Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 26

Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 26
Í lok desember birtist á feminíska vef- ritinu knuz.is ágætur pistill eftir Þór- dísi Elvu Þorvaldsdóttur undir fyr- irsögninni „Af hverju hópnauðgunin í Delhi er ekki sér-indverskt mál“. Inntak pistilsins er að ofbeldi gegn konum er alþjóðlegt vandamál og máli sínu til stuðnings telur Þórdís Elva m.a. upp fjölda reglna sem henni, sem ungri konu, hafa verið settar á lífs- leiðinni til að draga úr líkunum á að hún verði fyrir kynferðisofbeldi. Reglurnar eru margar en við könnumst við þær flestar: Ekki vera ein á ferli eftir myrkur. Aldrei skilja drykkinn við þig á skemmtistað. Öskraðu og potaðu í augun og sparkaðu í punginn á árásarmanninum ef það er ráðist á þig. „Mér var kennt að verða ekki of full, klæða mig ekki gálulega, daðra ekki of opin- skátt og þiggja ekki far af ókunnugum,“ segir Þórdís Elva. Það er auðvelt að horfa til útlanda og þakka fyrir það í hljóði að búa á Íslandi. Jafnrétti er víða ekki nema fjar- lægur draumur og það þarf ekki að líta lengra en til Bandaríkjanna til að finna dæmi um bakslag í jafnrétt- isbaráttunni, t.d. hvað varðar réttinn til fóstureyðinga. En þetta er nokkuð sem við erum líka að upplifa hér heima. Það hefur t.d. verið á brattann að sækja hvað varð- ar launajafnrétti og sýnileika kvenna á ýmsum sviðum þjóðfélagsins. Jafnvel verra er að svo virðist sem ákveðið bakslag sé komið í íslenska jafnréttisbaráttu á vígstöðvum veraldarvefsins. Á einhverjum tímapunkti gerðist það að feminísmi varð rót alls hins illa og „öfgafeminístar“ helsta ógnin við íslenskt samfélag. Samantekt í síðasta helgarblaði DV á þeim ofsóknum sem skeleggir feminístar hafa sætt á netinu er hreint ótrúleg lesning en þörf áminning um stöðu mála hér á landi. Ég velti því fyrir mér hvort enn ein reglan, sem foreldrar af minni kynslóð munu brýna fyr- ir dætrum sínum, verði eitthvað á þessa leið: „Ekki vera að taka þátt í umræðu við þessa stráka/menn, það skilar engu og maður veit aldrei hvað gæti gerst.“ Konum, hvað þá yfir- lýstum feminístum, er ekki lengur óhætt að tjá sig um jafnréttisbaráttuna án þess að eiga það á hættu að fá yfir sig holskeflu svívirðinga og hótana. Og ekkert fæst að gert. Hvar er forundranin og reiðin vegna þeirrar meðferðar sem feminístar sæta á netinu? Í samtali við DV sagðist Sóley Tómasdóttir velta því fyrir sér hversu breitt bilið væri milli netheima og raunheima þegar kæmi að of- beldi og hótunum um slíkt. Þessar vangaveltur eiga sann- arlega rétt á sér. Hversu margar konur skyldu veigra sér við að tjá sig um jafnréttisbaráttuna vegna þess hvernig umræðan er orðin? Við skulum fara varlega í að hneykslast á stöðu mála annars staðar í heiminum á meðan við búum í samfélagi sem með aðgerða- og sinnuleysi leggur blessun sína yfir ógnanir og hótanir í garð kvenna sem gerast sekar um það eitt að segja sína meiningu. holmfridur@mbl.is Hólmfríður Gísladóttir Pistill Er það nú jafnrétti! 26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ CristianDanPreda, þingmaður á Evrópuþinginu og talsmaður ut- anríkismála- nefndar þingsins vegna umsóknar Íslands um inngöngu í Evr- ópusambandið, sagði í við- tali skömmu fyrir jól að „samþykkt“ hefði verið að taka erfiðustu kaflana fyrir í lokin. Í samtali við Morgun- blaðið í vikunni skýrir Preda þessi orð sín þannig að hann hafi ekki verið að tala um formlega samþykkt á borð við undirritun skjals, heldur hafi þetta verið „meira í ætt við sameigin- lega niðurstöðu sem báðir aðilar komust að“. Ástæða þess að ummæli Preda hafa mikla þýðingu fyrir Íslendinga og viðræð- urnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu er sú að ráðamenn hér á landi