Morgunblaðið - 12.01.2013, Síða 4

Morgunblaðið - 12.01.2013, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Já, heldur betur, það er í rauninni búið að vera mikið að gera allt síð- asta ár, sérstaklega síðan í haust þegar þetta kom upp á Egilsstöðum. Það hefur þó verið einstaklega mikið undanfarið, í desember og janúar,“ segir Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir spurð hvort það sé búið að vera mik- ið að gera að undanförnu í kjölfarið á umræðu um myglusvepp í húsum. Sylgja rekur fyrirtækið Hús og heilsu sem sérhæfir sig í skoðun og rannsóknum á húsnæði með tilliti til raka og þeirra lífvera sem vaxa við þær aðstæður. „Bara fimmtudag og föstudag komu inn um 60 erindi hvorn daginn. Í venjulegu árferði eru þetta kannski 20 til 30 erindi á dag.“ Sylgja segir fólk hafi áhuga á því að láta skoða hýbýli sín og kanna hvort eitthvað gæti verið að og hvort heilsufarseinkenni geti tengst raka og myglu. „Auðvitað er fullt af öðr- um þáttum innandyra sem þarf líka að horfa á, mygla er ekki alltaf ástæðan. Við reynum að skoða alla þætti innilofts og bendum fólki á að skoða líf sitt, t.d hvort það er nýkom- ið með kött og slíkt.“ Byrjaði fyrir tveimur árum Heilbrigðiseftirlit sveitarfélag- anna hafa eftirlit með íbúðarhús- næði að beiðni þeirra sem þar búa. Rósa Magnúsdóttir, heilbrigðis- fulltrúi og deildarstjóri hjá umhverf- iseftirliti Reykjavíkurborgar, segir að fyrirspurnum vegna raka og myglu í húsnæði hafi fjölgað fyrir nokkrum árum. Oft dugi að ráð- leggja fólki í gegnum síma en stund- um séu tilfellin þannig að það þurfi að fá heilbrigðisfulltrúa á staðinn til að skoða ástandið. Rósa segir að grundvallaratriðið sé að komast að því af hverju rakinn stafar, uppræta hann, gera við það sem er skemmt, endurnýja rakt byggingarefni og þrífa. „Rakinn er vandamálið. Mygla vex þar sem raki er,“ segir Rósa. Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis, segist fá að meðaltali eina fyrirspurn á viku vegna raka og myglu í húsum. Hann hefur það ekki á tilfinningunni að tilfellunum sé að fjölga þó að um- ræðan hafi aukist en segir að í kring- um umræðu fari yfirleitt fleiri að hugsa um þessi mál. Mygla vex þar sem raki er  Hafa fengið helmingi fleiri fyrirspurnir í vikunni vegna raka og myglu í hús- um en venjulega  Grundvallaratriðið að uppræta ástæðuna fyrir rakanum Morgunblaðið/Golli Vandræði Raki og mygla geta ver- ið til vandræða í híbýlum fólks. Skúli Hansen skulih@mbl.is Ingibjörg Óðinsdóttir, sem hafnaði í 9. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun skipta um sæti við Ás- laugu Maríu Friðriksdóttur, sem hafn- aði í því áttunda. Þetta staðfestir Ingibjörg í samtali við blaðamann Morgunblaðsins en að sögn hennar mun hún því í næstu þing- kosningum skipa fjórða sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og Ás- laug fimmta sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. „Við skiptum, það var bara okkar ákvörð- un,“ segir Ingibjörg, aðspurð út í mál- ið. Hvorki Áslaug María Friðriksdóttir né Halldór Guðmundsson, formaður kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vildu tjá sig um málið þeg- ar blaðamaður hafði samband við þau í gær. Í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík sem fram fór þann 24. nóv- ember síðastliðinn lenti Hanna Birna Kristjánsdóttir í efsta sæti en á eftir henni komu Illugi Gunnarsson, Pétur H. Blöndal, Brynjar Níelsson, Guð- laugur Þór Þórðarson, Birgir Ár- mannsson, Sigríður Á. Andersen, Ás- laug María Friðriksdóttir, Ingibjörg Óðinsdóttir og Elínbjörg Magnús- dóttir. Hanna Birna hefur ákveðið að leiða lista flokksins í Reykjavík suður. Sætaskipti á framboðslist- um Sjálfstæðisflokksins  Ingibjörg og Áslaug skipta um sæti í Reykjavíkurkjördæmum Áslaug María Friðriksdóttir Ingibjörg Óðinsdóttir Framboðslistar » Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur ákveðið að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður. » Áslaug María lenti í 8. sæti í og Ingibjörg í 9. