Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.12.2012, Blaðsíða 45
an undir heitinu Jáverk. Það er nú eitt af stærstu verktakafyrirtækjum landsins. Gylfi er framkvæmdastjóri Jáverks frá 2004. Gylfi sat í skólaráði Viðskiptahá- skólans á Bifröst á námsárunum. Hann flutti í Mosfellsbæinn 2001, hefur starfað mikið á vegum Aftur- eldingar, situr í aðalstjórn félagsins frá 2011 og var formaður taekwon- dodeildar félagsins 2006-2008. Hestar, hænsni og brids Gylfi hefur í mörg horn að líta þegar kemur að áhugamálunum: „Við Menntaskólann á Laugar- vatni hefur lengi verið sterk brids- hefð enda hafa einhverjir landsliðs- menn komið frá þeim góða skóla. Þar var enginn maður með mönnum sem ekki var sleipur í brids. Maður spilaði því heilmikið og tók jafnvel þátt í keppnum hér á árum áður. Ég tek að vísu ennþá í spil við gamla skólafélaga, en það er ekki nema nokkrum sinnum á vetri við vinafólk í heimahúsum.“ En það eru fleiri áhugamál? „Já, já. Ég er náttúrlega alinn upp við hesta og hestamennsku, hef alltaf haldið hesta og á eitthvað um 10-12 hross um þessar mundir. Ég hef verið með hesta hér í Mosfells- bænum en síðan höfum við aðstöðu á æskustöðvunum í Kjarnholtum. Ég nýti helst hestamennskuna til að komast í snertingu við landið og skepnurnar. Ég hef hins vegar eng- an sérstakan áhuga á hestamennsku sem keppnisíþrótt. Hestamennskan tengist einnig gömlum skólafélögum frá Laug- arvatni. Þetta er ansi þéttur og skemmtilegur hópur þaðan sem hittist til að taka í spil og eins vegna hestamennskunnar. Við höfum farið á hverju sumri í lengri og skemmri hestaferðir um landið en slíkar ferð- ir með gömlum félögum verða ómet- anlegar í minningunni.“ En þú heldur svo fleiri skepnur? „Já, það má ekki gleyma hænsn- unum en konan hefur komið sér upp landnámshænsnum svo við höfum nóg af eggjum. Loks má svo geta þess að þetta er skíðafjölskylda. Synirnir eru býsna sleipir á skíðabrettum og konan er liðtæk á skíðum, en ég steig ekki á skíði fyrr en ég var orðinn 44 ára. Ég læt mig þó hafa það og við förum yfirleitt einu sinni á ári á skíði til Austurríkis. Nú ætlum við hins vegar til Colorado í Bandaríkj- unum. Þetta er frábær fjöl- skylduíþrótt.“ Fjölskylda Eiginkona Gylfa er Oddný Mjöll Arnardóttir, f. 16.1. 1970, lagapró- fessor við HÍ. Hún er dóttir Arnar Harðarsonar, rennismiðs í Mos- fellsbæ, og Höllu Hallgrímsdóttur, fyrrv. aðalbókara. Synir Gylfa og Oddnýjar Mjallar eru Gísli Gylfason, f. 12.10. 1995, nemi, og Arnar Gylfason, f. 22.11. 2001, nemi. Systkini Gylfa eru Einar Gísla- son, f. 18.12. 1955, framkvæmda- stjóri í Þorlákshöfn; Jón Ingi Gísla- son, f. 28.5. 1959, atvinnurekandi og formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur, og Jenný Gísladóttir, f. 11.7. 1969, húsfreyja í Reykjavík. Foreldrar Gylfa voru Gísli Ein- arsson, f. 2.9. 1932, d. 30.5. 1999, oddviti í Kjarnholtum, og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 10.12. 