Morgunblaðið - 13.12.2012, Síða 22
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Athafnamenn „að sunnan“ hafa velt upp
þeirri hugmynd að setja upp hótel í gömlu
skrifstofubyggingu Slippstöðvarinnar. Sannar-
lega áhugaverð hugmynd en mér er sagt að
engar líkur séu á að hún verði að veruleika.
Nú mun ákveðið að samræma gjaldskrár á
Akureyri þannig að allir sem ekki eru orðnir 18
ára greiði barnagjald fyrir þjónustu stofnana
bæjarins, þar sem gjald hefur verið mismun-
andi. Áður var miðað við 15 ára aldur. Þeir sem
helst verða varir breytingar eru skíðamenn og
sundkappar.
Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi A-
lista, átti hugmyndina að fyrrgreindri breyt-
ingu. Hann leggur áherslu á að börn séu skv.
lögum skilgreind svo fram að 18 ára aldri, vildi
að gjaldskrám yrði breytt til samræmis við það
og hefur haft sitt fram.
Styrktartónleikum Ljósberans, sem áttu
að vera í Akureyrarkirkju í vikunni, hefur verið
frestað þar til á þriðjudag vegna veikinda. Með-
al listamanna sem koma fram eru söngkon-
urnar Sigrún Hjálmtýsdóttir og Björg Þór-
hallsdóttir.
Alla daga í desember er lifandi jóladagatal
í Hofi með fjölbreyttri dagskrá í samstarfi við
1862 Nordic bistro. Í hádeginu í dag munu
hjónin Arndís Bergsdóttir og Björn Þorláksson
bera saman jólahátíðina 1974 en þá voru þau
sex og níu ára gömul. „Hún var ljóshærður
nýbúi á gullnum söndum Sameinuðu arabísku
furstadæmanna en hann var dvergvaxinn Mý-
vetningur, alinn upp í hrauni og klettaborgum
við bakka Mývatns,“ segir í tilkynningu.
Systkinin Ellen Kristjánsdóttir og KK
verða svo með jólatónleika í Hofi í kvöld. Sann-
arlega tilhlökkunarefni.
Á morgun verður jóladagatalið í höndum
tenórsins Óskars Péturssonar og Eyþórs Inga
Jónssonar organista í Akureyrarkirkju. Organ-
istinn er forfallinn áhugaljósmyndari og blaða-
maður Morgunblaðsins hitti hann einmitt í gær
þar sem hann lá á ísnum skammt innan við
Leirubrúna, vopnaður myndavél og forláta
linsu, að mynda sel sem lá þar í makindum.
Pétur Blöndal blaðamaður og rithöfundur
les úr nýútkominni Limrubók sinni í hádeginu
á laugardaginn og síðar um daginn eru þrennir
Frostrósatónleikar í húsinu. Jólin eru sem sagt
alveg að koma...
Ice-Husky félagið fær aðgang að skíða-
göngubrautinni í Hlíðarfjalli í einn dag í vetur
fyrir sleðakeppni Huskyhunda. Íþróttaráð hef-
ur samþykkt erindi þar að lútandi.
Skúli Mennski verður með tónleika á
Græna hattinum í kvöld, akureyrska hljóm-
sveitin Heflarnir (Rögnvaldur gáfaði og fé-
lagar) verða þar annað kvöld – auk þess sem
hinir óviðjafnanlegu Helgi og hljóðfæraleik-
ararnir stíga á svið.
Á laugardagskvöldið fá rokkþyrstir sval-
að þorsta sínum þegar franska þungarokk-
sveitin L’esprit du Clan og sveitin Hangman’s
Chair verða með tónleika.
Fregnir herma að nokkrir tugir áhangenda
frönsku sveitarinnar verði með í för svo reikna
má með miklu fjöri. Það er svo sem engin frétt,
en vanalega eru heimamenn þar í meirihluta....
Selur selur organista hugmynd að myndatöku...
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Blessaður! Eyþór Ingi Jónsson áhugaljósmyndari myndaði vinalegan sel á Leirunum í gær.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Nýr Landspítali er á teikniborðinu.
Þórður Víkingur Friðgeirsson, lekt-
or við tækni- og verkfræðideild Há-
skólans í Reykjavík, telur fátt benda
til þess fyrirfram að þessi nýi Land-
spítali fari ekki fram úr kostnaðar-
áætlun. Rætt var við Gunnar Svav-
arsson, formann verkefnastjórnar
um byggingu nýs Landspítala og
Óskar Valdimarsson, sem situr í
bygginganefnd og forstjóra Fram-
kvæmdasýslu ríkisins, um þessa
gagnrýni.
