Morgunblaðið - 12.01.2013, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.01.2013, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það á að láta okkur ein borga. Fólk er búið að fá nóg. Trúverðugleiki okkar er í hættu, tel ég,“ seg- ir Arnar G. Hjaltalín, formaður Drífandi – stétt- arfélags í Vestmannaeyjum. Samþykkt var á fé- lagsfundi í vikunni að beina því til forsendu- nefndar ASÍ að segja upp gildandi kjara- samningum við þá endurskoðun sem nú stendur yfir. Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar – stéttarfélags í Þingeyjarsýslum – telur að for- sendur samninga séu löngu brostnar og því blasi við uppsögn nema Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld komi til móts við kröfur verkalýðs- hreyfingarinnar um breytingar á núgildandi samningum. Framsýn vill leita allra leiða til að koma í veg fyrir að samningarnir falli úr gildi nú í janúar. Leiðin til þess sé að hækka laun meira en gert er ráð fyrir í núgildandi samningum. Jafnframt því sem stöðugleiki verði skapaður. Samningamenn ASÍ og SA ræddu í gærmorgun um leiðir til að ná saman um endurskoðun kjarasamninga. ASÍ lagði áherslu á að stytta samningstímann meira en SA bauð og vildi móta sameiginlega stefnu í verðlags- málum, auk þeirrar atvinnustefnu sem SA lagði til. Samninganefndirnar funda áfram í dag. Meira þarf til að koma „Ég bind vonir við að við náum einhverju út úr þessum viðræðum til að styrkja stöðu launafólks,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Hann telur mikil- vægt að meira komi inn í dæmið en boðið hefur verið, til að það gangi upp. Hann segist hafa mikl- ar áhyggjur af stöð mála og telur að launþegar muni ekki sætta sig við að sitja eftir á meðan aðrir tryggja sinn hlut. „Ég hef áhyggjur af því að verðbólgan sé að festa sig í sessi og mikill óstöðugleiki sé fram- undan,“ segir Kristján Þórður. Hafa burði til að greiða hærri laun „Ætli margir séu ekki að leita að einhverju hálmstrái til að stökkva á?“ segir Arnar G. Hjalta- lín um viðræður SA og ASÍ. Hann bætir því við að gott sé að menn ræði saman en meira þurfi til að koma en stytting samningstíma um einn mánuð. Hann telur að sjávarútvegurinn hafi burði til að greiða fiskverkafólki og almennu verkafólki hærri laun. „Um leið drögum við hina upp á eftir okkur,“ segir Arnar. Trúverðugleiki okkar í hættu  Drífandi – stéttarfélag í Vestmannaeyjum – vill segja upp kjarasamningum  Framsýn í Þingeyjar- sýslum segir að uppsögn blasi við nema SA og stjórnvöld komi til móts við kröfur verkalýðshreyfingar Endurskoðun samninga » Samningamenn ASÍ og SA funduðu um endurskoðun kjarasamninga í gær og funda aftur í dag. » Mikið verður fundað á næst- unni. Þannig er boðaður for- mannafundur Starfsgreina- sambandsins nk. þriðjudag og fundur samninganefndar í kjöl- farið og formannafundur verð- ur hjá ASÍ á föstudag. » Niðurstaða þarf að liggja fyrir 21. janúar nk. ef segja á samningum upp. „Við eigum að finna matarholurnar og nýta okkur þær.“ Arnar G. Hjaltalín Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Inflúensa, RS-veira og Nóróveira herja nú á landsmenn og ollu því m.a. að óvenjumikið var að gera á Landspítalanum í vikunni. Þetta kemur fram í pistli Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, á heimasíðu spítalans. „Allir þessir faraldrar hafa lagt töluverðar byrðar á Landspítalann, m.a. þurfa einstaklingar sem þarfn- ast innlagnar vegna þessara veiru- sýkinga mjög oft á einangrun og ein- býli að halda,“ segir Björn í pistlinum. Þó tekur hann fram að inflúensufaraldurinn nú sé enn sem komið er ekki skæðari en vanalega. Hinsvegar sé óvanalegt að þessir þrír faraldrar komi upp á sama tíma og slíkt auki álagið verulega. Þá tek- ur Björn fram að erfiður húsakostur og skortur á einbýli sé bagalegur. Í pistlinum kemur einnig fram að sú staðreynd að á spítalanum bíða nú um 50 manns eftir plássi á hjúkr- unarheimilum