Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2012, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2012, Side 28
*Matur og drykkir Að Skarði í Landsveit er hangikjöt reykt í gömlum torfkofa og tvíreykt hangikjöt er vinsælast »32 G lögg, eða jólaglögg eins og það er nefnt á Íslandi, rekja sumir til Svíþjóðar en aðrir til hins þýska Glühweins sem breiðst hefur út um heiminn. Englendingar kalla glöggið ann- að hvort Glühwein eða Christmas punch. En hver sem uppruninn er hafa eflaust fáir haldið glöggið jafnmjög í heiðri og Svíarnir. „Jólaglögg, ágætis siður,“ segir Sigurður Hall, kokkur. Hann er einmitt með nýja bók um jólaréttina fyrir jólin og segir að jóla- hlaðborðin hafi tekið við af jólaglöggunum sem voru mjög vinsæl á Íslandi hér áður fyrr. „En svo fór þetta úr böndunum um tíma, menn borðuðu of mikið af áfengum rúsínum í þessum jólaglöggum og gátu ekki keyrt heim,“ segir Sigurður. Hann segir þann sið að gera glögg gjarn- an kenndan við Svíþjóð, þótt hann sé frekar samnorrænn. „Þetta byrjar að verða útbreiddur siður á Íslandi fyrir 40 árum. Þegar þú ferð til Þýskalands og færð þér Glühwein, þá eru aldrei rúsínur eða möndlur með. Það er frekar í norræna siðnum. Ef fólk vill ekki möndlur og rúsínur þá er bara að sleppa þeim, þannig gera menn þetta í Tékklandi og Þýskalandi. Svo eru sumir sem vilja bæta sterkara áfengi út í. Það fer svolítið eftir því hvort rauðvínið sem notað er er súrt eða sætt hvaða sterka áfengi ætti þá að nota. Púrtvín- ið getur oft verið ágætt eða koníak en ég myndi ekki mæla með Grand Marnier nema rauðvínið sé í súrari kantinum.“ Morgunblaðið/Golli JÓLIN KOMA Jólaglögg- ið við jólalögin JÓLAGLÖGGIÐ HEFUR VERIÐ VIN- SÆLT Á ÍSLANDI Í EIN 40 ÁR OG NAUÐSYNLEGT AÐ KUNNA GÓÐA UPPSKRIFT AÐ BRAGÐGÓÐU NÝ- LENDUKRYDDUÐU GLÖGGI. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Sigurður Hall er búinn að vera lengi í kokka- bransanum og hefur mallað margt jólaglöggið. Það skemmtilega við þessa uppskrift að jólaglöggi er að kryddpokann sem henni fylgir er einnig hægt að nota til að útbúa kryddað jólarauðkál sem er ein af uppskriftunum í nýrri bók Sigga Hall; Jólaréttirnir. 1 og 1/2 lítri af rauðvíni. Þarf ekkert að vera nein góð tegund. Svo er að bæta kryddpoka ofan í. Kryddpoki: Börkur af ½ appelsínu – bara ysta app- elsínulagið, 1 heill kanill, 1 tsk heil allrahandakorn, 1 tsk heil einiber, 1 tsk kóríanderfræ, ½ tsk negulnaglar, ½ svört piparkorn. Látið í grisju, gerið poka og bindið fyrir með rúllupylsugarni. Setjið pokann út í og síðan skal hita rauðvínið upp í 60 – 70 gráður. Pokinn skal síðan vera ofan í rauðvíninu í það minnsta 20 mínútur. Ef menn vilja nota rúsínur og möndlur skal setja það ofan í eftir að búið er að taka pottinn upp úr. Ef menn ætla að notast við möndlur er mælt með því að þær séu þurrristaðar á pönnu áður en þeim er bætt við. Jólaglöggs-uppskrift Sigga Hall

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.