Morgunblaðið - 12.01.2013, Side 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013
ÚTSALAN ER HAFIN
Yfir 70 íslensk vörumerki á einum stað!ÚTSALA
atmo.is | s. 552-3600 | Laugavegur 91
Næg bílastæði í bílahúsinu beint á móti ATMO
SKAPARINN · 20%
HILDUR YEOMAN · 10%
LIBER · 10%
REY · 10-40%
MARTA JÓNSSON · 30-60%
HELICOPTER · 10%
MINK · 10%
GLING GLÓ · 20%
BÓAS · 40%
SUNBIRD · 30%
SCINTILLA · 10%
BIRNA · 30%
HUGINN MUNINN · 10-15%
MUNDI · 30%
SÁPUSMIÐJAN · 40%
ÍRIS · 20%
FÆRIÐ · 25%
HENDRIKKA WAAGE · 30%
GUST · 10-30%
GO WITH JAN · 30%
BIRNA · 20-30%
LÚKA · 20-40%
HLÍN REYKDAL · 15%
HANNA FELTING · 20-30%
POSTULÍNA · 10%
STÁSS · 15%
VÍK PRJÓNSDÓTTIR · 20%
E-LABEL · 30%
EVA LÍN · 30%
IGLÓ · 40%
Fjárhæð til úthlutunar árið 2013 er kr. 10.000.000,- og er heimilt að sækja um alla fjárhæðina sem til
úthlutunar er eða skilgreindan hluta hennar.
Heimilt er að veita styrki til eftirfarandi:
1. Rannsókna og/eða framkvæmda sem ætlað er að varna eða draga úr tjóni vegna
náttúruhamfara á eignum sem vátryggðar eru hjá Viðlagatryggingu Íslands.
2. Fræðslu og þjálfunarmála landssamtaka sem eru með samstarfssamning við
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra um skipan hjálparliðs.
Styrkumsókn skal skila á umsóknareyðublaði sem er að finna á heimasíðu VTÍ. Umsóknum skal skilað í
bréfpósti eða með tölvupósti. Umsóknum skal fylgja ferilskrá umsækjenda, tíma- og kostnaðaráætlun
og staðfesting á fjárframlagi frá öðrum styrktaraðilum verkefnisins eða vilyrði um fjárstyrk eða
fjárframlagi frá öðrum aðilum eftir því sem við á.
Athygli er vakin á því að styrkveitingar eru aðeins afgreiddar einu sinni á ári. Afgreiðsla styrkveitinga
fer fram eigi síðar en í maí ár hvert.
Öll tilskilin fylgigögn þurfa að berast með umsókn, að öðrum kosti eru umsóknir ekki teknar til
umfjöllunar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2012. Engir frestir eru veittir.
Nánari upplýsingar er að finna í reglum um styrkveitingar sem stjórn Viðlagagatryggingar Íslands
hefur sett sér. Reglurnar má nálgast á heimasíðu félagsins, www.vidlagatrygging.is undir „Styrkir“.
Umsóknir skulu sendar til: Viðlagatrygging Íslands, v/styrkumsóknar
Borgartúni 6, 105 Reykjavík
eða á tölvupóstfangið: vidlagatrygging@vidlagatrygging.is
Umsóknir um
styrkveitingar 2013
Borgartún 6 • 105 Reykjavík
Sími 575 3300 • Bréfsími 575 3303
vidlagatrygging.is
Viðlagatrygging Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna
rannsókna og/eða framkvæmda sem ætlað er að varna eða draga úr tjóni
af völdum náttúruhamfara skv. 21. gr. laga nr. 55/1992.
Fjármálaeftirlitið segir í athugasemd
á vef sínum að óvarlegt sé af Stöfum
lífeyrissjóði að fullyrða að engir fjár-
munir hafi tapast í tengslum við þau
atriði sem eftirlitið gerði athuga-
semdir við.
Fréttir af athugasemd FME við
starfsemi Stafa birtust í fjölmiðlum í
vikunni. Í kjölfarið sendi lífeyrissjóð-
urinn frá sér yfirlýsingu og FME hef-
ur svarað henni.
Athugasemdir FME eru meðal
annars: Lánveiting var ekki í sam-
ræmi við lánareglur sjóðsins, látið var
viðgangast að veðskuldabréf til stað-
festingar á eign sjóðsins var óundir-
ritað og lánveiting til framkvæmda-
stjóra vegna kaupa á bifreið, sem
hann hafði til umráða í starfi sínu, var
ekki í samræmi við lánareglur og hlið-
stæð lán stóðu ekki hinum almenna
sjóðfélaga til boða.
„Staða Stafa í óskráðum bréfum
var bæði tilkomin vegna verðbréfa
sem breyttust úr skráðum í óskráð og
vegna óskráðra verðbréfa sem sjóð-
urinn fjárfesti í á árinu 2011. Saman
ýtti leiðrétting verðbréfanna og fjár-
festingin sjóðnum endanlega út fyrir
lagaheimildir,“ segir í athugasemd-
inni.
Í tilkynningu frá stjórn Stafa sagð-
ist sjóðurinn fagna auknu eftirliti og
að brugðist yrði við aðfinnslunum.
Varðandi óvenjulegar og mikilsháttar
fjárfestingaákvarðanir sagði stjórn
sjóðsins að um afmarkað mál væri að
ræða frá 2008, þar sem 0,7% af heild-
areignum sjóðsins hefði verið varið í
ákveðna fjárfestingu. Seinna hefði
verið ákveðið að lækka hlutfallið í
0,5%.
„Þegar tekið er mið af heildareign-
um sjóðsins á þessum tíma nema 0,7%
tæpum milljarði króna. Fjármálaeft-
irlitið telur ekki vafa á að svo stór
fjárfesting í einu lagi sé mikilsháttar
fjárfestingarákvörðun og hefði betur
verið tekin af fleiri en einum aðila,“
segir í athugasemd FME.
Ákvarðanir Fjárfesting fyrir um milljarð hefði betur verið tekin af fleirum
en einum, segir Fjármálaeftirlitið. Stafir sögðu það vera 0,7% eignunum.
FME þykir álykt-
un Stafa óvarleg
Lán ekki í samræmi við lánareglur