Morgunblaðið - 31.12.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. DESEMBER 2012
• Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur óskar þér gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
62
44
8
12
/1
2
VIÐ ERUM Á VAKTINNI
ALLAN SÓLARHRINGINN
Við erum
til taks Við treystum sjaldan meira á orkuna en um jól og áramót. StarfsfólkOrkuveitu Reykjavíkur er í viðbragðsstöðu til að tryggja þér birtu og ylum hátíðirnar. Gleðilega hátíð!
Bólivískir hermenn og lögreglumenn
tóku á laugardag yfir byggingar
spænska orkufyrirtækisins Iber-
drola SA. Komu þessar aðgerðir að-
eins nokkrum klukkustundum eftir
að Evo Morales, forseti Bólivíu,
fyrirskipaði að fjögur fyrirtæki
spænska raforkurisans skyldu þjóð-
nýtt.
Í ræðu sem send var út beint frá
forsetahöllinni í miðborg La Paz
sagði Morales að þjóðnýtingin væri
nauðsynleg til að tryggja boðlegt
rafmagnsverð í bæði þéttbýli og
dreifbýli.
Bólivía er með fátækustu þjóðum
S-Ameríku og er landsframleiðsla á
mann þar aðeins einn fimmti af því
sem sést í nágrannaríkjum eins og
Úrúgvæ og Brasilíu. Um 87% heim-
ila í þéttbýli eru með rafmagn en
ekki nema 33% heimila í dreifbýli,
skv. tölum orkumálaráðuneytis Bóli-
víu.
Ekkert lát á þjóðnýtingu
Síðan sósíalistinn Morales komst
til valda árið 2006 hefur hann beitt
sér fyrir þjóðnýtingu fjarskipta,
orku og vatnsiðnaðar í landinu. Í júní
þjóðnýttu bólivísk stjórnvöld Co-
quiri tin og sink-námuna sem þá var í
eigu Glencore International. Ekki
færri en 15 fyrirtæki hafa verið þjóð-
nýtt í landinu síðan 2006.
Talsmaður Iberdrola staðfesti við
fréttastofu Bloomberg að bólivísk
stjórnvöld hefðu tekið yfir starfsemi
fyrirtækisins í landinu en neitaði að
tjá sig frekar um þróun mála. Fyrir-
tækin sem þjóðnýtt voru um helgina
eru fjárfestingarfyrirtæki, þjónustu-
fyrritæki og tvö fyrirtæki sem selja
rafmagn í og við La Paz. Starfsmenn
sýndu engan mótþróa við yfirtökuna.
Í ávarpi sínu á laugardag sagði
Morales að Iberdrola muni fá bætur
fyrir eignarnámið að loknu óháðu
mati á eignum félagsins. Á matsferl-
ið að taka að hámarki sex mánuði.
Iberdrola er alþjóðlegt stórfyrir-
tæki í einkaeigu og er starfsemin í
Bólivíu aðeins lítill hluti af þessu
spænska veldi. Iberdrola er með
höfuðstöðvar sínar í Bilbao og hefur
samtals um 30.000 manns að störfum
um allan heim. ai@mbl.is
Spænskt raf-
magnsfyrirtæki
þjóðnýtt í Bólivíu
AFP
Vald Hermenn standa vörð við eina af rafstöðvum Iberdrola í La Paz. Evo Morales segir eignarnámið nauðsynlegt.
Morales forseti lætur ríkið sölsa
fyrirtæki undir sig Að minnsta kosti
15 fyrirtæki þjóðnýtt frá árinu 2006
Deilur Apple og Samsung hafa
verið áberandi í viðskiptafréttum
ársins. Dómstólaslagur fyrirtækj-
anna náði hámarki fyrr á árinu
þegar Samsung var dæmt til að
greiða Apple rösklega milljarð
dala í bætur vegna einkaleyfa-
brota.
Var útlit fyrir að aukin harka
myndi færast í slaginn með til-
komu Galaxy S III línunnar en nú
benda fréttir frá Kaliforníu til
þess að slagurinn kunni að róast
ögn.
Enn er verið að rétta í máli
Samsung og Apple fyrir dóm-
stólum í San Jose í Kaliforníu og
hafði Apple ætlað að bæta nýút-
gefnum tækjum Samsung við lang-
an lista af umkvörtunarefnum.
Nú greinir Reuters hins vegar
frá því að Samsung hafi bent dóm-
ara á að síminn Galaxy S III Mini
verður ekki seldur á Bandaríkja-
markaði og hefur Apple fallist á að
draga til baka kröfur sínar sem
lúta að þessu tiltekna símtæki.
ai@mbl.is
Apple og
Samsung
deila enn