Morgunblaðið - 20.12.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.12.2012, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2012 Afríkumörgæsir í jólabúningum taka þátt í litlu jólunum í lagardýrasafni í Yokohama í Japan ásamt starfsmanni safnsins. Sérstök jólasýning er hald- in daglega á safninu, Hakkeijima-sjávarparadísinni, fram að jólum. Jólaskreyttar mörgæsir AFP Áfrýjunardómstóll í Los Angeles í Bandaríkjunum hefur skipað Sea Shepherd-samtökunum að halda sig a.m.k. 450 metra frá japönskum hvalveiðiskip- um við Suðurskautslandið. Samtökin ætla að áfrýja úrskurðinum, heita því að halda áfram að „vernda hvali með skipum sínum og lífi“ og segjast vera að undirbúa umfangsmestu aðgerð sína til þessa. Dómstóllinn segir að samtökunum og formanni þeirra, Paul Watson, sé bannað að sigla að skipum hvalarannsóknastofnunar Japans og hval- veiðiskipum og að auki sé þeim bannað að haga siglingu skipa sinna þannig að þau geti ógnað öryggi rannsóknar- og hvalveiðiskipanna. Hvalarannsóknastofnunin og hvalveiðimenn fagna úrskurðinum. „Sea Shepherd stundar skemmdarverk og ofbeldi sem ógna lífi og eignum þeirra sem eru um borð í skipunum,“ segir talsmaður stofnunarinnar. BANDARÍKIN Watson bannað að nálgast hvalveiðiskip Bláu húsin v/Faxafen - Suðurlandsbraut 50 Sími 553 7355 - www.selena.is • Undirföt • Náttföt • Náttkjólar • Sloppar Opið til 21 öll kvöld til jóla Gjafakort Styrking • Jafnvægi • Fegurð CCFlax Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum aldri og einkennum breytingaskeiðs Heilbrigðari og grennri konur Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg minni fitumassa en þær konur sem skortir eða hafa lítið af Lignans.** * Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082 ** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University. 1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur Fæst í apótekum, heilsubúðum og völdum stórmörkuðum www.celsus.is Slegið í gegn í vinsældum, frábær árangur ! Mulin hörfræ – Lignans – Trönuberjafræ Kalk úr hafþörungum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.