hafa ítrekað sagst hafa beitt sér fyrir því að erfiðustu kafl- arnir, þ.e. sjávarútvegs- og landbúnaðarmál, verði tekn- ir fyrir sem fyrst. Sú afstaða er að sjálfsögðu rökrétt út frá hagsmunum Íslendinga því að þannig er hægt að ljúka viðræðunum hratt í stað þess að draga þær á langinn og vinna að aðlögun landsins að ESB á meðan. Orð Preda um að „báðir aðilar“ hafi komist að þeirri niðurstöðu að geyma erfið- ustu kaflana stangast þann- ig algerlega á við orð ráða- manna hér á landi. Þegar til þess er litið að viðræðunum er haldið áfram þrátt fyrir að Evrópusambandið hlusti ekki á meintar óskir ís- lenskra ráðamanna um að klára fyrst erfiðustu kaflana verður trúverðugleiki orða Preda þeim mun meiri og orð íslenskra ráðamanna ótrúlegri. Björn Bjarnason fjallar um þetta mál á vef Evr- ópuvaktarinnar og bendir þar á að Steingrímur J. Sig- fússon sé ráðherra þeirra málaflokka sem um ræðir og að hann hafi hitt alla fram- kvæmdastjórana sem hlut eiga að máli í Brusselferð sinni fyrir tæpu ári. Björn heldur áfram og segir: „Steingrímur J. brást ávallt illa við þegar þing- menn spurðu hann um ferð hans á fund stækkunar- stjórans og annarra fram- kvæmdastjórn- armanna. Honum var greinilega misboðið þegar gengið var á hann vegna ferð- arinnar með spurningum þingmanna og svaraði af þeim hroka í þing- salnum sem hann telur sér sæma. Hér á þessum stað hefur verið litið þannig á að Brusselmenn hafi sýnt Steingrími J. óvirðingu með að hefja ekki „alvöruviðræð- urnar“ um málaflokka hans. Þetta er líklega misskiln- ingur. Allt bendir til þess að Steingrímur J. hafi komist að þeirri niðurstöðu með viðmælendum sínum í jan- úar 2012 að ekki ætti að láta skerast í odda í ESB- viðræðunum fyrir kosningar í apríl 2013. Steingrímur J. hafi lofað að halda viðræð- unum gangandi fram yfir kosningar. Þetta er í raun eina skýr- ingin á reiði Steingríms J. vegna spurninganna á þingi og síðan vegna umræðnanna innan eigin flokks í ágúst 2012 um nauðsyn þess að endurskoða afstöðuna til að- ildarviðræðnanna vegna þess hve þær hafa dregist á langinn. Steingrímur J. mátti ekki heyra á neina breytingu minnst og því síð- ur skutilsveinn hans, Björn Valur Gíslason.“ Steingrímur á vafasaman feril svo ekki sé meira sagt þegar kemur að hagsmuna- gæslu fyrir Ísland og samn- ingum við erlend ríki. Fer- illinn er ekki síður vafasamur þegar kemur að því að segja þingi og þjóð satt. Þetta styður þá skoðun að Steingrímur, talsmaður um- ræddra málaflokka, hafi fallist á kröfur ESB um að fresta þeim. En hafi það ekki verið Steingrímur þá hefur það verið einhver annar af helstu fulltrúum Íslands gagnvart ESB. Sé svo hlýt- ur Steingrímur að vilja komast til botns í því hver hafi þannig farið gegn yfir- lýstri afstöðu Íslands. Hann hlýtur jafnframt að upplýsa hver hafi farið þannig gegn hagsmunum Íslands og tryggja að viðkomandi fái ekki að vera áfram í aðstöðu til að vinna gegn hags- munum landsins. Einhver hefur sam- þykkt að taka hags- muni ESB fram fyrir þá íslensku. Böndin berast að Steingrími J.} Ef ekki hann, þá hver? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Alls hafa 1.193 vinnuslysverið tilkynnt til Vinnueft-irlitsins fyrir árið 2012,774 slys á körlum og 419 slys á konum. Þessi tala gæti enn hækkað, þar sem nokkuð er um að tilkynnt sé um slys þegar frá líður, og segir Kristinn Tómasson, yfir- læknir hjá Vinnueftirlitinu, að ekki sé ólíklegt að þegar allt verði talið verði fjöldi tilkynninga á svipuðu róli og árin 2009-2010, eða í kringum 1.350. Kristinn segir vinnuslys mun færri nú en fyrir um þrjátíu árum en þau séu meira uppi á borðum og að í hinum vestræna heimi hafi orðið gríðarleg vakning um að minnka slysatíðni. „Ég held að sem samfélag séum við að reyna