Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Birna Guðrún Konráðsdóttir
Borgarfjörður
Af mínum bæjarhóli er ýmislegt
að frétta. Fyrst er að telja að þau
illu veður er gengu yfir land og lýð
nýverið fóru fram hjá án þess að
gera mikið vart við sig. Staðsetn-
ingin „inn til landsins“ hjálpar
stundum til því eins og oft áður var
versta veðrið „í grennd“.
Borgfirðingar skutu sínum
flugeldum á loft í góðu veðri og
kvöddu þar með á táknrænan hátt
hið liðna ár. Þökkuðu fyrir með lit-
skrúðugum myndum á svartri
hvelfingunni. Um allar sveitir
heyrðust upphrópanir ungviðisins
er hver „rósin“ á fætur annarri
sprakk út í háloftunum. Ekki
heyrðust kýr tala mikið saman á
mínum bæjarhóli á þessum tíma-
mótum, enda þeim ekki til að
dreifa á bænum. Vættir landsins og
aðrir þeir íbúar sem mörgum okk-
ar eru huldir hafa án efa flutt sig
um set, hafi þeir svo kosið, þótt
greinarhöfundur hafa ekki orðið
þeirra var.
Amstur hversdagsins tekur
síðan við eftir hátíðar. Menn ýmist
lofa eða lasta veðurfarið, ríkis-
stjórnina, biskupinn og annað sem
kemur í hug. Í heimaranni er leit-
ast við að sinna þeim verkefnum er
upp á diskinn koma. Flestir bænd-
ur búnir að hleypa til áa sinna og
þessa dagana bíða veiðiréttareig-
endur við Norðurá eftir því að til-
boð verði opnuð í ána. Norðurá var
sett í útboð og óskað eftir tilboðum
sem opnuð verða 20. janúar nk.
Þykja það nokkur tíðindi bæði
meðal Borgfirðinga og veiðimanna
þar sem Stangaveiðifélag Reykja-
víkur og Veiðifélag Norðurár hafa
átt samleið í 66 ár. En eins og á
jólum, þá þýðir ekkert að reyna að
kíkja í pakkann fyrirfram þó reyna
megi að geta upp á innihaldinu.
Kirkjusókn var sem fyrr ágæt í
sveitinni, enda tíðin góð. Dreif-
býlisbúar láta veður ögn ráða
kirkjuferðum og gerast ekkert
endilegra kristnari á jólum en á
öðrum messudögum. Í Stafholts-
prestakalli eru þrjár sóknir með
jafn mörgum kirkjum. Sá skemmti-
legi og gamli siður hefur haldist í
prestakallinu að hafa messukaffi að
athöfn lokinni. Þar hittast sveit-
ungar og aðrir kirkjugestir og
ræða landsins gagn og nauðsynjar.
Á þrettánda degi jóla brá svo við
að eftir guðsþjónustu í Stafholts-
kirkju var tíðarfarið ekki það sem
hæst bar í umræðunni, heldur orð
alþingismanns um biskup og þjóð-
kirkju. Það er ýmislegt er lendir á
diskum fólks.
Illviðrin fóru framhjá
Morgunblaðið/Birna Guðrún Konráðsdóttir
Borgarfjörður Norðurá, séð upp að Laxfossi. Veiðiréttindi í ánni voru boðin út og verða tilboð opnuð 20. janúar.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
gólfþvottavélar
af öllum stærðum og gerðum
SC400:
Vinnslubreidd: 43 cm
Afköst: 1720/1035 m2/klst.
Tankastærð: 23/21 ltr.
BR752:
Vinnslubreidd: 71 cm
Afköst reikn/raun: 4260/2980 m2/klst.
Tankastærð: 80/80 ltr.
BA531D:
Vinnslubreidd: 53 cm
Afköst: 2385/1435 m2/klst.
Tankastærð: 40/40 ltr.
BR755:
Vinnslubreidd: 71 cm
Afköst reikn/raun: 4470/3130 m2/klst.
Tankastærð: 106/106 ltr.
SC350:
Vinnslubreidd: 37 cm
Afköst: 1480/890 m2/klst.
Tankastærð: 11/11 ltr.
Jón Gnarr borg-
arstjóri stendur
fyrir íbúa-
fundum í öllum
hverfum
Reykjavíkur
dagana 14. – 29.
janúar nk.
Fundirnir eru
hluti af verkefn-
inu Betri hverfi
en frá og með
mánudeginum 14. janúar geta
Reykvíkingar sett inn hug-
myndir að alls kyns smærri
verkefnum, nýframkvæmdum og
viðhaldsverkefnum, sem ætlað
er að bæta íbúahverfi borg-
arinnar.
Tekið er á móti hugmyndum á
samráðsvefnum Betri Reykjavík
á undirvefnum Betri Hverfi.
Nánari dagskrá fundanna með
borgarstjóra er að finna á vef
borgarinnar, www.reykjavik.is.