1932, d. 3.5. 2008, húsfreyja í Kjarnholtum. Úr frændgarði Gylfa Gíslasonar Gylfi Gíslason Oddfríður Þorsteinsdóttir húsfr í Tröðum og í Landakoti Guðmundur Magnússon b. á Tröðum og í Landakot i í Staðarsveit Jenný Guðmunsdóttir húsfr. á Skárastöðum Jón Sveinsson b. á Skárastöðum í Miðfirð Ingibjörg Jónsdóttir húsfr. í Kjarnholtum Jóhanna Dagbjört Jóhannsd. húsfr. á Gilsbakka Sveinn Jónsson b. á Gilsbakka Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfr. á Efri-Reykjum Ingimar Guðmundsson b. á Efri-Reykjum í Biskupstungum Guðrún Ingimarsdóttir húsfr. í Kjarnholtum Einar Gíslason b. í Kjarnholtum Gísli Einarsson b. og oddviti í Kjarnholtum II í Biskupstungum Gísli Guðmundsson b. í Kjarnholtum Dóróthea Gísladóttir húsfr. á Hofsá í Svarfaðardal Rögnvaldur Þorleifsson læknir Guðmundur Oddsson matreiðslum. í Hafnarfirði Sveinn Guðmundsson síldarkaupmaður á Siglufirði Jón Gunnlaugur Sveinsson skipstjóri á Siglufirði Guðrún Sveinsdóttir húsfr. í Kjarnholtum Afmælibarnið Gylfi Gíslason. ÍSLENDINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2012 Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum! Vönduð gæðateppi á heimilið og skrifstofuna Gunnar Bjarnason ráðunauturfæddist á Húsavík 13.12.1915, sonur Bjarna Bene- diktssonar, kaupmanns og útgerð- armanns, og Þórdísar Ásgeirs- dóttur, hótelstjóra og bónda. Gunnar lauk búfræðiprófi frá Hvanneyri, BSc-prófi frá Den kongelige Veterinær- og Landbohøj- skole og námi í alifugla- og svína- rækt við Búnaðarháskólann í Kaup- mannahöfn. Hann var ráðunautur Búnaðarfélags Íslands í hrossarækt og hestaverslun 1940-61, í alifugla- og svínarækt 1963-78 og í hesta- útflutningi hjá landbúnaðarráðu- neyti og Búnaðarfélagi Íslands 1965- 87, var forstöðumaður Fóðureftirlits ríkisins 1973-80, kennari við Bænda- skólann á Hvanneyri og skólastjóri Bændaskólans á Hólum 1961-62. Gunnar stoppaði stutt við sem skólastjóri á Hólum og lenti þá í úti- stöðum við ýmsa, enda atorku- og ákafamaður. Hann lagði þó margt af mörkum til nútímalandbúnaðar, átti þátt í að koma á nútíma-alifugla- og svínarækt, lét hanna járnristaflóra sem ollu byltingu í fjósagerð og var einn helsti frumkvöðull að útflutn- ingi íslenska hestsins. Meðal rita Gunnars: Á fáki (með Boga Eggertssyni), kennslubók í tamningum og hestamennsku, 1953; Búfjárfræði, kennslubók, 1966; Ætt- bók og saga íslenska hestsins á 20. öld, I.-VII. bindi, 1968-91, og Líka- böng hringir, ádeilurit 1982. Þá kom út árið 1995 ævisaga Gunnars, Kóngur um stund, eftir Örnólf Árna- son. Gunnar var heiðursfélagi Félags tamningamanna; Landssambands hestamannafélaga; Deutscher Pony- Klub í Bonn; landssambands Þýska- lands um íslenska hestinn, Austur- ríkis og Kanada, fyrsti heiðurs- forseti Alþjóðasamtaka um íslenska hestinn og var sæmdur riddara- krossi íslensku fálkaorðunnar 1980. Gunnar var fluggreindur, afkasta- mikill, kappsamur og geislandi af lífsgleði. Hann var glettinn og hlýr persónuleiki og afskaplega skemmti- legur í viðkynningu. Gunnar lést 15.9. 