geri stöðuna enn erf- iðari. Til að bregðast við ástandinu var valaðgerðum fækkað í vikunni og slíkt verður líklega gert aftur í þeirri næstu. Þá verða fleiri rúm en vana- lega opin um helgina til að koma sjúklingum fyrir. Þórður G. Ólafsson, yfirlæknir á Læknavaktinni í Kópavogi, segir að mikið sé að gera þessa dagana. Óvenjumikið um pestir Óvenjumikið hafi verið um alls- kyns pestir allt frá því í nóvember. „Það hefur verið mikið um kvef og hósta, svo hafa niðurgangspestir verið að ganga, “ segir Þórður. Hann bætir við að nú sé vitjunum að fjölga og það sé vanalega nokkuð góður mælikvarði á að inflúensan sé að ná sér á strik. Spurður um ráð til að forðast smit leggur Þórður áherslu á almennt hreinlæti og handþvott. Auk þess sem hvíld og nægjanlegur svefn sé nauðsynlegur þáttur. Pestir valda álagi á Landspítalanum Morgunblaðið/Ómar Veikindi Ýmsir kvillar herja á landsmenn þessa dagana.  Fækka valaðgerðum og fjölga rúmum     Fyrsti leikur Íslands í heimsmeistarakeppni karla í handknattleik í Sevilla á Spáni fer fram í dag þegar lið- ið mætir Rússum. Það var létt yfir íslensku landsliðs- mönnunum fyrir utan liðshótelið í höfuðstað Andalús- íuhéraðs í gær þegar þeir gæddu sér á appelsínum af trjánum, enda sól og 20 stiga hiti. Alvaran tekur síðan við í dag og strákarnir spila aftur á morgun, gegn Síle. Tveir af fimm leikjum íslenska landsliðsins í riðla- keppninni verða í opinni dagskrá á Stöð 2 sport, þar á meðal fyrsti leikur Íslendinga á mótinu gegn Rússum klukkan 16.55 í dag. Leikurinn gegn Síle á morgun verður í lokaðri dagskrá en viðureign Íslendinga við Makedóna á þriðjudag verður einnig í opinni dagskrá. Síðustu tveir leikirnir í riðlinum, gegn Danmörku og Katar á miðvikudag og föstudag, verða í lokaðri dag- skrá. Komist íslenska liðið í 16 liða úrslit verður sá leikur í opinni dagskrá en nái það í fjórðungs- eða undanúrslit verða þeir leikir í lokaðri dagskrá. Verði velgengni liðsins hins vegar slík að það komist í úrslitaleikinn, eða leikinn um bronsið, þá verður sá leikur opinn öll- um. kjartan@mbl.is Létt yfir landsliðsmönnunum í Sevilla Ljósmynd/Hilmar Þór Guðmundsson Handboltalandsliðið mætir Rússum í fyrsta leiknum á HM „Veður verður hæglátt næstu daga miðað við að það er hávetur,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur. Hann á von á því að hlýja sunn- anáttin sem hefur verið ríkjandi sé að deyja út hægt og rólega og við taki kaldara loft að vestan. Því gætu fylgt él eða snjókomubakkar t.a.m. í dag, bæði austast og vestast á landinu. Að sögn Einars gæti gert föl víða á Vesturlandi á morgun og einnig gætu snjókomubakkar verið viðloðandi Austurland. Hitastig verði við frost- mark, hugsanlega með slyddu eða krapa á láglendi. „Það verður alls ekkert kuldakast um helgina heldur hæglát vetrarveðrátta, aðeins kald- ara en verið hefur. Strax eftir helgi er lítið um að vera, hiti verður víðast rétt undir frostmarki,“ segir Einar en hann á hinsvegar von á því að í kjöl- farið taki við leysingar með meiri hlý- indum. Oft mildir kaflar um hávetur Leysingakaflinn sem nú stendur yfir hófst 2. janúar. Hlýindin hafa verið miseindregin að sögn Einars en þau náðu hámarki á Akureyri á föstu- daginn fyrir viku þegar hitastigið náði 11 gráðum. Aðspurður hvort þessi milda veðrátta nú um hávetur sé óvenjuleg segir Einar svo ekki vera. „Veðráttan núna er búin að vera frekar mild en undanfarin ár hafa komið svona kaflar mjög reglulega um hávetur, ýmist í janúar eða febr- úar,“ segir Einar. Hann tekur fram að dæmi sé um lengri milda kafla á þessum árstíma og ekki sé um óvenjulega langan kafla að ræða. Svona veðrátta sé það sem landsmenn eigi að venjast þegar sunnan- og suðvestanáttir séu ríkjandi. heimirs@mbl.is Hæglátt vetrarveður  Hlýnar aftur um miðja vikuna  Mild veðrátta að undanförnu alls ekki óvenjuleg, segir veðurfræðingur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.