Morgunblaðið - 12.01.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 12.01.2013, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 | SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 LAGER HREIN SUN FACEBOOK.COM/GLERAUGNAMIDSTODIN Guðni Einarsson gudni@mbl.is Risavaxið orgel Hallgrímskirkju er nú tekið niður pípu fyrir pípu og stykki fyrir stykki vegna gagn- gerrar hreinsunar og endurbóta. Verkið vinna þrír til fimm menn og er miðað við að það taki átta vikur. Tveir þýskir orgelsmiðir eru byrj- aðir að vinna við orgelið og er einn Íslendingur þeim til aðstoðar. Von er á tveim þýskum orgelsmiðum til viðbótar eftir níu daga. Heildar- kostnaður er áætlaður 25-30 millj- ónir króna. Nokkuð er síðan byrjað var að safna fyrir viðgerðinni. „Verkið er unnið eftir tuttugu ára notkun á orgelinu og mikla ryksöfn- un,“ sagði Hörður Áskelsson, org- anisti í Hallgrímskirkju. „Orgelið er tekið nánast algjörlega í sundur – alveg í frumeindir. Hver einasti hlutur er ryksugaður og hreins- aður. Í leiðinni er athugað hvort eitthvað hefur farið úrskeiðis í vél- rænum búnaði orgelsins eftir öll þessi ár. Hvort einhvers staðar er farið að leka loft eða eitthvað annað bilað. Orgelið á að verða algjörlega eins og nýtt eftir viðgerðina.“ Stærsta breytingin sem gerð verður á orgelinu felst í því að skipt verður um rafstýri- og tölvubúnað. Hörður sagði að á því sviði hefðu orðið ótrúlega miklar framfarir frá því að orgelið var smíðað. „Nýi tölvubúnaðurinn gerir kleift að láta orgelið spila sjálft,“ sagði Hörður. „Við getum spilað og látið orgelið svo endurtaka leikinn þann- ig að það verður eins og sjálfspil- andi.“ Organistar verða þó ekki óþarfir með þessari tækninýjung. Önnur mikil framför verður að nýja tölvan í orgelinu mun geta geymt allar raddstillingar eða raddsamsetningar sem organistar gera fyrir einstök verk sem þeir flytja. Hörður sagði að hingað til hefði þurft að rýma minni orgelsins t.d. þegar gestaorganistar kæmu til að halda tónleika í kirkjunni. Hér eftir yrði hægt að kalla still- ingarnar fram árum síðar eða organistinn gæti geymt þær á minnis- lykli. Einni af 72 rödd- um orgelsins verð- ur breytt þannig að hún fær nýtt hlutverk, en sú breyting hefur verið á óskalista organistanna í kirkjunni. „Okkur vantaði eina mjög veika undirleiksrödd, sérstaklega til að spila undir hjá söngvurum,“ sagði Hörður. Stærsta orgelið verður sjálfspilandi  Klais-orgel Hallgrímskirkju hreinsað og endurbætt Skúli Hansen skulih@mbl.is Ávöxtunarleiðir Almenna lífeyris- sjóðsins skiluðu á síðasta ári hæstu raunávöxtun frá upphafi en þær hækkuðu um allt að 16,6% umfram verðbólgu á árinu 2012. Samkvæmt tilkynningu frá sjóðnum skiluðu all- ar ávöxtunarleiðir hans jákvæðri nafnávöxtun á síðasta ári. Hæsta nafnávöxtunin var á blönduðu ávöxtunarleiðinni Ævisafni I en hún skilaði 21,8% nafnávöxtun á árinu. Samkvæmt tilkynningunni má hækkun Ævisafns I einkum rekja til hagstæðrar þróunar á erlendum mörkuðum og þess að varúðaraf- skriftir gengu að hluta til baka. Að sögn Kristjönu Sigurðardótt- ur, fjárfestingarstjóra Almenna líf- eyrissjóðsins, var helsta skýring á góðri ávöxtun mikil hækkun á er- lendum eignum sem skýrist af hækkun erlendra hlutabréfa og veikingu krónunar á síðasta ári. Einnig gengu varúðarafskriftir vegna efnahagshrunsins að nokkru leyti til baka og munar mest um samninga um uppgjör við Glitni í maí. Kristjana bætir við að Ævisafn I eigi rúmlega helming af eignum sínum í erlendum eignum en heims- vísitala hlutabréfa hækkaði yfir 20% í íslenskum krónum á síðasta ári. Að sögn Kristjönu er um að ræða hæstu raunávöxtun sjóðsins frá upphafi. „Ævisafn I náði 21,8% nafnávöxtun líka árið 2006 en þá var verðbólga hærri. 