Morgunblaðið - 20.12.2012, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.12.2012, Blaðsíða 28
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2012 Bréf til blaðsins Fæðing frelsarans fyrir rúmum tvöþúsund árum er án efa stærsti at- burður mannkynssögunnar, sem dæmi miðum við tímatal okkar við fæðingu Krists. Rómarveldi sem var ríkjandi á þeim tíma sem Kristur fæddist, leið undir lok vegna lausungar og siðblindu. Sömu örlög hafa hlotið hin ýmsu ríki sem kölluð hafa verið heims- veldi. Sá boðskapur sem Kristur færði okkur, á sínum tíma hefur mótað hinn kristna heim, sem nú tel- ur um tvo og hálfan milljarð manna um víða veröld. Engin önnur trúar- brögð eða hugmyndafræði geta stát- að af slíkri útbreiðslu. Við höfum að- hyllst kristna trú í á annað þúsund ár og engin spurning að það hefur haft meiri og betri áhrif á þjóðlíf, menningu, siði og hefðir okkar en nokkuð annað. Þaðan höfum við allt það besta og fegursta sem lífið býð- ur uppá. Ég held að allt kristið fólk á Ís- landi hafi orðið vart við að fylgifiskar trúleysis hafa farið vaxandi í okkar litla samfélagi. Óheiðarleiki, trún- aðarbrestir, og lausung sækir á okk- ar þjóð í vaxandi mæli og trúfræðsla á undir högg að sækja, um þessar mundir. Ekki má lengur hafa Fað- irvorið fyrir börnum, eða biðja fyrir þeim, og annað eftir því. Það sem gerir kristnum mönnum erfitt fyrir að bregðast við er innbyggt í okkar trú, en það er umburðarlyndið. Við megum samt ekki vera svo umburð- arlynd að samþykkja að trúleysi sé haldið að börnum okkar og barna- börnum. Ef við látum það eftir trú- leysingjunum, þá fer fyrir okkur eins og Rómaveldinu, sukk og svínarí tortímir okkur. Ég er hins- vegar ekki að segja að þeir sem að- hyllast önnur trúarbrögð megi það ekki, síður en svo. En hvernig bregðumst við við þessari ógn? Það er svo einkennilegt að þessi ósköp koma úr pólitíkinni eins og svo margt annað slæmt. Því þurfum við að bregðast við með því að kjósa ekki til ábyrgðar, hvort sem er hjá ríki og borg, fólk sem í krafti valds- ins leiðir þetta yfir okkur. Sagan segir okkur að vald spillir, það spillir öllum alls staðar. Það er staðreynd. Við vitum hverjir hafa leitt þessa hnignun yfir okkur, við verðum að koma þeim frá og hefja kristnina aft- ur upp til vegs og virðingar. ÓMAR SIGURÐSSON, skipstjóri. Hnignun þjóðar Frá Ómari Sigurðssyni Ómar Sigurðsson Í nýútkomnu hefti tímaritsins Lyfjatíðinda (4. tbl., 19. árg., 2012, bls. 23) er auglýsing frá fyrirtæk- inu SagaMedica um „fæðubótar“- efnið SagaPro þar sem stað- hæft er að varan rýmki blöðru, dragi úr tíðni þvagláta og sé klínískt rann- sökuð. Enn fremur að þetta sé náttúruvara úr íslenzkri æti- hvönn og að sækja eigi styrk úr náttúru Íslands. Að mínu áliti eru þetta öf- ugmæli. Sannleikanum samkvæmt fannst enginn munur á virkni Sa- gaPro og lyfleysu við tíðum þvag- látum í klínískri rannsókn (1) og varan er varhugaverð þar sem hún er unnin úr eiturplöntu (2). Lyfjatíðindi eru tímarit, sem dreift er til allra lækna og lyfja- fræðinga á Íslandi og það er líka sent til hjúkrunarforstjóra og víð- ar um heilbrigðiskerfið. Mér hefur ætíð fundizt efni þess áhugavert – ekki sízt pistlar ritstjórans. Í rit- nefndinni sitja m.a. fjórir lyfja- fræðingar. Með tilliti til alls þessa þykja mér auglýsingar um vafa- söm hjályf á síðum blaðsins ekki sæmandi. Tilvísanir. 1 http://www.lyfjastofnun.is/ lyfjastofnun/frettir/nr/2438 2 http://www.accessdata.fda.gov/ scripts/plantox/deta- il.cfm?id=30061 REYNIR EYJÓLFSSON, phD í náttúruefnafræði. Hjályf aug- lýst í Lyfja- tíðindum Frá Reyni Eyjólfssyni Reynir Eyjólfsson mbl.is alltaf - allstaðar Munið að slökkva á kertunum Æskilegt er að setja reglur um kerti og kertaskreytingar á vinnustöðum og að þær séu öllum starfsmönnum vel kynntar Slökkvilið höfuborgasvæðisins Á R N A S Y N IR util if. is SKÍÐAPAKKAR 20% AFSLÁTTUR ÞEGAR KEYPT ERU SKÍÐI, BINDINGAR OG SKÍÐASKÓR. F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FYRIR HERRA!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.