Morgunblaðið - 31.12.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 31.12.2012, Blaðsíða 31
STJÓRNMÁL 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012 „Við sem byggjum Ísland viljum skapa réttlátt samfélag þar sem allir sitja við sama borð. Ólíkur uppruni okkar auðgar heildina og saman berum við ábyrgð á arfi kynslóðanna, landi og sögu, náttúru, tungu og menningu. Ísland er frjálst og fullvalda réttarríki með frelsi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindi að hornsteinum. Stjórnvöld skulu vinna að velferð íbúa landsins, efla menningu þeirra og virða margbreytileika mannlífs, lands og lífríkis. Við viljum efla friðsæld, öryggi, heill og hamingju á meðal okkar og komandi kynslóða. Við einsetjum okkur að vinna með öðrum þjóðum að friði og virðingu fyrir jörðinni og öllu mannkyni. Í þessu ljósi setjum við okkur nýja stjórnarskrá, æðstu lög l- andsins, sem öllum ber að virða.“ Á þessum aðfaraorðum hefst frumvarp til stjórn- arskipunarlaga sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Nýr samfélagssáttmáli er í bígerð. Um áramót er góður siður að staldra við og horfa bæði fram á við og til fortíðar. Líta í kringum sig, læra af því sem gert hefur verið og sjá hvar tækifæri framtíðarinnar liggja. Við ættum að láta þessi aðfaraorð vísa okkur veginn.    Líf okkar flestra breyttist við hrunið 2008. Þegar ég horfi til baka þakka ég fyrir að okkur var hrundið af þeirri vegferð græðgi og sjálfselsku sem samfélag okkar var á þótt við höfum enn ekki fundið jafnvægi og réttlæti. Á árunum eftir aldamótin var Ísland að verða „alþjóðleg fjármálamiðstöð“ án þess að mikil lýðræðisleg umræða hefði farið fram um það. Valdhafarnir gott sem gáfu fjármálastofnanir ríkisins og teningunum var kastað í spilavítinu. Og allt þetta gerðist án þess að þjóðin hefði verið spurð álits eða spurð að því í hvernig samfélagi hún vildi búa. Og án þess að upplýst væri um hvað fælist í þessari „alþjóðlegu fjár- málamiðstöð“ og hvaða áhætta væri í henni fólgin fyrir þjóð- arbúið. Við vorum bara ríkasta þjóð í heimi og áttum að þakka fyrir það. Kannski það sé einkenni á íslenskri þjóðarsál að vera ginn- keypt fyrir skyndigróða og töfralausnum. Einu sinni átti allt að reddast með fiskeldi og loðdýrarækt. Ein jólin áttum við öll að finna sæluna í fótanuddtæki. Og okkur hefur verið bjargað þegar kannski hefði verið farsælla til langs tíma litið að við kæmum sjálf undir okkur fótunum. Við fengum Marshall-aðstoð, herstöð sem veitti okkur umtalsverðar tekjur og svo tóku álverin við sem ein „allsherjar-hvað sem það kostar-lausn“. Haustið 2008 var orðið á götunni það að við fengjum hraðferð inn í Evrópusam- bandið sem myndi veita okkur skuldaaflausn eins og skot. Það varð nú ekki og erfitt að sjá nú að það sé eitthvað sem ESB vilji eða geti. Nú velti ég því fyrir mér hvort olía við Íslandsstrendur sé næsta kvikkfix sem eigi öllu að redda. Við höfum frétt að meiri líkur en minni séu á því að olía sé á Drekasvæðinu og íslensk stjórnvöld hafa þegar boðið olíuleitina úr, reyndar ekki í fyrsta sinn. Þetta hefur allt saman gerst án mikillar umræðu. Stöku frétt skýtur upp kollinum og rætt er við nokkra karla. Erfitt er fyrir hinn almenna borgara að átta sig á um hvað er í raun og veru að ræða. Hvað felst í olíuleit og hvernig fer hún fram? Getur hún verið áhættusöm fyrir lífríkið? Hvað felst í heimild til olíu- leitar? Ef olía finnst, hvað gerum við við arðinn af þeirri auðlind? Verður hann þjóðarinnar eða fer hann til þeirra sem unnu í olíu- leitarhappdrættinu? Fer það saman við hreina ímynd okkar að verða kannski olíuríki? Og ef olía finnst, getum við ákveðið að vinna hana ekki? Öllum þessum spurningum og mun fleiri til þyrfti að svara áð- ur en lengra er haldið. Við sem þjóð þurfum að finna leiðir til þess að ræða málin án gífuryrða, leggja fram upplýsingar og raunverulega skilja þær og fá fram þjóðarvilja. Eða ætlum við að vakna upp einn daginn sem olíuríki, með kostum þess og göllum án þess að það hafi verið rætt frekar en að eyjan okkar fagra yrði „alþjóðleg fjármálamiðstöð“? Sumar ákvarðanir eru svo stórar að það er ekki réttlætanlegt að kjörnir fulltrúar véli um þær og ráði niðurstöðunni einir. Sumt er þannig að landsmenn allir ættu að þurfa að kynna sér málin og mynda sér skoðun áður en farið er af stað. Lýðræði er nefnilega svo miklu meira en að kjósa á nokkurra ára fresti. Lýðræði bygg- ist á samræðunni um leiðir og lausnir og sameiginlegri ákvarð- anatöku. Og svo samræðan geti farið fram þurfum við upplýs- ingar sem við getum treyst.    