1998. Minnis- varði um hann var afhjúpaður á Hvanneyri sl. sumar. Merkir Íslendingar Gunnar Bjarnason 90 ára Jónatan Kristjánsson 85 ára Knútur Otterstedt Kristjana M. Finnbogadóttir Sveinn Jóhann Þórðarson 80 ára Ásta Svanlaug Magnúsdóttir Garðar Alfonsson Gottfred Árnason Guðmundur Guðmundsson Jóhannes Elíasson Snjólaug S. Guðjónsdóttir Sverrir Arnar Lúthersson 75 ára Gillý Sigurveig Skúladóttir Gísli Þór Sigurðsson Jóhanna Óskarsdóttir Jónína Lilja Jóhannsdóttir Stella Halldórsdóttir 70 ára Bergur Ingimundarson Guðmundur Hjálmtýsson Guðmundur Sveinbjörn Másson Kristinn Vermundsson Óskar Stefánsson Sævar Berg Mikaelsson Valdimar Steinþórsson 60 ára Auður Oddgeirsdóttir Einar Gíslason Elínborg Bergþórsdóttir Gísli Guðlaugur Geirsson Guðlaug A. Sigurðardóttir Hallveig Elín Indriðadóttir Hildur Rannveig Diðriksdóttir Jóna Rúna Kvaran Jón Ingi Cæsarsson Magnús Ólafsson Pétur Axel Pétursson Pétur Oddgeirsson Snæbjörn Guðbjörnsson Þórður Daníel Bergmann Þórhildur Karlsdóttir 50 ára Auður Ásdís Markúsdóttir Auður Ólína Svavarsdóttir Bylgja Sveinbjörnsdóttir Gunnbjörn Óli Jóhannsson Hlíf Magnúsdóttir Kári Þór Rafnsson María Jane Ammendrup Ólöf Eðvarðsdóttir Stefán Rúnar Sævarsson 40 ára Einar Örn Þorkelsson Hólmfríður Oddsdóttir Sólrún Valdimarsdóttir Örn Snorrason 30 ára Agnieszka Wilk Anna Þorbjörg Björnsdóttir Aya Arakaki Björn Gísli Gylfason Edyta Herba Höskuldur Darri Ellertsson Izabela Podobajew Jón Haukur Ólafsson Lilja Kjalarsdóttir Sigríður Hrönn Pálmadóttir Thorsten Ludwig Arnold Vilborg Guðjónsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Rannveig lauk BSc-prófi í vélaverkfræði frá DTU í Kaupmannahöfn og er framkvæmdastjóri framleiðslusviðs hjá EL- KEM. Maki: Hilmar Þórðarson, f. 1971, starfsmaður hjá Samkeppniseftirlitinu. Börn: Klara Rún, f. 1994, og Baldur Freyr, f. 1995. Foreldrar: Jóhann S. Gunnarsson, f. 1946, og Matthildur Sif Jónsdóttir, f. 1946. Rannveig Jóhannsdóttir 50 ára Ásta er leikskóla- kennari frá HA og hefur starfað við leikskóla frá 1989. Maki: Heimir Freyr Heim- isson, f. 1969, hópferða- bílstjóri. Börn: Eygló, f. 1979; Freyja Pálína, f. 1987, og Tryggvi Jón, f. 1995, d. 2011. Foreldrar: Reynir Björg- vinsson, b. og húsasmíða- m., og Freyja Sigurvins- dóttir, b. og húsfreyja. Ásta F. Reynisdóttir 40 ára Eggert fæddist í Keflavík og er nú örygg- isvörður við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Bróðir: Gunnar Jón Ólafsson, f. 1980, sjúkra- flutingamaður hjá Slökkviliðinu í Reykja- nesbæ. Foreldrar: Ólafur Egg- ertsson, f. 1945, fyrrv. slökkviliðsmaður, og Kristjana Björg Gísladótt- ir, f. 1949, starfsmaður við Reykjaneshöllina. Eggert Ólafsson mbl.is/islendingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.