16,6% er hæsta raunávöxtun sem við höfum séð,“ segir Kristjana og bendir á að árið 1993 hafi sjóðurinn náð 15,3% raun- ávöxtun. Aðspurð hvort um sé að ræða einstakt dæmi eða hvort mögulegt sé að viðhalda þessari ávöxtun segir Kristjana að það sé ólíklegt. „Ég myndi ekki gera ráð fyrir því miðað við það fjárfesting- arumhverfi sem lífeyrissjóðir búa við í dag. Við erum í lokuðu hag- kerfi, við höfum eingöngu heimildir til að fjárfesta innanlands og rík- isskuldabréf gefa kannski 2-2½% raunávöxtun.“ Metávöxtun hjá Almenna lífeyrissjóðnum  Allt að 16,6% raunávöxtun hjá sjóðnum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ávöxtun Nafnávöxtun leiðarinnar Ævisafns I var 21,8% á árinu 2012. Ávöxtun lífeyris » Hæsta nafnávöxtun Al- menna lífeyrissjóðsins var á Ævisafni I en það skilaði 21,8% nafnávöxtun árið 2012. » Ævisafn II skilaði 16,7% nafnávöxtun og Ævisafn III 10,6% nafnávöxtun. » Þá skilaði Samtryggingar- sjóður 14,8% nafnávöxtun árið 2012. Orgel Hallgrímskirkju var vígt 13. desember 1992. Johannes Kla- is-orgelsmiðjan í Bonn í Þýskalandi smíðaði orgelið. Þetta lang- stærsta orgel landsins hefur fjögur hljómborð og fótspil, 72 raddir og 5.275 pípur. Orgelið er 15 metra hátt, vegur um 25 tonn og stærstu pípurnar eru um 10 metra háar. Því fylgir færanlegt orgelborð sem er aftarlega norðanmegin í kirkjunni og var tek- ið í notkun árið 1997. Orgelið er rómað á meðal organista víða um heim fyrir gæði og fjölbreytt raddval. Afmælis orgelsins verður minnst með hátíðartónleikum 9.-10. mars, þegar orgelið hefur aftur verið tekið í notkun eftir hreinsun og endurbætur LANGSTÆRSTA ORGEL LANDSINS MEÐ 72 RADDIR Hörður Áskelsson Hátíðartónleikar í mars Hallgrímskirkja Orgelið stóra er nú tekið niður pípu fyrir pípu og stykki fyrir stykki. Um leið verður raf- og tölvubúnaður þess endurnýjaður. Morgunblaðið/Golli Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans, segir ólíklegt að hann muni nýta sér ákvæði í lögum opinberra starfsmanna sem heimilar honum að framlengja uppsagnartíma hjúkrunarfræðinga. „Við höfum skoðað þetta hér hjá okkur og komist að þeirri niður- stöðu að það sé ekki neinum til hagsbóta að lengja í þeirri óvissu sem fylgir því þegar fólk er á upp- sagnartíma,“ segir Björn í samtali við mbl.is Samkvæmt ákvæðinu getur forstjóri Landspítalans beitt því sex vikum áður en uppsagn- irnar taka gildi en stærstur hluti þeirra 270 hjúkrunarfræðinga sem sagt hefur upp störfum mun hætta 1. mars að óbreyttu. „Það eina sem gæti leitt til þess að ég myndi nota þetta væri ef yfir- maður minn, þ.e. ráðherra, myndi skipa mér að gera það. Ég hef ekki trú á því að hann geri það,“ segir Björn. Ólíklegt að upp- sagnartími verði framlengdur Sigurborg Daðadóttir hefur verið skipuð í embætti yfirdýralæknis að því er fram kemur í tilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti. Sigurborg er dýralæknir frá Tierärztlich Hochschule í Hannover og hefur auk þess lokið námi í rekstrar- og við- skiptafræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Ís- lands. Sigurborg hefur starfað hjá Matvælastofnun frá árinu 2008 sem gæðastjóri og forstöðumaður áhættu- mats- og gæðastjórnunarsviðs. Halldór Runólfsson hætti sem yfirdýralæknir um áramót. Fimm sóttu um embættið. Sigurborg skipuð yfirdýralæknir Sigurborg Daðadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.