRÉT KRISTINSDÓTTIR lést laugardaginn 24. nóvember. Útförin verður gerð frá Jófríðarstaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 3. desember kl. 13.00. Edda Björgvinsdóttir, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Róbert Ólíver Gíslason og fjölskyldur þeirra. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru eiginkonu, móður, stjúpmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR S. PÁLSDÓTTUR lyfjatæknis, Norðurbakka 11a, áður Hverfisgötu 46, HafnarfIrði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar Landspítalans og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýju. Halldór Sigurðsson, Ásgeir Halldórsson, Anita Anna Jónsdóttir, Ragnar Guðlaugsson, Lára Birgisdóttir, Hallfríður Sigurðardóttir, Robert Petersson, Páll Sigurðsson, Emil A. Sigurðsson, Valda Brokane, Jófríður A. Halldórsdóttir, Sigurður Jónsson, Sigurður Halldórsson, Ester Arnarsdóttir, Hilmar Halldórsson, Kolbrún Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, vinur okkar, bróðir og frændi, GUNNAR ÞÓRIR HANNESSON frá Hækingsdal í Kjós, andaðist á Sjúkrahúsinu á Ísafirði laugar- daginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði föstudaginn 30. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heyrnarhjálp, sími 551 5895. Guðrún Ásgeirsdóttir, Lilja Sölvadóttir, Joseph Sipos, Guðmundur Ásgeir Sölvason, Þórdís Sölvadóttir, Erla Sölvadóttir, Kristín Sölvadóttir, Benedikt Kröyer, Steinunn Sölvadóttir, Stefán Símonarson, barnabörn, systkini og frændsystkini hins látna. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, SIGTRYGGS HELGASONAR, Hlyngerði 12, Reykjavík. Við þökkum öllu því góða fólki sem sýndi honum trygglyndi, vináttu og stuðning í veikindum hans. Sérstakar þakkir færum við Ugga Agnarssyni og Brynjari Viðarssyni læknum, Kristrúnu hjúkrunarfræðingi hjá Heimaþjónustu Reykjavíkurborgar, sjúkraflutningamönnum, hjúkrunarfræðingi á bráðamóttöku LSH, hjartagátt, hjarta- deild og 11-G. Þórhildur Sigtryggsdóttir, Hrafnkell Óskarsson, Kristbjörg Hrund Sigtryggsdóttir, Skapti Haraldsson, Anna Kristín, Sigtryggur Óskar, Fjölnir og Halldór. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.