Morgunblaðið - 12.01.2013, Page 25

Morgunblaðið - 12.01.2013, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 2013 BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000 NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4 VERÐ FRÁ 11.280.000 KR. MYNDARLEGUR Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins 8,3 l / 100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu. Ef þig langar að prófa Discovery skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 525 8000 eða koma við og skreppa í reynsluakstur. Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is www.landrover.is OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16 E N N E M M / S ÍA / N M 5 5 6 7 3 *Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri. – Lifið heil www.lyfja.is ÍS LE N S K A /S IA .I S /L Y F 6 2 4 1 9 1 2 /1 2 Gildir út janúar. Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur af NicoretteQuickMist munnholsúða 15% afsláttur af ölluNicorette fruitmint Quetta. AFP. | Að minnsta kosti 125 manns lágu í valnum eftir sprengju- árásir í Pakistan í fyrradag og óttast er að þær séu undanfari vaxandi átaka milli öfgamanna úr röðum súnníta og sjíta fyrir þingkosningar sem eiga að fara fram í maí. 92 menn biðu bana og 211 særðust í tveimur sprengjuárásum á snóker- klúbb í borginni Quetta, í hverfi sem einkum er byggt sjítum. Hreyfing öfgamanna úr röðum súnníta, Las- hkar-e-Jhangvi, lýsti árásunum á hendur sér. Þetta eru mannskæð- ustu árásir sem gerðar hafa verið til þessa á pakistanska sjíta sem eru um 20% af 180 milljónum íbúa landsins. Hundruð sjíta komu saman í snókerklúbbnum í gær og neituðu að greftra líkin nema herinn tæki við öryggisgæslu í Quetta í stað lög- reglumanna. „Stjórnin er annað- hvort ófær um að koma í veg fyrir of- beldisverkin eða vill ekki gera neitt,“ sagði einn sjítanna. Fyrr um daginn biðu ellefu manns bana í sprengjuárás á bifreið öryggissveita í Quetta. 22 menn lágu í valnum eftir sprengjuárás á trúar- samkomu í Swat-dal. Sérfræðingar í málefnum Pakist- ans vöruðu við vaxandi átökum milli öfgamanna úr röðum súnníta og sjíta og sögðu að ofbeldið gæti ógnað þingkosningunum í maí. Pakistan var undir stjórn hersins í áratugi en gangi allt að óskum í kosningunum í maí verður þetta í fyrsta skipti sem lýðræðislega kjörin ríkisstjórn stjórnar landinu í heilt kjörtímabil og víkur fyrir annarri lýðræðislega kjörinni stjórn. Vaxandi ofbeldi talið ógna lýð- ræði í Pakistan  125 manns biðu bana í tilræðum Árásir í Pakistan Svæði sem ættbálkar ráða yfir AFGANISTAN ÍSLAMABAD 200 km Tugir manna lágu í valnum eftir tvær árásir á snókerklúbb Áður var mannskæð árás gerð á bíl öryggissveita Mannskæð sprengjuárás á trúarsamkomu í Swat-dal Mikið mannfall varð í sprengingum Quetta Mingora Farþegar þotu ástralska flug- félagsins Qantas ráku upp stór augu þegar þeir sáu þriggja metra langa kyrkislöngu hanga utan á þotunni á flugi. Vélin var á leið- inni frá Cairns í Queensland til Port Moresby, höfuðborgar Papúa Nýju-Gíneu, og ferðin tók tvær klukkustundir. Farþegarnir fylgd- ust með kyrkislöngunni berjast fyrir lífi sínu með því að halda takinu á þotunni þrátt fyrir vind- inn og kuldann í háloftunum. „Hún var enn á flugvélinni þegar hún kom til Port Moresby en slangan var þá dauð,“ sagði tals- maður flugfélagsins. ÁSTRALÍA Kyrkislanga hékk á þotu á flugi Fjölmiðlamenn taka myndir af mál- verki breska listamannsins Pauls Emsley af Katrínu, hertogaynju af Cambridge og eiginkonu Vilhjálms Bretaprins. Þetta er fyrsta opin- bera málverkið af Katrínu. AFP Fyrsta málverkið af Katrínu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.