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Tveir karlmenn, þeir Stefán Logi Ívarsson og Þor- steinn Birgisson, voru sakfelldir fyrir nauðgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Mennirnir voru dæmdir fyr- ir að hafa með ofbeldi og ólögmætri nauðung þröngvað 18 ára stúlku til samræðis og annarra kynferðis- maka en þeir héldu í hendur hennar og nýttu yfirburði sína, bæði að- stöðu- og aflsmun. Hlaut Stefán Logi fimm ára fangelsisdóm fyrir brot sitt og Þorsteinn fjögurra ára og sex mánaða fangelsi. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að framburður sak- borninganna hafi verið um margt misvísandi og ótrúverðugur, þá hafi skýrslur borið það með sér að þeir hafi reynt að samræma framburð sinn. Framburður stúlkunnar þótti hinsvegar að mati dómsins trúverð- ugur en einnig þótti hann hafa stoð í framburði vitna og gögnum máls- ins. Dæmdir fyrir nauðgun  Beittu 18 ára stúlku grófu ofbeldi Mikil eftirspurn eftir neftóbaki fyr- ir síðustu áramót olli því að skorts gætti á nokkrum sölustöðum nú í byrjun janúar. „Það eiginlega klár- uðust hjá okkur birgðir,“ sagði Sig- rún Ósk Sigurðardóttir, aðstoð- arforstjóri ÁTVR. Gripið var til þess ráðs að skammta neftóbakið til þess að dreifa því sem víðast. Breytingar á innkaupaferli áttu lík- lega einnig þátt í því að neftóbaks- skorts gætti á Suðurlandi. Sigrún Ósk sagði að framboð á neftóbaki væri að komast í samt lag. Hún sagði að frá og með næsta mánudegi yrði framboðið líklega orðið eðlilegt. Tóbakið ætti því að fást á flestum sölustöðum í næstu viku. Tóbaksgjald á neftóbak hækkaði um 100% þann 1. janúar 2013. Sig- rún Ósk sagði gert ráð fyrir því að eftirspurn eftir neftóbakinu mundi minnka á þessu ári vegna hækk- unarinnar. Reynt verður að stýra framleiðslunni í samræmi við það. Í fyrra seldust 28,8 tonn af nef- tóbaki. Það var 4,9% minna en seld- ist árið 2011. Það ár seldust 30,2 tonn. Sölusamdrátturinn er rakinn til þess að tóbaksgjald á neftóbak hækkaði um 75% þann 1. janúar 2011. Í desember 2011 kostaði 50 gramma neftóbaksdós um 700 krónur en nú kostar hún á bilinu 1.800 - 1.900 krónur. gudni@mbl.is Búist við minni sölu neftóbaks Morgunblaðið/RAX Sex ár eru síðan Sylgja fór að vinna við Hús og heilsu og segir hún að síðustu tvö ár hafi orðið vitundar- vakning í sam- bandi við heil- brigði í hýbýlum. „Það er nýtt að fólk pæli í þessu í samhengi við heilsuna. Mikilvægasta í þessu máli núna er að fólk fyrirbyggi vandann. Samfélagið allt þarf að taka sig á; hvernig við hönnum húsin okk- ar, byggjum þau, umgöngumst þau og viðhöldum þeim. Ef allir þessir fjórir þættir eru í lagi þarf eitthvað að fara úrskeiðis í húsnæði svo það mygli,“ segir Sylgja og bætir við að það sé mjög mikilvægt að húsin séu þurr. Fyrirbyggja vandann HEILBRIGÐI Í HÝBÝLUM Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir Útför Sverris Þórðarsonar blaðamanns var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur jarðsöng og Kammerkór Dómkirkjunnar söng við at- höfnina. Organisti var Kári Þormar. Líkmenn voru Hrafn Gunnlaugsson, Kári Kaaber og Jón Ingimarsson við hægri hlið kistu og Birgir Kaaber, Páll Kr. Pálsson og Sveinn Agnarsson. Sverrir var yngstur sjö systkina, barna Ellen Johanne Sveinsson, fæddrar Kaaber, og Þórð- ar Sveinssonar, prófessors og yfirlæknis á Kleppi, og síðastur til að falla frá. Hann lést sl. mánudag, níræður að aldri. Sverrir starfaði sem blaðamaður við Morgunblaðið í tæp fimm- tíu ár. Morgunblaðið/Golli Sverrir Þórðarson blaðamaður jarðsunginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.