Eitt hinna stóru mála samtímans er stjórnarskráin okkar og breytingar á henni. Þegar allt hrundi fannst mér sem samfélag okkar byggðist á veikum stoðum. Fyrir mér voru það þó engin ný sannindi að við Íslendingar höfðum í raun aldrei ákveðið hvernig samfélag við ætluðum að byggja. Hlutirnir gengu hér sinn vanagang, í stað kóngs komu innlendir herrar en fáir dróu vald þeirra í efa eða töldu sig geta haft beinan aðgang að ákvarð- anatökunni nema í gegnum flokksklíkurnar. Hér hefur verið stunduð fyrirgreiðslupólitík þar sem öllum lífsins gæðum var út- hlutað í gegnum flokksaðild eða ættartengsl en þó oftast hvort tveggja. Ég vil ekki búa í svoleiðis samfélagi. Ég vil búa í landi þar sem öllum eru tryggð jöfn tækifæri en þú uppskerð eins og þú sáir. Eftir hrunið varð krafan um nýja stjórnarskrá hávær. Okkur skorti þennan samfélagssáttmála og samræðuna um hvernig þjóðfélag við vildum byggja. Nú erum við vonandi á síðustu metrunum við að skapa hann, með margþættu ferli þar sem al- mennum borgurum hefur verið tryggð aðkoma á hverju stigi. Þetta ferli hefur vakið athygli og aðdáun víða um heim og þykir til fyrirmyndar þótt hér heima hafi sumir allt á hornum sér. Og þjóðin sagði sína skoðun í þjóðaratkvæðagreiðslu og reyndist ánægð með plaggið. Nú er það þingsins að hlusta og klára verkið. Við getum margt lært af stjórnarskrárgerðinni. Þetta opna ferli til ákvarðanatöku ættum við að nota mun oftar, ekki síst þegar kemur að stóru málunum. Og við getum nagað okkur í handarbökin að hafa ekki oftar spurt þjóðina hvert hún vildi halda. Ég held að það hafi verið óráð að spyrja þjóðina ekki hvort rétt væri að sækja um aðild að ESB sumarið 2009 og það er að koma í bakið á okkur núna. Þjóðaratkvæðagreiðsla um það stór- mál hefði tryggt þjóðinni hlutlausar upplýsingar um hvað í um- sókn og aðild fælist áður en haldið var af stað. Umræðan virðist því miður oft á villigötum þegar að því kemur og hræðsluáróður áberandi. Hefði þjóðin ákveðið að sækja skyldi um aðild hefðu stjórnvöld haft mun skýrara umboð við samningsborðið og það ekki verið undir geðþótta einstakra ráðherra komið hvernig gengi. Hefði þjóðin ákveðið að sækja ekki um værum við senni- lega að íhuga aðrar leiðir þegar kemur að efnahags- og gjaldmið- ilsmálum, leiðir sem ef til vill verða þær sem við þurfum að feta okkur ef samningar við ESB nást ekki eða ef þjóðin hafnar þeim þegar á hólminn er komið. Þess í stað erum við föst í ferli sem við vitum ekki hvort og þá hvenær leiðir til ásættanlegrar nið- urstöðu.    Stóra verkefnið á næsta kjörtímabili verður að gera þjóðfélag- ið réttlátara en í því finnst mér ríkisstjórnin hafa brugðist. Það verður ekki gert nema með leiðréttingu á skuldum heimilanna og með því að koma húsnæðislánum hér í sambærilegt horf og á hin- um Norðurlöndunum. Efnahagskreppur einkennast af eigna- tilfærslum og það er alveg ljóst hverjir bera byrðarnar í okkar samfélagi. Hrein eign Íslendinga á aldrinum 30-45 ára féll frá því að vera 137 milljarðar króna niður í 8 milljarða í mínus á árunum 2006 til 2011. Hún sem sagt þurrkaðist út og heil kynslóð stendur eftir eignalaus. Það er óásættanlegt og verður að laga. Því miður hafa tækifærin til þess runnið okkur úr greipum eitt af öðru og sífellt flóknara verður að vinda ofan af vitleysunni. Það verður samt að gera það og til þess eru enn færar leiðir. Og verðtrygg- ingin verður að fara. Leiðrétting lána og afnám verðtryggingar er forsendan fyrir þeirri þjóðarsátt sem við verðum að ná.    Ísland er að mörgu leyti land tækifæranna. Við erum rík af auðlindum, ágætlega menntuð og ættum að geta haft það svo gott. Það er verkefni okkar sem byggjum Ísland að skapa rétt- látt samfélag þar sem allir sitja við sama borð. Margrét Tryggvadóttir, formaður þingflokks Hreyfingarinnar Morgunblaðið/RAX Um áramót „Hrein eign Íslendinga á aldrinum 30-45 ára féll frá því að vera 137 milljarðar króna niður í 8 milljarða í mínus á árunum 2006 til 2011. Hún sem sagt þurrkaðist út og heil kynslóð stendur eftir eignalaus. Það er óásættanlegt og verður að laga.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.