að standa okkur æ bet- ur en á sama tíma eru nýjar hættur sem við áttum okkur ekki á og sam- hliða samdrætti, sem nú gengur yfir bæði hjá fyrirtækjum og stofnunum, er ákveðin ógn af því að við höfum ekki fjárráðin til að sinna for- vörnum,“ segir hann. Aukin og flóknari þjónusta Kristinn segir áhyggjuefni að þegar haldið sé fast um budduna eldist búnaður en samfara því aukist líkurnar á slysum. Þá segir hann nýjungar í atvinnulífinu kalla á nýjar öryggisráðstafanir og nefn- ir ferðaþjónustuna sem dæmi. „Ferðaþjónustan hefur auk- ist og dafnað gríðarlega og það er orðin flóknari og meiri þjónusta sem boðið er upp á, á öllum tímum sólar- hrings,“ segir hann. „Og þetta er ekki það fullmótuð starfsemi að við áttum okkur nákvæmlega á því hvernig á að reka þetta með fullu ör- yggi.“ Vinnuslys ekki óhjákvæmileg Kristinn segir að gera verði við- eigandi áhættumatsferli fyrir nýja sprota atvinnulífsins og hvað varði t.d. olíuvinnslu á Drekasvæðinu verði að setja verulegt fjármagn í að tryggja vinnuvernd í tengslum við svo flókið verkefni. „Það kostar mannafla og fé af hálfu stjórnvalda að tryggja að þessar framkvæmdir verði gerðar af öryggi og það verði ekki manntjón af þeim eða skaði á fólki,“ segir hann. Nýmæli í um- hverfi okkar kalli á nýja nálgun. Kristinn segir slysaskrá Vinnueft- irlitsins í raun aðeins ná til hluta allra vinnuslysa, þeirra sem séu til þess fallin að valda heilsutjóni. Árið 2011 hafi tilkynningar til skrárinnar t.d. verið um 1.500 en nærri 5.000 vinnuslys verið skráð hjá Slysaskrá Íslands, sem hýst er hjá landlækn- isembættinu. Hann segir vinnuslys langt í frá óhjákvæmileg en til að koma í veg fyrir þau þurfi að undirbúa fólk bet- ur undir störfin og samhliða því standa betur að hönnun og útfærslu tækja, búnaðar og vinnuumhverfis. Vinnuslys árið 2012 Heildarfjöldi slysa sem þegar hafa verið tilkynnt: 1.193 *Tvítalning möguleg þar sem tveir orsakavaldar koma fyrir **Tvítalning möguleg þegar áverkar eru fjölþættir Heimild: Slysaskrá Vinnueftirlitsins Eftir tegund áverka** Tognun, liðhlaup 369 Útvortis blæðing 263 Beinbrot 228 Innvortis blæðing (m.a. mar og blæðing inn í líkamshol) 161 Bruni 45 Æting 13 Missir líkamshluta 6 Eitrun 6 Óskráð gögn 5 Kal 0 Annað 238 Samtals 1.334 Eftir yfirflokk orsakavalds* Vinnusvæði (m.a. verkpallar, stigar, þök, hált yfirborð) 300 Handverkfæri 142 Menn 119 Iðnaðarvélar 81 Vörur, efni og hlutir (hrun, skriður o.þ.h.) 70 Vinnuvélar (kranar, gröfur, lyftarar o.þ.h.) 54 Efni og efnasambönd 24 Dýr 24 Dráttarvélar, bú- og garðyrkjuvélar 13 Lyftur og búnaður til að lyfta fólki 5 Katlar, þrýstihylki, geymar o.þ.h. 3 Rafbúnaður 2 Annað 364 Samtals 1.201 Aðrar öryggiskröfur í nýjum atvinnugreinum Kristinn segir að í samanburði við þau lönd sem standa hvað best að vígi þegar kemur að vinnustaða- öryggi komi Ísland ekki nógu vel út. Tölfræðilegur samanburður milli landa sé þó ákveðnum vand- kvæðum bundinn. „Við vitum í raun ekki nákvæmlega að það sé verið að bera saman sömu hlutina á sama stað,“ segir Kristinn. Hann segir að í Finn- landi hafi því t.d. eitt sinn verið þannig háttað að það flokkaðist til heimaslyss eða frístundaslyss ef bóndi varð fyrir banaslysi við störf sín á býlinu. Það var ekki flokkað sem vinnuslys. Þá sé það þannig á Íslandi að ef starfsmaður lendir t.d. í bílslysi á vinnutíma flokkast það sem um- ferðarslys en er ekki tilkynnt til Vinnueftirlitsins sem vinnuslys. Kristinn segir að unnið sé að því að samræma íslensku tölfræðina kerfi hagstofu Evrópusambands- ins með það að markmiði að sam- anburður við önnur Evrópulönd verði nákvæmari. Stöndum ekki nógu vel SAMANBURÐUR MILLI LANDA VANDKVÆÐUM BUNDINN Kristinn Tómasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.