Í fyrra bárust hátt í 400 hug-
myndir frá borgarbúum um
verkefni í hverfunum.
Reykjavíkurborg hyggst enn á
ný verja 300 milljónum til svo-
kallaðra hverfapotta og geta
íbúar hverfanna komið með hug-
myndir að verkefnum og síðan
kosið um þær í rafrænum íbúa-
kosningum sem haldnar verða
dagana 14. – 19. mars nk. með
sama hætti og í fyrra, segir í
frétt frá borginni.
Jón Gnarr
Borgarstjóri efnir til
funda með íbúum
Kínverskt skák-
landslið kemur til
landsins í aðdrag-
anda N1 Reykja-
víkurskákmóts-
ins og mætir
íslensku úrvals-
liði í landskeppni.
Um er að ræða
eitt sterkasta
skáklandslið sem
sótt hefur Ísland
heim. Kínversku skáklandsliðin
lentu í 2. og 3. sæti á Ólympíu-
skákmótinu sem fram fór í Istanbul í
september. Í landsliði Kínverjanna
eru tveir karlar, tvær konur og tvö
ungmenni.
Allt eru þetta skákmenn sem telj-
ast vera meðal sterkustu skákmanna
heims, ýmist meðal karla, kvenna
eða ungmenna. Má þar nefna Ya
Yangvi, sem er 18 ára en næst-
stigahæsti skákmaður heims í sínum
aldursflokki, og undrabarnið Wei Yi
sem hefur 2501 skákstig þrátt fyrir
að vera aðeins 13 ára gamall og er
sterkasti skákmaður heims í sínum
aldursflokki.
Skáksambands Íslands stendur að
keppninni ásamt Kínversk-íslenska
menningarfélaginu. Landskeppnin
er hluti af hátíðahöldum í tilefni 60
ára afmælis félagsins.
Keppnin fer fram 15.-17. febrúar.
Allir kínversku keppendurnir tefla á
N1 Reykjavíkurskákmótinu sem
fram fer í Hörpu 19.-27. febrúar nk.
Landskeppni við
Kínverja í skák
Wei Yi
STUTT
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Tífalda á þekju íslenskra skóga fyrir
aldamótin 2100 þannig að þeir verði
12% af flatarmáli Íslands. Skógar
þekja nú 1,2% af landinu. Þetta kem-
ur fram í greinargerð sem nefnd um
stefnumótun í skógrækt hefur af-
hent Svandísi Svavarsdóttur um-
hverfisráðherra.
Þar er fjallað um ýmsa þætti
skógræktar. Eins hvernig þeir sem
stunda skógrækt hyggjast skipu-
leggja starf sitt. Sett eru markmið
um uppbyggingu skógarauðlindar
og endurheimt náttúruskóga. Auk
þess er m.a. fjallað um hlutverk
skóga við að bæta lýðheilsu og úti-
vist og einnig um loftslagsmál. Þá
eru gerðar tillögur um landsáætlun í
skógrækt. Í skýrslunni segir að þar
sé lögð fram stefna en ekki áætlun
um hvernig skuli framkvæma hana
né heldur hvað það kunni að kosta.
„Næsta skref er að gera lands-
áætlun í skógrækt á grundvelli skóg-
stefnunnar þar sem lögð eru fram
tímasett markmið og áætlanir um
framkvæmdir til að ná þeim.“
Þar kemur einnig fram að stefnan
hafi sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Í
því felst að „Íslendingar ætli að
byggja upp og varðveita skógar-
auðlind sem þjóni fjölþættum hag-
rænum, félagslegum og um-
hverfistengdum markmiðum í þágu
aukinna lífsgæða og almennrar vel-
ferðar“. Lögð er áhersla á að hefjast
handa strax, enda séu framkvæmdir
á okkar tímum forsendur þess að
skógar framtíðarinnar vaxi og dafni.
Jón Loftsson skógræktarstjóri
var formaður nefndarinnar en í
henni sátu fulltrúar landshlutaverk-
efna í skógrækt, Landssamtaka
skógareigenda og Skógræktarfélags
Íslands .
Morgunblaðið/Kristinn
Skógur Samkvæmt nýrri stefnumörkun á að tífalda stærð íslenskra skóga á
þessari öld. Umhverfisráðherra var afhent skýrsla um stefnumörkunina.
Marka skóg-
ræktinni stefnu
Skógastefnumolar
» Hraða á endurreisn skógar-
auðlindarinnar á Íslandi.
» Auka á skógrækt þar sem
viðarnytjar eru markmið.
» Auka á lífsgæði landsmanna
með því að efla félagslega inn-
viði þar sem skógar og skóg-
rækt skipta miklu máli.
» Vernda á jarðveg og vatns-
gæði, skapa skjól, hreinsa loft
og fegra landið.
Verði 12% af
flatarmáli Íslands