Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 52

Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 52
 Stórhljómsveit Jólahjálparinnar, en það eru ein stærstu, frjálsu félagasamtök Pól- lands, stendur fyrir fjáröflun á morgun með tón- leikahaldi á aðal- ræðismanns- skrifstofu Póllands við Þórunnartún 2. Þórunn Antonía er meðal flytjenda en safnað verður fyrir bágstödd börn og aldraða í Póllandi. Tónleikarnir hefjast kl. 13.30. Tónleikar á aðalræð- ismannsskrifstofu LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 12. DAGUR ÁRSINS 2013 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. 100 þúsund krónur 82 sinnum 2. Var hætt kominn á fjallinu 3. Lögregla varar við skilaboðum 4. Þúsund km múrinn rofinn  Eva Sigurðardóttir er framleiðandi stuttmyndar sem tilnefnd hefur verið til verðlauna bresku kvikmyndaaka- demíunnar, BAFTA. Stuttmyndin nefnist Good Night og var henni leik- stýrt af Hollendingnum Muriel d’Ans- embourg. Myndin var tekin upp í Lundúnum þar sem Eva býr og starf- ar. Eva er ekki í amalegum félagsskap á BAFTA því stuttmynd eftir hinn virta kvikmyndaleikstjóra Lynne Ramsay, Swimmer, er ein tilnefndra. Verðlaunin verða veitt 10. febrúar nk. Stuttmynd Evu tilnefnd til BAFTA  Fríblaðið Reykjavík Grapevine veitti í gær sín fyrstu tónlistarverð- laun. Af einstökum verð- launum má nefna að Enter 4 með Hjaltalín var valin besta plata ársins 2012, besta lagið „Háa C“ með Moses High- tower og Gus- Gus var tón- leikasveit ársins. Fyrstu tónlistarverð- laun Grapevine FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægur vindur, skýjað með köflum og sums staðar snjómugga eða él, en yfirleitt þurrt NA-til. Kólnandi veður, frost 0 til 5 stig til landsins. Á sunnudag Vestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s og él. Frost 0 til 8 stig, kaldast í inn- sveitum. Vaxandi norðanátt og snjókoma N-lands um kvöldið. Á mánudag Norðanátt, víða 8-13 m/s. Él á norðanverðu landinu, en bjartviðri S-lands. Hiti breytist lítið. KFÍ gerði góða ferð í Grafarvog í gær- kvöldi þar sem liðið vann stórsigur á Fjölnismönnum, 99:75, í úrvalsdeild karla í körfubolta. Eftir sigurinn mun- ar aðeins tveimur stigum á liðunum sem eru bæði í fallbaráttu. Útlendingarnir þrír í liði KFÍ voru mjög öflugir og þá sérstaklega Damier Pitts sem fór á kostum og skoraði 33 stig. »4 Mikilvægur sigur hjá KFÍ í fallbaráttunni „Það sem gerði útslagið fyr- ir mig er að ég get flutt sér- námið mitt í læknisfræðinni frá Stokkhólmi til Umeå, og síðan verið þar í 50 prósent vinnu. Þar með get ég ein- beitt mér mun betur að fót- boltanum en hjá Djurgården í Stokkhólmi,“ segir Katrín Jónsdóttir, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, sem samdi í gær við fyrrverandi Evrópu- meistarana. »4 Betra í Umeå en Stokkhólmi Björgvin Páll Gústavsson er búinn að semja við nýtt lið í Þýskalandi og seg- ist meira en 100 prósent tilbúinn í slaginn með ís- lenska landsliðinu á HM á Spáni. Hann kveðst vera bú- inn að hrista veikindin alveg af sér, hafi sjaldan verið ferskari en einmitt núna og ætli sér stóra hluti með liðinu sem mætir Rússum klukk- an 17 í dag. »1 Sjaldan verið ferskari en einmitt núna Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Það eru ekki margir á aldri Hlífar Böðvarsdóttur sem skrifa í blöð, en í fyrradag birtist í Morgunblaðinu minningargrein eftir hana um Þór- dísi G. Ottesen, 100 ára vinkonu sína. Sjálf er hún 103 ára þótt hún líti ekki út fyrir það. „Ég hef alltaf fengið bót meina minna og það er ekkert að mér nema heyrnin,“ segir hún. „Ég sef eins og sveskja, en prjóna svo allan daginn. Það er afskaplega mikils virði að hafa eitthvað á milli handanna því maður getur ekki setið og bara horft út í loftið. Þá er tíminn svo lengi að líða.“ Úr einum báti í annan Hlíf er dóttir Böðvars Magnús- sonar, hreppstjóra á Laugarvatni, og Ingunnar Eyjólfsdóttur. Þau eign- uðust 13 börn og komust 12 á fullorð- insár, en Hlíf er ein eftir. Hún kynnt- ist mannsefni sínu, Guðmundi Gíslasyni, kennara og skólastjóra, á Laugarvatni. „Hann var frá Ölfus- vatni í Grafningi og eftir að við kynntumst hittumst við oft á miðju Þingvallavatni,“ rifjar Hlíf upp. „Þá fór ég ríðandi að Miðfelli og síðan á báti með Dísu vinkonu út á mitt vatn- ið, en Guðmundur kom á móti okkur og ég skipti um bát. Vatnið var djúpt og mig hryllti svolítið við að sjá sil- ungana á botninum en ég lét mig hafa það.“ Þau Guðmundur gengu í hjóna- band 1931 og eignuðust fjögur börn, bjuggu á Laugarvatni fyrstu árin eða þar til Guðmundur tók við skóla- stjórastöðu við Héraðsskólann á Reykjum í Hrútafirði. Þar voru þau 1937-1954 en Guðmundur féll frá ári síðar. Hlíf ber samferðafólki sínu vel söguna. „Þetta er allt saman gott fólk og ég hef verið heppin. Ég hef alltaf haft nóg að gera, var húsfreyja á mínu heimili og vann lengi hjá Fiskifélaginu.“ Hún hefur lifað tím- anna tvenna. „Ég man hvað það var gríðarlega kalt 1918. Ég er mjög fót- köld en lét mig hafa það. Þá voru ekkert nema sauðskinnsskór til og þeir voru ekki hlýir en heimilið var stórt og gott og við höfðum alltaf nóg að borða.“ Hún segir að uppvaxtar- árin á Laugarvatni hafi verið skemmtileg og millistríðskreppan hafi ekki snert sig sérstaklega. „Ég hefði samt gjarnan viljað eiga meira af fötum.“ Stutt er í kosningar og Hlíf fylgist að sjálfsögðu með dóttursyninum, Guðmundi Steingrímssyni. „Hún er eins og grautur í potti,“ segir Hlíf um pólitíkina. „Maður veit aldrei hvort nokkur rúsína kemur upp úr því en maður bíður og vonar það besta.“ Bíður eftir rúsínunni  Hlíf Böðvars- dóttir er 103 ára og í fullu fjöri Morgunblaðið/RAX Sagnabrunnur „Ég er í fötunum sem ég fékk þegar ég var 100 ára,“ segir Hlíf Böðvarsdóttir sem er 103 ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.