Gunnar Svavarsson segir kostn-
aðaráætlanir verkefnisins hafa verið
rýndar af íslenskum og erlendum
aðilum í nóvember sl. „Sú rýni gefur
til kynna, að þær kostnaðaráætlanir
sem spítalahópurinn leggur fram,
séu í eðlilegu samræmi við þann
reynslukostnað sem er til staðar
varðandi opinberar framkvæmdir í
þessari stærð,“ segir Gunnar og
bendir á að áður en útboð fer fram
liggur fyrir 25% hönnun. „Það skipt-
ir miklu fyrir lokaniðurstöðu verks,
hversu vel hönnunin er ígrunduð áð-
ur en hún er boðin út,“ segir Gunnar
Hann bendir á að öll gögn og upp-
lýsingar varðandi verkefnið hafi ver-
ið opinber frá upphafi.
Óskar Valdimarsson svarar þeirri
gagnrýni Þórðar Víkings, að aðferð-
irnar væru 50 ára gamlar, með þeim
hætti að þær séu vel reyndar og ár-
angursríkar við verkefnastjórnun og
klykkir út með því að segja „það eru
engin rök að gamalt sé vont“.
Óskar var spurður hvort velt hefði
verið upp þeim möguleika að fara
ekki í byggingu nýs Landspítala.
„Það er búið að gera það. Ráðgjafar
hjá NLSH hafa borið saman mis-
munandi aðgerðir og ein aðgerðin er
að gera ekki neitt, hún hefur komið
út með að vera dýrari.“
Óskar er ekki sammála útreikn-
ingi Þórðar á framúrkeyrslu í kostn-
aði á opinberum byggingum.
„Þegar Þórður talar um framúr-
keyrsluna, þá er það tvennt sem ég
er ósáttur við í hans röksemda-
færslu. Hann tekur ekki tillit til
verðbreytinga/verðþróunar. Ef ein-
hver áætlun, sem er gerð fyrir fimm
árum, upp á milljarð og kostar núna
þrjátíu prósentum meira, vegna
þess að verðlagið hefur hækkað. Þá
ber hann saman krónutölurnar og
segir að þetta verkefni hafi farið
30% fram úr áætlun. Menn verða að
tala á sama verðlagi.“
Óskar bendir á að fyrstu tölur
sem nefndar eru í opinberum fram-
kvæmdum séu stundum lauslega
áætlaðar. Hann nefnir sem dæmi
skóla sem áætlað er að kosti einn
milljarð króna. „Þegar menn skoða
verkefnið nánar, fara að hanna og
klára áætlunina, þá geti komið í ljós
að verkefnið kosti 1,5 milljarða
króna. Segjum að framkvæmdin
standist þessa áætlun, þá heldur
hann [Þórður Víkingur] því fram að
þetta hafi farið hálfum milljarði
króna fram úr áætlunum, því fyrstu
tölur séu hálfum milljarði lægri.
Þetta finnst mér ekki góð röksemda-
færsla. Vissulega voru lægri tölur
nefndar í upphafi en það var áður en
menn fóru að skoða verkefnið ná-
kvæmlega. Einhvers staðar þarf að
byrja. Ef menn mega aldrei setja
neinar tölur fram í upphafi sem hug-
myndir, þá þora menn ekkert að
fara af stað.“
„Hann [Þórður Víkingur] segir að
þetta sé óábyrgt og að menn reyni
að koma verkefnum af stað, með því
að nefna lágar upphæðir, sem allir
viti að verða hærri síðar. Það getur
verið að það sé stundum satt en
stundum ekki. Mér finnst hann fara
frjálslega með þessa hluti og ég hef
sagt honum það,“ segir Óskar og er
sammála því að alltaf megi gera bet-
ur.
Óskar segir að úttekt hafi verið
gerð á 74 verkefnum hjá Fram-
kvæmdasýslunni og hvort þau hafi
staðist áætlun. „Þessi verkefni fóru
að meðaltali 3,12% fram úr áætlun,“
segir Óskar.
Spurður hvernig standi á slíku
misræmi milli talna, segir hann:
„Þórður Víkingur velur verkefni út,
tekur þau verstu. Hann tekur fyrstu
tölur sem voru nefndar en við tökum
áætlunina sem við fáum áður en við
bjóðum út. Hann sleppir verðbólg-
unni á meðan við vinnum á föstu
verðlagi. Þannig má segja að við
séum að bera saman epli og ban-
ana,“ segir Óskar.
Kostnaðaráætlun nýs
Landspítala eðlileg
Ekki hægt að bera saman epli og banana Gögnin opinber
Gunnar
Svavarsson
Óskar
Valdimarsson
Nýr landspítali Dýrara að fara ekki
í framkvæmdina, segir Óskar.
Vefðu þig hlýju
Ábreiða úr hinni einstöku íslensku ull gerir
hverja stund hlýja og notalega...
Sjá sölustaði á istex.is