Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.12.2012, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.12. 2012
Föt og fylgihlutir
Þ
að er þessi nýtni og nota-
gildi sem er rauður þráður
í gegnum allt sem við ger-
um og munum gera,“ segir
Gréta Hlöðversdóttir, fram-
kvæmdastjóri fatahönnunarfyr-
irtækisins As We Grow, sem hún
rekur ásamt fatahönnuðunum Mar-
íu Theódóru Ólafsdóttur og Guð-
rúnu Rögnu Sigurjónsdóttur.
„Okkur hafði alltaf langað að vinna
saman. Þær eru hönnuðir og ég
hef líka reynslu af
þessum heimi því
ég vann hjá
Hönnunarmiðstöð
Íslands við að
markaðssetja ís-
lenska hönnun er-
lendis. Ég sé um
rekstrarhliðina en
þær um hönn-
unina,“ segir Gréta en hún er lög-
fræðingur með MBA-próf.
Hugmyndin að vörumerkinu
kviknaði útfrá peysu sem móðir
Guðrúnar prjónaði handa barni í
fjölskyldunni, sem gekk síðan í
erfðir. „Hugmyndin hjá okkur
gengur út á að búa til flíkur sem
geta stækkað með barninu og
ferðast með því,“ segir Gréta og
útskýrir að þetta sé til viðmiðunar
í öllu sem þær geri, hönnun, efnis-
vali og framleiðslunni. „Sniðin eru
hönnuð þannig að þau vaxi með
barninu,“ segir hún og dugar hver
stærð lengur en venja er. As We
Grow fæst í þremur stærðum, 6-18
mánaða, 18-36 mánaða og 3-4 ára.
Öll fötin eru úr alpaca-ull, ull
lamadýra í Perú en þar fer fram-
leiðslan líka fram. „Alpaca-ullin er
vinsælt hráefni. Hún er léttari og
endingarbetri en venjuleg ull. Hún
er lanolin-laus og veldur ekki of-
næmi,“ segir Gréta.
Þetta er langhlaup
Fyrirtækið var stofnað í ár. „Þetta
er langhlaup, fólk þarf að kynnast
hugmyndinni á bak við merkið en
það hefur gengið vel hingað til.
Við kynntum merkið fyrst á sýn-
ingu í Kaupmannahöfn í febrúar
og náðum að selja vörurnar til
Stækka með
barninu
AS WE GROW ER ÍSLENSKT BARNAFATAMERKI SEM FRAM-
LEIÐIR VÖRUR ÚR ALPACA-ULL FRÁ PERÚ. FÖTIN ERU
GERÐ MEÐ NÝTNI OG NOTAGILDI Í HUGA.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Gréta
Hlöðversdóttir
HUGMYNDIN FRÁ PEYSU SEM GEKK Í ERFÐIR *Okkar markhópur er fólksem hugsar um gæði ogumhverfið, fólk sem vill nátt-
úrulegar vörur sem það getur
nýtt lengi og ætlar sér að geyma.
Litasamsetning-
arnar eru mjög
skemmtilegar.
Fötin eru bæði fyrir stráka og stelpur
og fást í þremur stærðum. Alpaca-
ullin er mjúk og hentar vel í barnaföt.
L
ínan Stál í stál er glæný lína
frá Uppsteyt, sem tilheyrir
Jens. Allir skartgripirnir
eru handsmíðaðir úr eðal-
stáli. Berglind Snorradóttir og Jón
Snorri Sigurðsson eru hönnuðir
Uppsteyt.
Hvaðan kemur hugmyndin að
þessari nýju línu?
„Við höfum verið með borðbúnað
úr stáli, ostahnífa, kökuhnífa, skeið-
ar og skálar. Þetta spratt út frá
þeirri vinnu,“ segir Berglind og út-
skýrir nánar eiginleika stálsins sem
þau nota.
„Eðalstálið er
glansandi, við
vinnum það þann-
ig að það er há-
glansandi og það
heldur sér þann-
ig,“ segir hún og
bætir við að ekki
þurfi að fægja það.
Sömuleiðis er
það létt. „Þannig að það er ekki
þungt að vera með stóra stáleyrna-
lokka í eyrunum og armböndin eru
líka létt, þó þau séu svona stór,“
segir hún en gripirnir eru líka á
viðráðanlegu verði, öfugt við sif-
urgripi af sömu stærð.
Hvaðan fenguð þið innblástur við
hönnunina?
„Við fáum mikinn innblástur frá
náttúrunni. Í þessari línu fengum
við innblástur meðal annars frá
norðurljósunum og stuðlabergi,“
segir hún.
„Svo erum við með eitt sem er
alveg nýtt, það er klútaskart. Mað-
ur þræðir það upp á klút eða trefil
og getur jafnvel lokað honum með
því,“ segir hún.
„Þetta er allt handsmíðað, við
berjum þetta til og beygjum í rétt
form,“ segir Berglind, sem útskrif-
aðist úr gullsmíði árið 2003 og
lærði síðar húsgagna- og vöruhönn-
un á Bretlandi.
„Málmarnir í gullsmíðinni og
HANDSMÍÐAÐIR SKARTGRIPIR ÚR EÐALSTÁLI
Berglind
Snorradóttir
Eyrnalokkarnir
fá formið úr
stuðlabergi.
Norðurljós og stuðlaberg
Klúta-
skartið er
skemmtileg
nýjung.